Vikan - 20.02.1995, Side 8
LEIKLIST
eitthvert annað starf? Hvað
er ég að gera hérna? Af
hverju hélt ég ekki bara
áfram sem skrifstofumær?"
Svo bað ég bara Guð al-
máttugan að hjálpa mér að
María. „Þetta var æðislega
gaman og þá horfði maður
vitanlega á Hollywoodstjörn-
urnar. Þær voru allar svo fal-
legar en ég óskaplega rauð-
hært barn með skakkar
tennur og hlussufreknur. Ég
sagði náttúrlega ekki nokkr-
um manni frá þeim draumi
mínum að verða leikkona,"
segir hún brosandi í byrjun
sextánda ársins sem fast-
ráðinn leikari Leikfélags
Reykjavíkur. Nú til dags fer
Hanna María einungis suð-
ureftir til að hitta móður sína,
Dagrúnu Friðfinnsdóttur,
sem er orðin 82 ára, „og er
með þeim hressari sem ég
þekki. Við mamma erum ein-
staklega góðar vinkonur og
tölumst við í síma oft í viku.
Mamma sér líka allar sýning-
ar sem ég er í og foreldrar
mínir studdu mig mjög, þeg-
ar ég tók þá ákvörðun að
fara í leiklist."
Tvítug hóf Hanna María
störf sem ritari í utanríkis-
ráðuneytinu og starfaði síð-
an í íslenska sendiráðinu í
Washington D. C. í rúmlega
þrjú ár. „Ég náði mér þarna í
svolitla fortíð en var um það
bil að festa rætur í Ameríku
þegar ég tók þá ákvörðun að
fara heim og sækja um leik-
listarskólann,“ segir hún.
Hanna María útskrifaðist
úr Leiklistarskóla íslands
1978 en fyrsta námsveturinn
var hún í SÁLinni og segir
það skemmtilegasta vetur
sem hún hafi upplifað. Með
henni í bekk voru m.a. Tinna
Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður
Arnardóttir, Andrés Sigur-
vinsson og Þröstur Guð-
bjartsson. Hanna María fór
strax að fá hlutverk eftir út-
skrift, fyrst hjá Alþýðuleik-
húsinu og svo hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. 1979 var Hönnu
Maríu boðinn fastur samn-
ingur hjá Leikfélaginu og
hefur verið þar síðan, fyrir
utan eitt skipti sem hún var
„lánuö“ til Leikfélags Akur-
eyrar.
► Hanna
María í Leyni-
mel 13 ásamt
Margréti
Helgu
Jóhanns-
dóttur.
Tí hlutverki
fröken
Shneider.
„Þaö var
skemmtilegt
aö leita aö
Shneider
kerlingunni á
æfingum,“
segir Hanna
María. Hér
sést hún í
hlutverki
sínu f Kaba-
rett ásamt
þeim Þresti
Guðbjarts-
syni og Helgu
Braga Jóns-
dóttur.
I anna María er feimin
eins og margir aðrir
I stórleikarar en hún
hefur hugrekki til þess að
standa daglega frammi fyrir
fullum sal af fólki. Hugrekkið
er á tilfinningasviðinu - þetta
með að ganga skrefi lengra
en maður í rauninni þorir -
eða veldur. Áhorfendur sjá
aldrei afleiðingarnar en árum
saman kastaði hún upp fyrir
hverja frumsýningu, svo mik-
il var sviðshræðslan. Eins og
margir þekktir listamenn
finnst Hönnu þó ekkert mál
að koma fram sem einhver
önnur - falin á bak við gervi
konu sem er ekki til nema á
sviðinu.
„Ég á mjög erfitt með að
koma fram sem ég sjálf,
halda ræðu eða slíkt, ég
bara get það ekki. Um leið
og ég er komin í gervi og
sýningin hafin, líður mér yfir-
leitt mjög vel, eftir að ég er
laus við þetta skelfilega
frumsýningarstress. Maður
losnar aldrei við þessa
sviðshræðslu," segir hún.
Nú er hún farin að biðja
bæn fyrir hverja frumsýn-
ingu. „Ég byrjaði á því fyrir
nokkrum árum, þegar ég
hélt að hjartað myndi ekki
haldast inni í brjóstinu, að
biðja bæn fyrir frumsýningu
- og ég hef gert það síðan.
Það hjálpar mér. Ég hugs-
aði: „Af hverju í ósköpunum
er ég að gera sjálfri mér
þetta? Af hverju fór ég ekki í
komast í gegnum þetta - og
hann gerði það! Síðan bið
ég fyrir hverja frumsýningu.
Kannski er það þess vegna
sem ég er hætt að gubba,"
segir hún.
BERNSKUDRAUMAR Í
KEFLAVÍK
Draumurinn um leikara-
starfið blundaði í Hönnu
Maríu frá barnæsku. Hún
fæddist og ólst upp í Kefla-
vík, eins og margir aðrir
listamenn sem nú eru á
toppnum. Karl, faðir hennar,
var áhugaleikari en auka-
vinnan hans í 35 ár var að
keyra sýningarvélarnar í
Nýja bíói í Keflavík. „Þar
fékk ég að standa uppi á stól
og horfa í gegnum litlu
gluggana og stundum fékk
ég að hjálpa til við að skeyta
saman filmur,“ segir Hanna
HEIMILI DÖKKU
FIÐRILDANNA
Hanna María er í framlínu
þetta leikár; hún er í Leyni-
mel 13; í Kabarett fer hún
með hlutverk fröken Schnei-
der og í næstu sýningu,
„Heimili dökku fiðrildanna,“
eftir finnska höfundinn
Leenu Lander, leikur hún
hlutverk geðfatlaðrar konu.
Leena Lander hefur fengið
ómælt hrós fyrir „Dökk fiðr-
ildi,“ auk þess að vinna til
bókmenntaverðlauna en
bókin er væntanleg í ís-
lenskri þýðingu. Leikstjóri
„Dökkra fiðrilda" er Eija-Elina
Bergholm, virtur leikstjóri og
kvikmyndahöfundur. „Dökku
fiðrildin" segir frá ungum
manni sem var tekinn frá for-
eldrum sínum sökum óreglu
þeirra og komið í fóstur á
uppeldisstofnun á eyju í
finnska skerjagarðinum.
Veru hans þar lauk í þann
mund sem geigvænlegir at-
burðir urðu á eynni. Miðaldra
vinnukona á heimilinu var
myrt. Sagan er lýsing á að-
stæðum fólks á einangruðu
betrunarhæli og uppgjör við
örlög mannsins í heimi þar
sem grið eru rofin, svik eiga
sér stað og lífríki náttúrunnar
er ógnað af manna völdum.
Hanna María leikur konu
sem annast dýrin á staðn-
um. Fyrir mörgum árum
hafði þessi kona unnið sem
ræstingakona í verslun.
Hjónin, sem ráku búðina,
áttu litla dóttur sem þau ekki
sinntu. Hún stal barninu og
hafði það hjá sér, klæddi í
fallega kjóla og fannst hún
vera að gera því svo gott.
Eftir þetta var hún lokuð inni
á geðsjúkrahúsi þar sem
hún var á miklum lyfjum í
fimmtán ár og var ekki hleypt
út fyrr en hún var hætt að
gráta - upphátt. Þannig er
henni lýst í bókinni, en leik-
ritiö gerist töluvert seinna.
„Þetta er óskaplega marg-
slungið hlutverk. Það er ekki
stórt, en gríðarlega erfitt.
Strax frá fyrsta degi hugsaði
ég: „Ég ætla að gera þetta
og ég ætla að gera þetta
vel,“ segir Hanna María.
„Svo verður það bara að
koma í Ijós hvort mér tekst
það." Hún segist hafa verið
„lúxusleikkona" í fyrra, ein-
ungis í einni sýningu, Elínu
Helenu á Litla sviðinu, en nú
sé strangur vinnuvetur og
hún hafi verið á fullu síðan í
haust.
8 VIKAN 2. TBL. 1995