Vikan - 20.03.1995, Blaðsíða 21
og Robert Zemeckis varð-
andi myndina „Forrest
Gump“ en þau tók ég síðast-
liðið haust í Norður-Frakk-
landi. Myndin hefur nú verið
útnefnd til Óskarsverðlaun-
anna sem besta mynd árs-
ins, Tom Hanks sem besti
karlleikarinn í aðalhlutverki,
Uma Thurman mætti með
dökk sólgleraugu á fund
blaöamanna í Cannes.
Robert Zemeckis sem besti
leikstjórinn, auk þess fékk
myndin ellefu aðrar tilnefn-
ingar til Óskarsverðlauna,
eða þrettán alls.
Breska kvikmyndaaka-
demían hefur einnig útnefnt
„Forrest Gump“ til verðlauna
sem bestu myndina, Hanks
sem besta karlleikarann og
Zemeckis sem besta leik-
stjórann svo eitthvað sé
nefnt. Hefur myndin verið
sýnd í Sambíóunum og Há-
skólabíói.
Ég talaði við Krzysztof
Kieslowski í Cannes en
hann hefur nú verið útnefnd-
ur til Óskarsverðlaunanna
sem besti leikstjórinn fyrir
myndina „Rouge" eða Rauð-
ur. í einu aðalhlutverki henn-
ar er Iréne Jacob en hún
hlaut Gullpálmann árið 1992
sem besta leikkonan fyrir
leik sinn í myndinni Tvöfalt líf
Veróníku.
Það vildi svo skemmtilega
til að ég tók tvisvar sinnum
viðtal við hana, fyrst um voriö
fyrir Vikuna í Cognac hérað-
inu vegna „Rouge“ og síðan
sjónvarpsviðtal við hana í
Cannes vegna sömu myndar.
Breska kvikmyndaaka-
demían útnefndi hana sem
bestu leikkonu ársins fyrir
leik sinn í Rauðum, einnig
Kieslowski sem besta leik-
stjórann og svo var hann
einnig útnefndur fyrir besta
upprunalega handritið.
Myndin hefur verið sýnd hér
á landi í Háskólabíói.
Linda Fiorentino sat einnig
fyrir svörum hjá mér en
Breska kvikmyndaakadem-
ían tilnefndi hana sem bestu
leikkonu ársins í aðalhlut-
verki fyrir leik sinn í myndinni
„Last Seduction". Lindu hitti
ég á strandhóteli síðastliðið
haust í Norður-Frakklandi.
Henni fannst hún ekki
nógu vel til höfð, hafði verið
lasin þannig að hún frábað
sér allar myndatökur í það
skiptið.
Að lokum má kannski geta
þess að í Cannes náði ég að
hitta „drag“drottningahópinn
úr myndinni Priscilla, drottn-
ing eyðimerkurinnar sem
sýnd hefur verið í Háskóla-
bíói.
Þarna á baðströndina
voru meðal annarra mættir
Terence Stamp, sem var út-
nefndur af bresku aka-
demíunni sem besti karlleik-
arinn í aðalhlutverki, og
Hugo Weaving sem ég hafði
hitt árinu áður vegna mynd-
arinnar „Freauds" með Phil
Collins í aðalhlutverki.
Stilltu drottningarnar sér
upp á ströndinni og fékk ég
að smella nokkrum myndum
af þeim í hinum ýmsu stell-
ingum," segir Þorsteinn.
DENNIS HOOPER:
„Dennis hitti ég í kastala
þar sem hann bjó en það tók
um hálfa klukkustund að aka
þangað. Ég hef lengi kunnað
vel að meta Hooper en hann
Dennis Hooper og Patricia
mæta prúóbúin til hátióar-
kvöldveröar.
er orðin nokkuð fastur í hlut-
verki brjálæðinga. Þeir, sem
hann leikur, eru misklikkaðir
og sumir geta jafnvel verið
það sem kalla má skemmti-
lega klikkaðir.
Dennis sagði mér að hann
væri hættur öllu sukki eins
og hann var frægur fyrir og
þáði ekki einu sinni af mér
eplasafa með gosi í því hon-
um fannst hann skuggalega
líkur bjór. Hann sagði að allir
þeir listamenn, sem hann
hefði litið mest upp til hvort
sem þeir hefðu verið listmál-
arar, rithöfundar, tónlistar-
menn eða jafnvel leikarar,
hefðu notað meira og minna
hin ýmsu vímuefni og þess
vegna hefði sér fundist það
góð afsökun fyrir sig að gera
slíkt hið sama. Þetta hefði
hinsvegar keyrt langt úr hófi
fram hvaö sig varðaði og því
væri hann steinhættur.
Hann var með unga og
fagra konu upp á arminn,
Patriciu að nafni, sem mér
gafst tækifæri til að tala við
og mynda.
Þess má geta að Dennis
og Jack Nicholson hafa lengi
verið góðir vinir en sá síðar-
nefndi hefur einnig verið ið-
inn við kolann hvað fíkniefni
varðar."
SEAN YOUNG:
„Sean var í dómnefnd á
kvikmyndahátíðinni í Cogn-
ac í fyrra vor. Hún er nokkuð
aölaðandi kona og sá ég
hana reglulega þá sjö daga
sem við vorum þarna sam-
an. Það gat verið í bíó, mót-
töku á daginn eða á veit-
ingahúsi á kvöldin.
Eg náði að rabba við hana
stutta stund og þá barst talið
að Hollywood almennt og
síðan aðeins að sambandi
hennar og leikarans James
Woods.
Hún er meðal annars fræg
fyrir að hafa gefið út þá yfir-
lýsingu að vera ekki tilbúin til
að sofa hjá leikstjórum til
þess eins að fá hlutverk í
myndunum þeirra. Vakti
þetta mikla athygli vestan
hafs og reiði leikstjóra. Hún
hefur verið sökuð um að
senda James Woods vúdú-
dúkkur ásamt því að reyna
að gera honum ýmsa skrá-
veifu.
Það verður að játast
vildi ekki taka þá áhæi
spyrja James út í
ásakanir þegar ég áfi
viðtal við hann smstiiðið
haust enda var kannski ann-
að og mikilvægara/um að
ræða.
Ég var þess heiðum
njótandi að taka snúning
með Young eftir galakvöld-
verö síðasta kvöld hátíðar-
innar.“
Terence
Stamp
og
drottn-
ingarnar
í Pricillu
stilla sér
upp fyrir
Þorstein
á ströndu
Cannes.
uvEinin ihkaniinu:
„Quentin er mjög sérstak- og^slln*
ur persónuleiki og öllum, Young bar
sem heyrðu til hans í Cann- regiuiega
es, er vafalaust í fersku saman'
minni sérstæður og
skemmtilegur hlátur hans.
3. TBl. 1995 VIKAN 21
KVIKMYNDIR