Vikan - 20.03.1995, Side 41
STJÖRNUSPÁ FYRIR APRÍL
HRUTURINN
21. mars - 20. aprfl
Stjörnurnar eru þér ekkert
sérlega hliðhollar um þessar mundir.
Staða mála, eldri sem yngri, er í
ágætum skorðum en nýjabrum held-
ur fátítt. Tækifæri til frama i starfi
liggja í láginni og rólegheit í rómant-
ísku deildinni. Tálsýnir kunna að
birtast þér með einhverjum hætti en
vitaskuld eru þær haldlitlar. Örvæntu
þó ekki því árið er í heild örlagaríkt
og það, sem kann að virðast hverf-
andi núna, mun snúa aftur og þá
betra. Eftir 21. skaltu gefa því gaum
sem þá kallar á athygli þína, frekar
en huga að framtíðinni.
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Umrót af ýmsu tagi kann að
gera vart við sig. Þú skalt ekki kippa
þér upp við það. Umrótið er þvert á
móti hluti af ferli sem til lengri tíma
litið mun færa þér aukið frelsi. Hvort
tveggja á þetta við um ýmislegt i
einkalífinu og í starfi sem hingað til
hefur haldið aftur af þér. Þegar þú
efast um þína eigin verðleika skaltu
veita athygli kostum þínum en láta
annað liggja milli hluta. Hugaðu hik-
laust að líkamlegri velferð þinni og
mundu að væntanlegar breytingar
munu gera kröfur til þín en eru fyrir-
hafnarinnar virði.
TVl'JURARNIR
22. maí - 22. júní
Töluverðar hræringar eru í
tvíburamerkinu að því leyti sem snýr
að félagsskap. Þetta leiðir af sér ert-
iðleika í samskiptum og krefst þess
að málin séu dregin upp á yfirborðið
og rædd. Ekki er ráðlegt að leita
neinna varanlegra úrlausna. Af
þessu muntu væntanlega geta dreg-
ið þann lærdóm að gamlir og góðir
draumar geta úrelst eins og annað.
Þar af leiðandi neyðistu til þess að
endurskoða þær hugmyndir sem þú
hefur hingað til gert þér um það
hvað og hver gæti fært þér mesta
hamingju.
KRABBINN
23. júní - 23. júlí
Athafnagleðistjarnan Mars
hefur nú töluverð áhrif á krabbana
og hið fjörmikla hrútsmerki einnig.
Þetta leiðir af sér töluvert alvarlegt
ástand sem er þó ekki að öllu leyti
réttlætanlegt. Framkvæmdu það
sem virðist auðvelt að afgreiða en
láttu annað mæta afgangi þar til eftir
tunglmyrkvann þann sautjánda en
hann veitir þér svigrúm til breytinga
bæði í vinnu og lifnaðarháttum.
Þegar þú hefur gert þér grein fyrir
öllum takmörkunum skaltu taka
ákvarðanir. Hafðu þá i huga að það
er alveg sama hvað þú ákveður, á
þvi hlýtur einhver að sjá einhverja
annmarka.
UÓNIÐ
24. júlí - 23. ágúst
Frá því að sólin kom inn í
hið tápmikla hrútsmerki hefurðu vit-
að að nú sé lag. Og ýmis atvik í
aprílmánuði munu staðfesta þessa
tilfinningu. Samt sem áður skaltu
vara þig á því að ofmetnast ekki.
Annarra ráð eru þér dýrmæt eftir
sem áður og þú skalt hafa það i
huga að sumu færðu því einfaldlega
ekki breytt og ýmsar skuldbindingar
varðandi einkahagi þína eða fjöl-
skyldunnar verður þú einfaldlega að
virða, sama á hverju gengur. í
þessu felst að þú gætir fyrirvaralítið
VOGIN
24. sep. - 23. okt.
Þú lendir að öllum líkindum í
því að þurfa að draga línu milli
þeirra atriða sem snúa að þér ann-
ars vegar og hins vegar þeirra sem
aðrir bera ábyrgð á. Þá er auðvelt
að lenda á villigötum vegna þess að
fyrst i stað kann þér að virðast verk-
efnið erfitt sökum ríkrar samkennd-
ar. Þá mun Venus ásamt Satúrnusi
herja á þig og í kjölfarið kemur
tunglmyrkvi í merkinu þín þann
sautjánda. Staðan mun gera þér
kleift að sjá vandamálin í réttu Ijósi.
Freistandi virðist þá að sleppa öllu
Hrútar: Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands 15.4., Björgvin
Halldórsson söngvari 16.4., Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur
30.4., Sigurður A. Magnússon rithöfundur 31.3., Bogi Ágústsson
fréttastjóri 6.4., Geirmundur Valtýsson tónlistarmaóur 13.4., Indr-
iði G. Þorsteinsson rithöfundur 18.4., Sigurður Hreiðar Jónsson
ritstjóri 28.3., Jón Múli Árnason útvarpsmaður 31.3. og Sigurður
Karlsson leikari 25.3.
þurft að sinna óþægilegum málum
en sjálfsöryggið ætti að gera þér
auðveldara fyrir við að ráðast á
garðinn.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Nýttu þér bjartsýni þá sem
fólgin er í stöðu stjarnanna snemma
í mánuðinum. Líttu sérstaklega til
þeirra sambanda eða aðstæðna
sem eru líkleg til þess að gefa þér
eitthvað í aðra hönd. Það mun auð-
velda þér að bregðast með skjótum
hætti við ábatasömum tækifærum
um miðjan mánuð. Eftir það skaltu
líta þér nær því þá fer Þlútó, stjarna
ástríðu og umbreytinga, að hafa
áhrif. Það, ásamt öflugum tungl-
myrkva, elur af sér sjaldgæft færi á
að grafa hið liðna og opna faðminn
fyrir framtíðinni.
saman en bregðistu engu að síður
skjótt og ákveðið við muntu fljótlega
sjá hlutina í rökréttu samhengi.
SPORDDREKINN
24. okt. - 22. nóv.
Sinntu þeim hlutlægu mál-
um sem máli skipta, svo sem starf-
inu, fjármálunum og líkamlegu heil-
brigði áður en tungl myrkvast þann
sautjánda. Þannig muntu eiga auð-
veldara með að bregðast við ýms-
um tækifærum sem aðrir munu
koma á framfæri við þig. Eins muntu
eiga auðveldara með að skoða þinn
innri mann og eigin áhugasvið. Eftir
að Plútó kemur inn í merkið mun
spenna innan fjölskyldunnar gera
vart við sig á nýjan leik. Ástandið er
að þessu sinni tímabundiö og þú
gerir þér grein fyrir að enginn og
ekkert mun nokkru sinni hafa samt
tak á þér hér eftir.
BOGMAOURINN
23. nóv. - 21. des.
Staða stjarnanna, og þá
ekki síst Júpíters, munu valda því
að þér eykst verulega bjartsýni og
ýmsar hindranir sem áður virtust
verulegar þykja þér nú smávægileg-
ar. En túlkaðu þetta ekki sem óskil-
yrta ávisun á ótakmarkaða vel-
gengni. Þetta firrir þig heldur ekki
þeirri skyldu að sinna ýmsum tíma-
frekum smáatriðum. Afgreiddu mál-
in um leið og þau koma upp. Síðan
geturðu sinnt einkalífinu. Myrkvaður
máni þann sautjánda merkir kaflask-
il í lífi þínu.
STEINGEITIN
22. des. - 20. janúar
Mánuðurinn, sem fer í
hönd, verður einstaklega flókinn í
framkvæmd. Til þess að þér þyki
þú vera við stjórnvölinn máttu ekki
bíða með mikilvægar ákvarðanir.
Þær þarf að taka snemma í mán-
uðinum. Þetta mun auðvelda þér
að nýta þá möguleika sem í boði
verða í kjölfar tunglmyrkvans þann
sautjánda. Þar sem myrkvinn hefur
áhrif, bæði á einkahagi þína og
starf, þá verður þessi tími ákjósan-
legur til þess að hnika til takmörk-
unum sem hingað til hefur verið
erfitt að bifa. Jafnvel þótt það
kunni að reynast erfitt að gera upp
við fortíðina þá mun það leiða til
þess að í staðinn taki við margt
nýtt og betra en það sem tilheyrði
henni.
VATNSBERINN
21. janúar -19. febrúar
í aprílmánuði mun framtíðin
virðast blómleg með afbrigðum
þannig að þú munt jafnvel sjá
vandamál innan fjölskyldunnar í
nýju og bjartara Ijósi. Úranus kemur
inn í vatnsberamerkið í annað sinn
á öldinni og verður til þess að draga
úr efasemdum og styrkja þig í trú
þinni. Gríptu tækifæri sem kunna að
gefast kringum þann fjórða og þú
munt aldrei iðrast þess. Þú ert á sig-
urbraut en leiðin er bæði löng og
ströng. Túlkaðu ekki afturkippi
þannig að þér hafi mistekist ætlun-
arverkið og þú munt að lokum ná
markmiðum þínum.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Peningar eru ekki allt en
þeir auðvelda manni ýmislegt. f
þessum mánuði gefst þér færi á að
hagnast á færni þinni og fyrri verk-
um. Vandamál og andstæðingar eru
til þess að sigrast á þeim. Tungl-
myrkvi i mánuðinum markar þátta-
skil og þrátt fyrir erfiða stöðu mun
þér takast að losa um viðvarandi
hömlur. Hins vegar mun þér reynast
mun meiri akkur af því en fjárhags-
legur að takast á við vandræði í
einkalífinu.
3. TBL. 1995 VIKAN 41
STJORNUSPA