Vikan - 20.02.1995, Síða 55
fitusýrur, eins og korn- og
sojaolíum. Kjöt, fiskur, hnet-
ur og hrísgrjónahýði inni-
halda mikið magn af
coQlO, en korn, grænmeti
og mjólkurvörur mun minna.
Þetta gæti bent til þess að
grænmetisætur líði skort á
coQlO
í BARÁTTUNNI VIÐ
SJÚKDÓMA
í Ijós hefur komið að ekki er
eins mikið af coQlO í vefj-
um og blóði þeirra sem eru
með sykursýki, tannholds-
sjúkdóma, MS og ýmsa
vöðvasjúkdóma. Ef hlutfall
coQlO er aukið í vefjum
sjúklinga er hægt að bæta
líðan þeirra og jafnvel auka
lífslíkur. Þeir skammtar, sem
eru viðeigandi, hafa þó oft
ekki verið ákvarðaðir, en þar
sem coQlO hefur best
sannað sig eru þeir oft frá um
100-200 mg á dag svo mán-
uðum skiptir áður en gagn-
semi þess kemur í Ijós. í eit-
urefnafræðilegum prófum á
þúsundum einstaklinga hafa
aldrei komið fram aukaverk-
anir. Skammtar sem nema
allt að 100 mg á dag í fjögur
ár hafa í sumum tilfellum ein-
göngu valdið vægri ógleði.
„Þrátt fyrir að flestir læknar
og lyfjafræðingar hafi senni-
lega enga reynslu af
coQlO hefur efnið verið
gríðarlega mikið rannsakað,"
segir Rafn. „Lengst í Japan
en einnig í Bandaríkjunum
og Evrópu." í 35 ár hafa al-
þjóðlegar rannsóknir er
varða gagnsemi coQlO í
baráttunni gegn hjartabilun
verið stundaðar. Niðurstöður
rannsókna í Japan á árunum
1967-1978 leiða í Ijós að
meðferð með coQlO á
sjúklingum með hjartabilanir
eru gagnlegar. Ennfremur
hefur verið sýnt fram á að
coQlO getur verið ónæm-
isörvandi. Rafn bendir á að í
grein í Journal of the Amer-
ican Medical Association sé
coQlO flokkað sem sam-
dráttarörvandi lyf fyrir hjart-
að. Hann segir jafnframt að
þess verði væntanlega ekki
langt að bíða að coQlO
öðlist almenna viðurkenn-
ingu sem viðbótarmeðferð
við ýmsum kvillum.
SNYRTIVÖRUR MEÐ ÁVAXTASÝRUM
Nýja línan frá Academie nefnist SCIENTIFIC SYSTEM. í
henni eru fimm nýjar vörutegundir og þeim, sem hætt er við
ofnæmi, er sérstaklega bent á hana. I nýju línunni eru eftir-
farandi snyrtivörur: ANTI - AGEING ACTIVE CONCENTRA-
TE, þunnfljótandi krem sem notað er í baráttunni við ellimerki
í húðinni. STIMULATING AND MOISTURIZING MASK sem
er örvandi rakamaski. FIRMING CARE FACE AND NECK
sem er mjög virkt krem fyrir andlit og háls. REGENERATING
CARE sem er endurnærandi krem. Og MOISTURIZING
CARE sem er rakakrem.
í öllum vörunum, sem tilheyra nýju línunni, eru ávaxtasýr-
ur, nema ( MOISTURIZING CARE. Meiri hluti efnanna f
snyrtivörunum eru hrein náttúruefni. Og frá því 1927 hafa vís-
indamenn Academie lagt áherslu á að bæta efnin þannig að
engin hætta sé á að þau erti viðkvæma húð og augu. Allar
vörutegundirnar í SCIENTIFIC SYSTEM línunni eru saman-
settar úr sérstökum efnum til að draga úr hættu á ofnæmis-
viðbrögðum. □
AHA-AHA-AHA
SCIENTIFIC SYSTEM er ný virk húðmeðferð sem byggir
á ávaxtasýrum
SCIENTIFIC SYSTEM vinnur gegn öldrun og
hrukkum á undraverðan hátt
SCIENTIFIC SYSTEM minnkar ör og djúpar andlitslínur
SCIENTIFIC SYSTEM fer vel með allar húðgerðir
SCIENTIFIC SYSTEM er notað af sérþjálfuðum
snyrtifræðingum
SCIENTIFIC SYSTEM sýnir árangur strax eftir
fyrstu notkun
SCIENTIFIC SYSTEM er þín leið til að öðlast fegurri húð
SCIENTIFIC SYSTEM frá ACADEMIE
er eingöngu selt af sérþjálfuðum
snyrtifræðingum á snyrtistofum
Reykjavík og nágr.:
Baðhúsið Ármúla 30, Rvk. S: 588 1616
Snyrtistofan Ágústa Hafnarst. 5, Rvk. S: 552 9070
Snyrtistofan Ársól Efstal. 26, Rvk. S: 553 1262
Snyrtistofan Greifynjan Hraunbæ 102, Rvk. S: 587 9310
Snyrtistofan Helenafagra Laugav. 101, Rvk. S: 551 6160
Snyrtistofan Jóna Hamraborg 10, Kóp. S: 554 0744
Snyrtistofa Þórdísar Fákafeni 11, Rvk. S: 568 8805
Landið:
Snyrtistofa Huldu Sjávargötu 14, Njarðvík S: 92-11493
Snyrtistofa Lilju Grenigrund 7, Akranesi S: 93-12644
Snyrtistofa Önnu Háarifi 83, Rifi S: 93-66708
Snyrtistofan Sóley Hafnarstræti 20, ísafirði S: 94-4022
Snyrtistofan Eva Reykjasíðu 1, Akureyri S: 96-25544
Snyrtistofa Ragnheiðar Útgarði 6, Egilsstöðum S: 97-11950
Snyrtistofa Guðrúnar Bröttugötu 5, Vestm.ey. S: 98-11014
2. TBL. 1995 VIKAN 55