Vikan - 20.02.1995, Side 16
Draugar eru sá hópur dáinna manna sem fyrir einhverjar
sakir ganga aftur. Þetta er allstór og mislitur hópur, s.s. svipir,
afturgöngur vofur, fylgjur, gangárar, staðárar og uppvakningar.
Hér verður orðið draugur einungis notað um afturgöngur og
uppvakninga en þeir eru sá hópur framliðinna sem er hvað fyr-
irferðarmestur og hættulegastur. Þeir eru aðgreindir frá öðrum
hópum framliðinna á því að draugar er líkamlegir og bundnir
við jörðina. Þeir svífa ekki í lausu lofti eða fara í gegnum veggi.
Fylgjur, svipir og vofur eru loft- eða draumkenndar verur og
virðast ótengdar efnislíkamanum. Þeim verða ekki gerð skil
hér umfram það sem nauðsynlegt er til að varpa Ijósi á drauga,
þótt þess megi geta að draugar hafa komið fram í öllum þess-
um myndum. Megin áhersla verður lögð á afturgöngur og upp-
vakninga. Reynt verður að sýna fram á tengsl þeirra við jarð-
líkamann og þá staðreynd að draugar hafa dofnað og eru að
líkjast meira hinum loftkenndu frændum sínum.
TEXTI:
JAFET
MELGE
MYNDIR:
ÓMAR
STEFÁNS-
SON
ALMENNTUM
DRAUGA
Eiginlegir draugar skiptast
í tvo hópa, þ.e. afturgöngur
og uppvakninga. Afturganga
er draugur sem fer á kreik af
sjálfsdáðum en uppvakning-
ur er aftur á móti sá sem fyrir
tilstuðlan annars manns eða
manna er hrifinn úr gröf sinni
til einhvers konar þjónustu.
Þessir draugar eru nefndir
sendingar. Báðar þessar
gerðir drauga eru tengdar
voru ritaðar og urðu til þess
að þjóðsögum var safnað á
síðustu öld. Einkum verður
óttans vart í sögum sem
greina frá því er setið var yfir
líkum og saumað utan um
hinn látna og lík hans búið til
greftrunar."3
En þó að afturgöngur liggi
kyrrar á líkbörunum þá eru
þær með fullri meðvitund og
geta látið í sér heyra, eins
og sá sem sagði: „Skemmti-
legt er myrkrið." Það er svo
dauðu gangi allir úr gröfum
sínum á nýársnótt, og er það
kallað að „kirkjugarður rísi.“
Hinir framliðnu koma þá upp
í líkblæjum, ganga til kirkju
og halda messugjörð og
hverfa síðan.“2
Sagt er að grafir þeirra
standi opnar meðan á þessu
stendur. Má á þessu sjá að
þeir komast ekki upp í gegn-
um jarðveginn. í öllum kirkju-
görðum er vökumaður en
svo nefnist fyrsti maðurinn
sem jarðaður er í garðinum.
Hann tekur á móti þeim sem
síðar verða jarðaðir. Því var
almennt trúað að vökumenn
fúnuðu ekki. Þeir eru sagðir
líkir öðrum mönnum en
rauðir í framan og ófrýnilegir.
Þess eru dæmi að ættingjar
hafi veigrað sér við að láta
jarða skyldmenni sitt sem
fyrsta aðila í nýjum kirkju-
görðum til þess að koma í
veg fyrir að þeir yrðu að vök-
umönnum. Afturgöngur eru
Ijósfælnar en uppvakningar
geta verið á ferli um bjartan
dag.
jarðlíkama sínum og koma
fram í líkamlegu ástandi.
Þjóðtrúin ætlar að sálin sé
tengd líkama afturgangna en
hitt þekkist einnig að upp-
vakningar séu sálarlausir og
sálin í himnaríkissælu með-
an líkaminn reikar. „Óttinn
við að hinn látni gangi aftur
virðist ekki hafa breyst mikið
frá því að íslendingasögur
ekki óhugsandi að menn,
sem taldir hafa verið látnir,
hafi risið upp á líkbörunum
og hreinlega verið drepnir af
hræðslu við að þeír væru að
ganga aftur.
Eins og nærri má geta þá
er draugatrú nátengd kirkju-
görðum og í þeim er margt á
sveimi. „Þess er og getið í
munnmælasögum að hinir
AFTURGONGUR
Eins og fyrr segir þá eru
afturgöngur draugar sem
risu úr gröf sinni af sjálfsdáð-
um. „Verulega rammar aftur-
göngur ganga aftur í andlát-
inu sjálfu, en margar þeirra
liggja kyrrar, þangað til búið
er að jarða þær, ef þær
geta.“4
Þeir, sem helst gengu aft-
ur, voru menn sem áttu
miklu heimsláni að fagna og
gátu illa skilið sig frá því eftir
dauðann. Einnig hráblaut
börn sem borin voru út jafn-
skjótt og þau skruppu í
heiminn. En það eru þó ýms-
ir aðrir sem gengu aftur, s.s.
þeir, sem létust með voveif-
legum hætti, og segja sumir
að þeir séu á sveimi svo
lengi sem þeim var ætlað að
lifa, þeir sem þótti fara illa
um sig í gröfinni og ýmiss
konar illmenni. Galdramenn
þóttu mjög varasamir og
þurfti oft að beita brögðum
svo að þeir gengu ekki aftur.
Flestar afturgöngur eru þó
hrein fúlmenni sem ganga
aftur af heift og hefndarhug.
„Gat þá verið um að ræða
fyrirfram gerða áætlun, heit-
ingu eða þá að eitthvað
hafði verið hinum látna svo
kært að hann hafði fyrir þá
sök ekki frið í gröf sinni.“3
Dæmi um afturgöngur að
þessari gerð eru (m)aura-
púkar sem elskuðu fé sitt
svo mikið að þeir gátu ekki
skilið sig við það.
Stundum virðast þeir
nauðugir að vitja um
fé sitt og einn draug-
ur vitjaðist vini sín-
um og bað hann í
öllum bænum að
losa sig undan þess-
ari ánauð. En í flest-
um tilfellum verja
þeir féð að fullum
krafti. „Ef menn geta
tafið fyrir fédraugum,
þangað til dagar,
verða þeir að sleppa
þeim, því að ekki
geta þeir þá lengur
verið ofan jarðar,
þeir verða þá að fara í gröf
sína. Á þeim sögum er einna
áþreifanlegast, hve aftur-
göngur eru líkamlegar, því
að svo er að sjá, sem það sé
beinlínis líkið sjálft, sem
gengur lifandi aftur, og lík-
amleikinn kemur bezt fram í
þessu heljarafli, sem draug-
um er eignað, þvf að aflið er
hið sama hjá afturgöngum
16 VIKAN 2.TBL. 1995