Vikan


Vikan - 20.02.1995, Síða 32

Vikan - 20.02.1995, Síða 32
RAÐLEGGINGAR hávaða prófaðu þá að nota eyrnatappa. HEITT BAÐ GERIR ÞIG SYFJADA Eitt besta ráðið við svefn- leysi er heitt bað. Og ákjós- anlegt hitastig er 37°. Þér líður vel og þú verður af- slöppuð. HREYFING - BETRI NÆTURSVEFN Þeir, sem hreyfa sig mikið, sofa vel. HROTUR Margir þeir, sem hrjóta, eru of feitir karlar. Því þyngri sem þeir eru því líklegra er að öndunarvegurinn leggist saman. Og þeir, sem hrjóta, hrjóta aðallega þegar þeir liggja á bakinu. Vínandi og reykingar geta líka verið ástæða fyrir hrotum. Makar þeirra, sem hrjóta, eru síður en svo ánægðir með þessi leiðinlegu hljóð. Þeir geta því brugðið á það ráð að nota eyrnatappa. HRÆÐSLA - VIÐ AÐ SOFNA EKKI Það versta er ekki að liggja andvaka. Heldur hræðslan við að sofna ekki. Hræðslan er trygging fyrir slæmum og órólegum svefni. Kannski hugsar þú sem svo í hádeg- inu að næstu nótt munir þú sofa illa. Og þess vegna er næstum því öruggt að þú munir liggja andvaka. Þegar þú hugsar þannig setur þú sjálfa þig í sálræna pressu. Sálfræðingar segja að það gerist sem við segjum að muni gerast. Þess vegna skaltu ekkert vera að hugsa um næstu nótt. KRAMPAR í FÓTUM Krampar í fótum á næt- urnar geta verið afleiðing þess að líkamann skorti magnesíum. Um er að ræða sársaukafulla vöðvasam- drætti sem geta komið þegar fólk er í fasta svefni. Ef þú færð krampa á næturnar skaltu prófa að borða hnetur, ost, sojabaunir og gróft brauð. Þessar fæðutegundir verða líkamanum úti um magnesíum. Of mikill vín- andi getur einnig verið ástæða fyrir krampa í fótum. LYF Kaffi, vínandi og tóbak geta truflað nætursvefn. Drekktu í hófi og vendu þig ekki á kvöldkaffi. Örvandi áhrif kaffisins geta nefnilega varað stundum saman. Þeir, sem taka svefnmeðul, ættu ekki að taka þau lengi. Það virðist vera fjarstæðukennt en svefnmeðul gera ekki allt- af gagn. Það hefur komið í Ijós að í fyrstu hafa þau áhrif. Þau minnka hins vegar eftir tvær vikur og að lokum missa lyfin áhrifin. Vægari svefntruflanir er stundum hægt að meðhöndla með náttúrumeðulum. Humall, hun- ang og kryddbaldursbrá hafa til dæmis góð áhrif á þá sem þjást af svefnleysi. FINNDU 6 VILLUR MARTRÖÐ - HRÆÐSLA í UNDIRVITUNDINNI Martröð er hvorki hættuleg né óeðlileg. Flestir hafa ein- hvern tímann vaknað upp í svitabaði eftir martröð. Og það er líklegt að í undirvit- undinni eimi enn eftir af hræðslu við eitthvað sem tengist fortíðinni; hvort sem það gerðist fyrir nokkrum dögum eða mörgum árum. Eitt getur þú gert. Þegar þú ert vakandi skaltu breyta draumnum. Ef þig dreymir til dæmis alltaf sama drauminn þar sem þú ert í flugvél sem er að hrapa ímyndaðu þér þá að flugferðin endi vel. Sjáðu fyrir þér farsæla lend- ingu nokkrum sinnum í viku. í flestum tilfellum hættir fólk að fá martröð eftir nokkra mánuði með þessari aðferð. MIÐDEGISLÚR Margir dotta fyrir framan sjónvarpið og það getur komið niður á nætursvefnin- um. Sittu því í sófanum og Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda •jejueA jn|oj jæAi •9 jnuoddop uuiqjo je uu|||!J0Jl -g -jegeu jsjæj jnjeij u|Qjnijsjn>|S|ja 'p 'JejueA uuesse>| -JS9d '£ ‘jsAejq jnjeq jeujnuijg z ‘OlJJoq je Queujnusnn 'l qsAejq ejeq iqijjb unejjijjg 32 VIKAN 2. TBL. 1995

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.