Vikan


Vikan - 20.03.1995, Blaðsíða 15

Vikan - 20.03.1995, Blaðsíða 15
HÁVÆR MEÐ EINDÆMUM Strax í æsku var Heimir mikill fótboltakappi og þrátt fyrir að heimili hans hafi verið í tvö hundruð metra fjarlægð frá fótboltavellin- um heyrðust öskrin í hon- um alla leið; þrátt fyrir að hann væri að leika með tuttugu jafnöldrum sínum. „í raðhúsinu bjó strákur sem er virtur lögfræðingur í dagl'Hann var ofboðslega duglegur að læra. Hann var líka mjög skemmtilegur og var oft úti að leika með okkur. En þegar hann var að læra heyrði hann oft öskrin í Heimi og hann hót- aði margoft að ganga frá honum ef hann þagnaði ekki.“ Foreldrarnir eignuðust bíl þegar Jóna Dóra var tíu ára og eftir það var farið út á land í sumarfrí á hverju ein- asta ári. Einhverju sinni skrapp fjölskyldan austur á Þingvöil. „Við gátum verið alveg rosalega andstyggi- leg,“ segir Jóna Dóra. „Við gerðum okkur enga grein fyrir því hvað við vorum að gera. Við Heimir fórum í göngutúr um klettana og ákváðum að hann skyldi hlaupa til baka og segja að ég hefði dottið niður. Ég hef þá verið svona ellefu ára og hann sex. Eftir þetta vorum við tekin rosalega í gegn vegna þess að mamma og pabbi komu al- veg miður sín þangað sem ég lá. Ég man að mamma var hálf grátandi þegar hún kom að mér liggjandi fyrir neðan klettana." ÁKVEÐINN UNGUR MADUR Þrátt fyrir að heimilið væri í nokkurra metra fjar- lægð frá Bústaðakirkju fermdust eldri bræðurnir og Jóna Dóra í Dómkirkjunni hjá séra Óskari Þorláks- syni. Það gerði Heimir hins vegar ekki. „Heimir fermd- ist hjá safnaðarprestinum okkar, séra Ólafi Skúlasyni. Við hin vorum hins vegar svo trú mömmu og pabba og gerðum eins og þau sögðu. Séra Óskar hafði nefnilega verið presturinn þeirra. Heimir var hins veg- ar ákveðinn í að fermast í Bústaðakirkju þrátt fyrir að pabbi hafi einhvern tímann sagt að hann mundi þá ekki vera viðstaddur ferming- una. Pabbi hafði ekki einu sinni haft nein kynni af séra Ólafi. En auðvitað mætti pabbi í ferminguna.“ Aðra reglu, sem gilti inn- an fjölskyldunnar, braut Heimir. Systkinin ólust upp við kommúnisma en afi þeirra, sem bjó, ásamt ömmunni, á heimilinu í 20 ár, var hægrisinnaður. „Það kastaðist stundum í kekki á milli pabba og hans. Heimir ákvað að fylgja afa í pólitík- inni á unga aldri. Það fór ofboðslega ( taugarnar á mér. Ég vildi vera trú þeirri stefnu sem við höfðum alist upp við. Mér fannst hún vera hið góða; hin stefnan var af hinu illa. Og Heimir gekk í Heimdall. Ég veit ekki hvers vegna; kannski var hann að storka pabba. Ég man að pabbi var alveg miður sín og hélt að honum hefði mistekist í uppeldinu. Ég varð ofsalega reið út í Heimi. Mér fannst hann hafa svikið pabba. í dag er hann kominn inn á sömu línu í pólitík og ég. Það er langt síðan það gerðist; kannski hefur það alltaf verið þannig.“ ORÐINN MÓDURBRÓÐIR Þegar Jóna Dóra kom heim af böllum spurði Heimir hvaða stráka hún hefði hitt. Hann var mjög spenntur fyrir því að hún hitti einhverja fræga fót- bolta- eða handboltaleik- menn; í því skyni að fá sjálfur eiginhandaráritanir. „Einhvern tímann var vin- kona mín að slá sér upp með einum af okkar þekkt- ustu knattspyrnumönnum. Þá vorum við bara sautján ára. Ég sá til þess að hann kæmi heim - Heimis vegna. Og hann fékk eigin- handaráritun. Það er ekki hægt að segja annað en að maður hafi lagt ýmislegt á sig fyrir hann.“ Frumburðinn, sem nú er látinn, eignaðist Jóna Dóra þegar hún var tvítug. Hún bjó þá enn í foreldrahúsum en flutti þegar hann var þriggja vikna. Á milli Heim- is og drengsins myndaðist mjög sérstakt samband og þeir voru mjög nánir. „Heimir ól hann upp í músík frá því hann var þriggja mánaða. Þá lá hann á maganum á Heimi, enda reyndist hann seinna meir vera mikið fyrir íþróttir og músík. Þeir voru miklu meira sem bræður en frændur. Það var náttúr- lega ómetanlegt að eiga svona bróður." BREYTING TIL BATNAÐAR „Heimir var mjög heilbrigð- ur unglingur. Hann spáði til dæmis ekki í föt. í hans aug- um voru föt bara nauðsyn. Hann sagði frá því ef hann vantaði buxur eða skyrtu. Mamma fór þá í Hagkaup eða eitthvert þar sem hægt var að fá ódýr föt. Og ef fötin pössuðu gekk hann i þeim. Það skipti ekki máli hvernig þau litu út. Ekki fyrr en hann varð sextán ára. Þá gerðist eitthvað. En ég veit ekki hvað. Áður hafði ég verið að segja við hann að hann mundi aldrei ná sér í stelpu og að hann væri eins og hálfviti til fara. Ég hafði svo miklar áhyggjur af því að hann yrði einhver hallæris- gaur. En þegar hann varð sextán ára fór hann að velja sín föt sjálfur og var, og er, einstaklega smekklegur." Á þessu tímabili ákváðu Heimir og Gummi, vinur hans, að skoða heiminn og skreppa til útlanda. Þeir voru búnir að safna lengi fyrir ferðinni og fóru til Græn- lands. Þar voru þeir í viku. „Þeir sögðu að áður en þeir færu að skoða stórborgirnar þyrftu þeir að upplifa náttúr- una.“ MIKILL FIÖLSKYLDUMAÐUR Sem krakka dreymdi Heimi um að verða flugmað- ur þegar fram liðu stundir. Ekkert varð úr þeim áform- um og eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund settist hann á skólabekk í Háskóla íslands. Þar lærði hann um viðskipti í eitt ár. Skólagangan varð ekki lengri. Sem barn talaði hann oft um að hann ætlaði að verða ríkur. Þó að sá draum- ur hafi ekki ræst kemst hann vel af. í gegnum tíðina hefur hann verið íþróttaþjálfari og blaðamaður auk þess að vera atvinnumaður í knatt- spyrnu í Hollandi. í dag starfar Heimir sem íþróttafréttamaður hjá Sjón- varpinu. „Hann er mikill fjöl- skyldumaður,“ segir Jóna Dóra. „Honum nægir starfið, konan og börnin sem eru þrjú talsins. Hann virðist ekki þurfa neitt meira. Hann hefur aldrei verið mikið fyrir að skemmta sér, hann smakkar varla vín og reykingar hafa alltaf farið í taugarnar á hon- um.“ Þessi prýðismaður er hins vegar fljótur upp ef hon- ■ Sem krakki var Jóna Dóra nokkuð glaðlynd og nlóturmild og frekja ef því var að skipta. ■ Jóna Dóra var eina dóttirin ó heimilinu og þar af leiðandi í sérstöku uppóhaldi hjó föður sínum. ■ »Þegar hún kom fyrst með Guðmund Arna leist honum ekkert ó hann. . ." ■ Jóna Dóra var mikill nómshestur og hafði ekkert fyrir því að læra. um mislíkar eitthvað. „Maður verður að passa sig. En hann er líka fljótur niður. Ég vara mig á því ef það er eitt- hvað sem gæti hugsanlega gert hann brjálaðan. Þá sleppi ég því frekar að tala við hann því ég nenni ekki að standa í svona upphlaup- um. En hann erfir aldrei neitt við mann. Hann er ofsalega skemmtilegur og mikill húm- oristi. Hann er alltaf tilbúinn að sjá húmor í öllu. Þetta er bara fínn bróðir sem ég á.TJ 3. TBL. 1995 VIKAN 15 BERNSKUMINNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.