Vikan - 20.02.1995, Síða 19
og vökva með því tungu
draugsins. Nú hefjast slags-
málin við drauginn; menn
eru ekki á einu máli um það
hvor ræðst á hvern en hafi
draugurinn hann undir þá
dregur hann særingarmann-
inn niður í gröfina með sér.
Hafi særingarmaðurinn betur
er draugurinn skyldugur til
að þjóna honum. Karlar, sem
vaktir eru upp, nefnast Mór-
ar en kvenmenn Skottur.
Þeir uppvakningar, sem
særðir eru upp áður en líkið
nær að kólna, þykja ramm-
astir og verstir viðureignar.
Það verður einnig að sjá
þeim fyrir mat því þeir þurfa
að nærast eins og lifandi
menn."2
írafellsmóra var skammt-
aður matur eins og öðru fólki
enda er talið víst að hann
hafi ekki verið með öllu
dauður þegar hann var
magnaður. Irafellsmóri virð-
ist enn vera á ferli því það
sást til hans í Belfast á Norð-
ur-írlandi ekki alls fyrir löngu!
VARNIR GEGN
DRAUGUM
„Þegar menn höfðu and-
varpað þrisvar á banaleg-
unni mátti telja víst að sálin
hefði yfirgefið líkamann. Þá
þótti vissara að taka skjáinn
úr glugganum, sem næstur
var líkinu, til þess að sálin
kæmist út. Setja varð skjá-
inn síðan öfugan í aftur til
þess að sálin gæti ekki snúið
til baka. En það er aldrei víst
að nokkur maður sé svo ai-
dauður að hann geti ekki
gengið aftur. Það var trú
manna að eitthvert líf eða
einhver hluti sálarinnar
leyndist með líkinu að
minnsta kosti fyrst um sinn
eftir dauðann. „Ef hinn dauði
vildi fyrir einhverjar sakir
leita á sínar gömlu slóðir var
nauðsynlegt að gera honum
erfitt fyrir. Fyrst og fremst
þarf að loka augum dáinna
manna, til að þeir geti ekki
séð. Þetta kallast nábjarg-
ir“5
Draugar eiga ekki að geta
farið aðra leið frá gröf sinni
heim en þá sömu og þeir
voru fluttir. Þess vegna voru
lík borin með fæturna á und-
an. Þá sér hinn dauði ekki
aftur fyrir sig og ratar ekki
heim. Þess eru dæmi að
brotin hafi verið göt á hús-
gafla og hlaðið í aftur jafn-
skjótt og borið hafði verið út.
í Egils sögu segir frá því að
Egill Skallagrímsson hafi lát-
ið rjúfa vegg og bera föður
sinn þar út af hræðslu við að
hann gengi aftur. Og ekki er
nema rúm öld síðan sá siður
lagðist að fullu af, að hring-
snúa líkkistunni til þess að
rugla hinn dauða í ríminu.
Talið var að mun hægara
væri að yfirbuga afturgöngur
en uppvakninga og sjaldnast
tókst að sigra þá að fullu.
Líftími drauga er eitthvað á
reiki. Sumir segja hann vera
120 ár, þá magnast þeir
fyrstu 40 árin, standa í stað í
40 og dofna síðustu 40 árin.
Aðrir segja hann vera 300 ár
eða að hann fylgi í 9 ættliði.
„Þegar draugar eru orðnir
gamlir, verða þeir sumir
mjög farlama og enda búnir
að ganga undan sér fæturna
upp að hnjám, [.......]. Þetta
bendir enn á, hvað þjóðtrúin
gerir þá líkamlega."5
Það var talið gott að bera
grájurt, öðru nafni fjanda-
fælu (Omalotheca norveg-
ica), milli brjóstanna eða í
höfuðfati. Tilvalið var að
brenna surtarbrand eða
grafa hann í gólf þar sem
reimt var. Talið var heillaráð
að steypa hlandi yfir drauga
og höfðu margar kerlingar
koppinn sinn með einhverj-
um leka f við rúmið, svona til
öryggis. Björn Halldórsson
(1724-1794) í Sauðlauksdal
taldi að best væri að spýta
duglega frá sér og snúa svo
að þeim rassinum og reka
duglega við. Þá þótti gott að
skjóta á þá með silfurhnöpp-
um en þar sem þeir voru
ekki á hvers manns færi þá
mátti allt eins notast við
lambaspörð eða rekla af
grávíði (Salix callicarpaea).
Ef draugar voru mjög
magnaðir þá gat reynst
nauðsynlegt að grafa upp
líkið og reka nagla í iljar
þess eða þá höggva af því
höfuðið og leggja það, ef
mér leyfist að orða það svo,
þannig að nefið snúi til Saur-
bæjar. í þjóðsögum má finna
eftirfarandi sögu um það
þegar verið var að sauma ut-
an um Finn galdramann:
„[. . . .] hann var svo forn og
illur í skapi að allir voru
hræddir við hann. Þegar
hann dó vildi enginn, hvorki
karl né kona, verða til þess
að líkklæða hann og sauma
utan um hann. Þó varð
kvenmaður einn til þess að
reyna það; komst hún ekki
nema hálfa leið og varð vit-
stola. Þá gaf önnur sig til og
gaf hún sig ekki að því
hvernig líkið lét. Þegar hún
var nærri búin sagði Finnur:
„Þú átt eftir að bíta úr nálini.“
Hún svaraði: „Ég ætlaði að
slíta, en ekki bíta, bölvaður,“
sleit hún síðan nálina frá,
braut hana í sundur og stakk
brotunum í iljar á líkinu.“2
Einnig eru þess dæmi að
menn hafi kveðið niður
drauga með góðri vísu eins
og Sigurður Gíslason í sög-
unni, Maður og draugur
kveðast á, í
þjóðsagnasafni
Sigfúsar Sigfús-
sonar:
Kveð ég þig nið-
ur í krafti hans
er krossinn bar
á baki.
Allar hallir and-
skotans
opnar við þér
taki.6
„Engir eða fáir
draugar voru
svo rammir, að
þeir stæðust, ef
kveðin var Lilja
eða Bamaber."5
Allra best var þó
að grafa upp lík-
ið og brenna
það til ösku.
NIÐURLAG
Af framan-
greindu má sjá
að trú manna á
drauga hefur
verið almenn og
fáir dregið til-
veru þeirra í efa.
Menn hræddust
drauga og fundu
allskonar ráð og
aðferðir til að verjast og sigr-
ast á þeim og líkama þeirra.
Draugar slógust við menn,
drápu skepnur og áttu jafn-
vel börn með mennskum
konum. Varnir gegn draug-
um beinast nær eingöngu að
líkama þeirra, t.d. með því
að reka nagla í iljarnar á
þeim eða þá að brenna líkið.
Af þessu má sjá að draugar
eru bundnir jarðlíkama sín-
um. „En sannast er það að
segja, að hin forna, heiðna
draugatrú hefir undralitlum
breytingum tekið allt fram
undir vora daga, en nú á síð-
ustu mannsöldrum hafa
flestir hinna römmu, fornu
drauga dáið út að mestu eða
orðnir að meinlitlum slæðingi
og engir nýir komið í þeirra
stað, nema meinlitlir svipir."5
Draugatrú hefur tekið þá
stefnu nú í seinni tíð að
draugarnir virðast ótengdari
jarðlíkamanum. Þeir eru
farnir að líkjast meira vofum,
vofum sem svífa um stofur
og ganga, eða þá að þeir
hrella menn á næturrúnti við
Geitháls eða Stapann.
Draugar eru ekki lengur fast-
ir fyrir og líkamlegir, þeir eru
hættir að ríða húsum, drepa
skepnur og barna konur.
Þeir virðast smátt og smátt
vera að þynnast upp, verða
að gufu og hverfa.
HEIMILDASKRÁ
1) Halldór Pétursson. 1962. Ævisaga Eyja-
sels-Móra. Reykjavík, (safoldarprentsmiðja
h.f.
2) Jón Árnason. 1961. íslenskar þjóðsögur og
ævintýri I. Reykjavík, Þjóðsaga.
3) Jón Hnefill Aðalsteinsson. 1988. íslensk
þjóðmenning VI. Reykjavík, Þjóðsaga.
4) Jón Þorkelsson, 1899. Þjóðsögur og munn-
mæli. Akureyri, Prentverk Odds Björnsson-
ar.
5) Jónas Jónasson frá Hrafnagili. 1961. Is-
lenzkir Þjóðhættir. Reykjavík, ísafoldaprent-
smiðja h.f.
6) Sigfús Sigfússon. 1982. íslenskarþjóðsögur
og sagnir II. Reykjavík, Þjóðsaga.
2. TBL. 1995 VIKAN 19