Vikan


Vikan - 20.02.1995, Síða 41

Vikan - 20.02.1995, Síða 41
JONA RUNA SKRIFAR . SLUÐUR NAGRANNANNA EITRAR EINKALÍF MITT ILLGIRNI OG RÆTNI Við vitum flest hvað það er sárt að verða fyrir illu umtali og óréttmætu, jafnvel þó í litlum mæli sé. Við getum farið mjög illa út úr því þegar t.d. nágrannar, vinnufélagar og aðrir koma röngum sögu- sögnum af stað um okkur. Slúður er varhugavert og hlýtur alltaf að valda sárs- auka og misskilningi. Sér- staklega þó ef um er að ræða ósmekklegar sögur sem eru bæði illgirnislegar og rætnar. VINNUMISSIR OG ÖNNUR ÓÞÆGINDI Við svörum að þessu sinni bréfi frá þriggja barna ein- hleypri móður sem er bók- staflega lögð í einelti af ná- grönnum sínum. Þeir hafa rægt hana og slúðrað um hana þannig að bæði börnin hennar og hún hafa orðið fyrir miklum óþægindum af, bæði heima og að heiman. Konan er rétt undir þrítugu og vill kalla sig Birnu. „Eg vildi mikið til vinna til að geta komist hjá því að vera stöðugt á milli tannanna á nágrönnum mínum. Þeir hafa þegar spillt fyrir mér á tveim vinnustöðum með óhróðri og slúðri. Ég er meira að segja hrædd um að missa þriðju vinnuna út af kvikindislegri umfjöllun þeirra um mig og mína persónu við þá sem bara vilja hlusta,“ segir Birna áhyggjufull. ÍITREKAÐ KYNFERDISLEGT ÁREITI „Ég er einstæð og á börnin mín með þrem mönnum. Það er aðal- ástæða þess að ég er álitin vera lauslát og lélegur kar- akter.“ segir Birna og getur þess jafnframt, að hún sé búin að búa með tveim mönnum síðan yngsta barn- ið hennar var þriggja ára. “ Það er eins og þetta fólk hafi ekkert annað að hugsa um en mig og börn- in mín og það hvað við er- um nauðaómerkileg í þeirra augum. Við verðum fyrir aðkasti af engu tilefni og ég hef orðið fyrir grófu kynferðislegu áreiti á göngum stigagangsins. Tveir karlmenn, sem búa hérna, líta greinilega á mig eins og hóru. Annar spurði mig hvort hann mætti ekki koma inn til mín og ræða við mig eina um mál sem við hefðum bæði áhuga á. Þetta gerðist eftir að hann hafði setið fyrir mér á stigapallinum við íbúðina mína og þvingað mig upp að vegg og kysst mig ítrekað á mjög nærgöngl- an og ósæmilegan hátt,“ segir Birna og vanlíðan hennar er mikil. BÖRNIN NIÐURLÆGÐ OG SÆRÐ Hún segir að börnin henn- ar séu undir sífelldri pressu vegna þess að allir í húsinu sem þau búa í séu sífellt að gefa þeim auga og kenna þeim um allt sem aflaga fer í hverfinu. Þau fá líka að heyra það að mamma þeirra sé slæm og liggi undir hverj- um sem er. Börnin í stiga- ganginum kvelja þau og full- orðna fólkið, með einni und- antekningu þó, er tilbúið til að segja við þau kvikindis- lega hluti og gera þeim erfitt fyrir með dónaskap og öðr- um andstyggilegheitum. Börnin eru mjög vansæl vegna þessa og segir Birna að sjálfsvirðing þeirra hafi minnkað að mun frá því sem áður var. Þau eru bæði nið- urlægð og særð. RÉTTLÁT REIÐI OG MÖGULEGAR VARNIR „Ég spyr þig kæra Jóna Rúna, er eðlilegt að fólk hagi sér svona? Hvernig getur maður varist slúðri og illgirni annarra. Á ég að flytja úr blokkinni? Mér líð- ur illa og ég er mjög reið út í þetta fólk og langar til að vita hvort fólki hefnist ekki fyrir svona framkomu við aðra? Hvaða áhrif heldur þú að þetta ástand hafi á börnin mín og fram- tíð þeirra? Mennirnir, sem hafa reynt við mig hérna heima hjá okkur, eru báðir giftir. Finnst þér að ég ætti að segja konunum þeirra frá framkomu þeirra við mig? Á ég ekki rétt á að einkalíf mitt sé virt af ókunnugum? Hvernig get ég best varið börnin mín fyrir þessum ófögnuði?". ÓDRENGILEG UMFJÖLLUN Vissulega verður að viður- kennast að við eigum flest erfitt með að verjast ómak- legum árásum annarra að persónu okkar og einkalífi. Við getum ekki í raun komið í veg fyrir að aðrir slúðri um okkur og láti sér fátt um finn- ast þótt umfjöllunin sé bæði særandi og móðgandi fyrir manngildi okkar. Auðvitað eigum við þann rétt öll að fá að eiga einkalíf okkar í friði fyrir árásum annarra. Við vit- um það öll að við eigum ekki að fjalla ódrengilega um aðra og fjarstadda, svo ein- falt er það. Það er ekkert sem réttlætir það að verið sé að slúðra um okkur með það að markmiði að gera okkur tortryggileg og lítilsigld í augum annarra. ÓÞÆGILEGT ÁSTAND OG FLÓTTI Birna spyr hvort æskilegt sé að hún flytji úr blokkinni sem hún býr í núna vegna áreitisins sem hún og fjöl- skylda hennar verða fyrir nánast daglega. Það er eng- in sérstök ástæða til að hvetja hana til að rífa sig og börnin upp með rótum og velja að flýja þá sem eiga greinilega heilmikið vantalað við sinni innri mann. Auðvit- að er ástandið óþægilegt fyr- ir börnin, en það er ekkert sem segir að þótt þau flyttu biði þeirra eitthvað bærilegra andrúmsloft samskipta, þótt í nýju umhverfi væri. 2.TBL. 1995 VIKAN 41 SÁLRÆN SJÓNARMIÐ

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.