Vikan - 20.03.1995, Qupperneq 50
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
Vegna þess hvaö mörg bréf hafa safnast upp frá þolur-
um ofbeldis er brugðiö á þaö ráö aö reyna aö svara þeim
flestum með þessari einu umfjöllun. Hún er ekki niður-
staöa fræöimanns heldur lýsir hún fyrst og fremst sjón-
armiðum og hugmyndum ofbeldisandvígs einstaklings
sem skoöar ofbeldi út frá þeim ömurlegu staöreyndum
sem böliö segir til um í samfélaginu. - Áhyggjur bréfrit-
ara, sem flestir eru kvenkynsþolarar, eru augljósar, ekki
síst í Ijósi þess að konurnar sjá sennilega fæstar fram á
breytingar á skuggalegum staðreyndum þess ofbeldis
sem jafnvel lífsförunautar þeirra bjóöa þeim upp á. -
Konurnar eru á öllum aldri, sú elsta um áttrætt en sú
yngsta er rúmlega þrettán ára þolari heimilisofbeldis.-
Þaö er þó rétt aö það komi fram aö til okkar hafa líka
borist bréf frá karlkynsþolurum ofbeldis og þá ungum
drengjum sem jafnvel eru kúgaðir og baröir af sínum
nánustu,vinum og skólafélögum. Eins hafa borist bréf
sem lýsa hrottalegum árásum ókunnugra á þolara of-
beldisódæða almennt.- Vonandi sættast allir, sem hafa
skrifaö til okkar, á að þetta fyrirkomulag sé heppilegt í
þessu sérstaka tilviki sökum umfangs bréfanna. Best er,
eins og reynt verður áfram, að svara hverju bréfi fyrir sig
en þá má umfjöllunarefnið ekki vera eins skylt og þaö er
i öllum ofbeldisbréfunum.
Alvarleg ofbeldisplága
hefur of lengi farið með of-
forsi og ógn yfir þjóðfélagið
og leikið bæði menn og
málleysingja grátt. Eins og
mörg átakanleg dæmi
sanna er ofbeldisfárið
meira en uggvænlegt auk
þess sem það ber keim ein-
hvers konar siðbrjálæðis-
.Það, sem vekur framar
öðru óhug og furðu flestra-
,er sú dæmalausa stað-
reynd að í hópi ofbeldis-
ógnara nútímans, eru jafnt
ungir sem aldnir. Þeir, sem
sætta sig ekki við sam-
skiptaspellvirki ódæðis-
hrellanna, óska þess heitt
og af ákveðni að uppræta
megi sem skjótast og af afli
ofríkishryllinginn úr samfé-
lagssálinni því það væri í
raun allra hagur.
AFBRIGÐILEGT ATHÆFI
Börn og unglingar hafa í
meiri mæli en áður tekið upp
ódæðisatferli ofbeldisó-
drengja, öllum unnendum
friðsamlegra samskipta til
undrunar og kvíða. í sam-
tímanum erum við því ekki
einungis að kljást við af-
brigðilegt athæfi fullorðinna
ofbeldisómenna heldur líka
ungmenna sem sek eru um
freklegan fantaskap og of-
beldisillvirki líkum þeim sem
eldri ódæðisníðar ástunda.
Það er sárt ef ungt fólk tekur
þennan ósið.af öllum, upp úr
farteski fullorðinna til að nota
í neirænum tilgangi.
50 VIKAN
3. TBL. 1995