Vikan - 20.02.1995, Side 9
AF LEIKSTJÓRUM OG
ÁHORFENDUM
„Æfingarnar á Kabarett
voru langar og strangar en
óskaplega skemmtilegar.
Mér fannst einstakt aö vinna
meö Guðjóni Petersen, leik-
stjóra. Við þekkjumst frá
fornu fari og bjuggum saman
í Skólastræti, í síðustu
kommúnunni í Reykjavík,
ásamt Ingibjörgu Sólrúnu og
fleirum. Guðjón hefur þróað
sig gríðarlega vel sem leik-
stjóri og það er einstakt að
vinna með svo góðum leik-
húsmanni. Hann er lærður
leikari og mér finnst íslenskt
leikhús vera heppið að hann
skuli hafa tekið þá ákvörðun
að fara út í leikstjórn," segir
Hanna María.
Þurfa leikstjórar að vera
leiklærðir?
„Það er betra. Afgerandi
kostur en ekki nauðsynleg-
ur,“ segir Hanna María kank-
vís. Sjálf hefur hún sett upp
þrjár sýningar og gæti hugs-
að sér að gera meira af því.
„Ég fór ekki að skilja leik-
stjóra fyrr en ég setti verk
upp sjálf," segir hún en hæst
á leikstjóraferlinum bar upp-
setninguna á Sigrúnu Ast-
rósu með Margréti Helgu Jó-
hannsdóttur sem Hanna
María flokkar með okkar
bestu leikkonum.
Hefurðu lent í því að vilja
fara aðra leið en leikstjór-
inn?
„Já, ég hef lent í því. Það
er skelfilega erfitt. Utkoman
er sú að leikstjórinn hefur
valdið; allavega er ég það
hlýðin leikkona. . . Ef ég er
algerlega á öndverðum
meiði við leikstjórann þá
skila ég tilbúningi sem ein-
hver annar er að krefja mig
um og ég trúi ekki á og get
þar af leiðandi ekki verið
sannfærandi. Mérfinnst leið-
inlegt að blöffa á sviði, ég vil
vera einlæg. Ég held að ein-
lægnin sé aðalsmerki góðra
leikara. Það verður allt að
koma héðan - frá hjartanu -
annars er það ekki satt.“
Er hægt að blekkja áhorf-
endur í stórum stíl?
„í rauninni er það ekki
hægt, en góðir leikarar geta
komist ansi langt á tækninni.
Stundum þarf að grípa til
tækninnar þegar maður nær
ekki alveg inn í brjóstið á
sér. Það er líka allt í lagi.
Það verður að vera í lagi, við
erum jú bara manneskjur og
þar af leiðandi ekki alltaf í
toppformi, við verðum jú
stundum veik eins og annaö
fólk en mætum samt alltaf á
sýningar. Leikarar standa
jafnvel á sviði meö háan
hita. Við erum bara ósköp
venjulegt fólk. Ég er hætt að
taka gagnrýni eins nærri mér
en það var erfitt í fyrsta sinn
sem ég fékk slæma gagn-
rýni. Ég las hana rétt fyrir
sýningu, sem ég ætlaði ekki
að komast í gegnum því ég
hugsaði: „Guð minn almátt-
ugur, það er hver einasti
maður í salnum búinn að
lesa þessa gagnrýni og hér
stend ég og verð að vera
hérna. . .!“ Svo sjóast maður
í þessu en ég er meira og
minna hætt að lesa gagn-
rýni. Ég er að gera mitt
besta hverju sinni og stund-
um heppnast það, stundum
ekki. Ég er ekkert alltaf
ánægð með það sem ég er
að gera, langt því frá - en ég
reyni alltaf að gera mitt
besta!“
Áfram með Kabarett.
Hanna segir það hafa verið
skemmtilegt að leita að
Schneider kerlingunni á æf-
ingum. „Fyrst fórum við í
þveröfuga átt miðað við það
sem hún er í dag. Kjóllinn,
sem ég æföi í, geröi mig
eins og Goldu Meir. Ég var
að reyna að fá þyngd í lík-
amann en þetta átti ekkert
við mig. Eftir tvær vikur byrj-
aði ég bara upp á nýtt eftir
aö búningahönnuöurinn Elín
Edda sýndi mér Ijósmynd.
Nú finnst mér gervið á mér
alveg einstaklega skemmti-
legt. Vinir mínir þekkja mig
varla á sviðinu fyrr en ég fer
að tala. Það er mjög mis-
munandi hvernig maöur
nálgast hlutverk. Mér reynist
best aö finna karakterinn
innanfrá en Eija, leikstjóri
„Dökkra fiörilda," segir:
„Hugsaðu um hvernig þessi
manneskja hreyfir sig.“ Þetta
minnir svolítiö á Brecht; þar
stendur maöur við hliðina á
sjálfum sér og skoðar sig um
leið. Nú byrja ég semsé ut-
anfrá en að sjálfsögöu tölum
við líka mikið um andlegu
hlið persónunnar.'1 Hanna
María kveðst treysta Eiju
fullkomlega og telur leikhús-
iö heppið aö hafa krækt í
hana en sýningar Eiju þykja
búa yfir mjög persónulegum,
sjónrænum stíl.
Hefurðu tíma fyrir önnur
áhugamál en leiklistina?
„Hún fyllir sjálfsagt upp í
90 prósent en ég kynntist aöra. Það hefur heldur betur
hestum fyrir nokkrum árum breyst, í dag elska ég að
og hef verið að ríða út. Við knúsa fólk. í Leiklistarskól-
Sigurborg eigum þrjá hesta anum veltumst við saman
en síöastliöiö sumar fór ég sveitt og yndisleg, í leikfimi
tvisvar á bak og slasaði mig og spuna - það var alger-
í bæöi skiptin. Rústaði á mér lega nýtt fyrir mér og ég var
hnénu í fyrra skiptiö og rif- svo feimin við þetta fyrst.
beinsbrotnaöi í það seinna. Mér fannst það eiginlega
Ég var að teyma hest sem óþægilegt - en svo opnaðist
lét eitthvað illa og ég er svo bara eitthvaö innra með mér.
þrjósk, að í stað þess að Ég er svo þakklát fyrir að
sleppa, lét ég hann kippa hafa farið inn á þessa braut
mér af baki,“ segir Hanna. af því aö ég ætlaöi aldrei að
Þær Sigurborg fóru líka í þora. Mig var búið aö
heimsreisu í hittiðfyrra, sem dreyma um þetta í mörg ár
hófst í Ástralíu þar sem þær en þaö tók mig svo langan
áttu heimboö í Sidney. „Viö tíma aö taka stóru ákvörðun- i hiutverki
flugum um alla Ástralíu og ina.“ geósjúki-
fórum i alls konar ævintýra- Hanna María lítur svo á að ím'iii
ferðir — safariferöir inn í eyöi- hlutverk leikarans sé að fá svörtú'fiðr-
mörkina, siglingar á skútum fólk til að hlæja og gráta iidanna.
og köfuðum í skerjagarðin- meö sér - eða hlæja að sér. Þetta er
um.“ Eftir það var haldiö til Næmnin og móttækileikinn
Fiji-eyja, síöan til Hawaii og fyrir tilfinningum annarra jö hiutverk.
svo til vesturstrandar Banda- geta valdiö erfiðum tilfinn- Það er ekki
ríkjanna. ingastrengjum en dýptin og stórt, en
forvitnin á tilfinningasviðinu |rjftarle9a
gera meira en aö bæta þaö jr Hanna^9
upp. María.
Þú segir aö leiklistin hafi Viturt fólk hefur haldiö því
gert þíg aö betri manneskju. fram um margra alda skeið
Hvernig? aö lífið sé gert bæöi úr Ijósi
„Ég var afskaplega lokuö og skugga og aö einungis
og t.d. ekki mikið fyrir þaö að kjánar telji því öðruvisi hátt-
fólk snerti mig og fannst ég að. Og hún Hanna María er
hafa litla þörf fyrir að snerta enginn kjáni. □
2. TBL. 1995 VIKAN 9
LEIKLIST