Vikan - 01.05.1996, Síða 8
Aö lokinni
krýningar-
athöfninni á
Hótel íslandi
í fyrra. Á bak
viö stúlkurn-
ar, sem röö-
uöust í þrjú
efstu sæti
keppninnar,
stendur Þór-
unn Lárus-
dóttir fram-
kvæmda-
stjóri keppn-
innar 1995 og
dómnefnd
keppninnar.
Á myndina
vantar Egil
Ólafsson
dómara.
Hvaö langar þig til að
eignast mörg börn? „Mig
hefur alltaf langaö til þess aö
eignast þrjú börn.“ Hvers
vegna? „Mér finnst þaö bara
vera mjög góö tala. Og ég
hef alltaf sagt aö mig langaði
fyrst til þess aö eignast strák
en síðan tvær stelpur."
Ertu rómantísk? „Ég er
rosalega rómantísk. Og
maðurinn minn yrði að vera
þaö líka.“ Rómantíkin kemur
fram í vali Hrafnhildar á tón-
list og bókum. „Þótt ég sé al-
æta á tónlist þá elska ég
væmin ástarlög. En þegar
ég fer út aö skemmta mér þá
hef ég mjög gaman af dans-
tónlist. Svo hef ég voðalega
gaman af ástarsögum. Eg
hef líka gaman af aö lesa
um dulræn málefni." Hefurðu
farið á miðilsfund? „Nei.“
Langar þig til þess? „Já, ég
væri til í að gera það í fram-
tíðinni en ég held að ég sé
ekki tilbúin til þess strax.“
„FÓLK ER SVO
HUGSUNARLAUST"
Ef þú fengir það hlutverk
að skipuleggja fyrir yfirvöld
aðgerðir gegn útbreiðslu al-
næmis, hvernig mundir þú
skipuleggja starfið? „Ég
myndi kynna þetta betur.
Mér finnst nefnilega vanta
almenna fræðslu í skólunum
fyrir hópinn sem er að verða
kynþroska og er að byrja að
stunda kynlíf. Það þarf aug-
lýsingaherferð um hvað al-
hleyp ómáluð út í sjoppu. Og
ég reyni að vera fyrirmynd í
því sem ég tek mér fyrir
hendur.“ Hugsaðirðu líka
mikið um föt áður en þú
varst kjörin fegurðardrottning
íslands? „Já, ég hef alltaf
verið rosalega mikil fatafrík,"
segir Hrafnhildur og hlær.
„Ég held að allur sá peningur
sem ég hef unnið mér inn
hafi farið í föt. Ég hef yfirleitt
gaman af tísku." Hver er
þinn stfll? „Ég er með mjög
fjölbreyttan fatasmekk. Ég á
Hrafnhildur
eftir aó hafa
veriö kosin
Forsíóu-
stúlka Sam-
úels 1995.
Sigri Hrafn-
hildar í for-
síóukeppni
Samúels
1994 fylgdi
þátttökurétt-
ur i keppni
Hawaiian
Tropic á Flór-
ida. Hér sést
Hrafnhildur
ásamt tveim
öörum þátt-
takendum
forsíöu-
keppninnar í
félagsskap
Ron Rice eig-
anda Hawaii-
an Tropic.
nokkurn veginn allt. Ég á gróf
stigvél, ég á töffaraföt, ég á
klassísk föt, ég á gelluföt og
ég á plastbúninga. Mér finnst
gaman að skipta um gervi.
Stundum langar mig til þess
að vera fín og þá fer ég í
draktina mína. Stundum lang-
ar mig til þess að vera pæja
og þá fer ég í plastfötin."
ER RÓMANTÍSK
Það vakti athygli í fyrra-
haust þegar Hrafnhildur fór í
forsíðuviðtal Mannlífs ásamt
fótboltakappanum Arnari
Gunnlaugssyni þegar þau
voru nýbyrjuð að vera saman.
Sambandinu lauk nú í vor.
Fannst þér ekkert vont að fara
í viðtal með honum þar sem
þig voruð búin að vera saman
í svona stuttan tíma? „Málið
er að þetta áttu að vera
greinar um ungu kynslóðina
og við vorum beðin um að
koma í viðtal í sitthvoru lagi.
En þegar það komst upp að
við vorum eitthvað að dúlla
okkur saman var ákveðið að
taka viðtal við okkur bæði
samtímis. Það voru kannski
mistök hjá okkur. Það bók-
uðu okkur nefnilega allir sem
par og héldu jafnvel að við
værum trúlofuð; sem við vor-
um innilega ekki. En samt
var þetta skemmti-
legt.“ Hefurðu stund-
um samband við
Arnar? „Já.“ Hefurðu
fundið einhvern ann-
an? „Nei.“
Hvernig er
draumaprins feg-
urðardrottningar ís-
lands? „Það væri
ekki verra að hann
væri myndarlegur
og ég mundi vilja að
hann væri hreinskil-
inn og heiðarlegur.
Hann þarf náttúr-
lega að vera skemmtilegur,
geta komið mér til að hlæja
og látið mér líða vel. Og mig
langar til að finnast ég vera
ég sjálf þegar ég er með
honum en þurfa ekki að vera
með einhverja uppgerð eða
stæla. Ég vil að hann komi
hreint og beint fram en þurfi
ekki að vera með einhverja
töffarastæla eða leiki eins og
er svo algengt í dag.“
næmi er og hvernig það
smitast." Ræða kunningjar
þínir og jafnaldrar mikið um
alnæmi? „Það er náttúrlega
rætt um sjúkdóminn en
margir virðast ekki fara var-
E lega. Það eru nefnilega
margir sem stunda skyndi-
” kynni án þess að nota verjur.
^ Fólk er svo hugsunarlaust.
| Það heldur að það smitist
ekki sjálft.“
Ertu trúuð? „Ég get ekki
sagt það. En ég trúi á hið
góða og ég trúi líka á hið illa.
Ég ætti kannski að gera
meira af því að fara í kirkju
en maður þarf ekkert að fara
í kirkju til þess að vera trú-
aður.“
ER FEIMIN INN VIÐ
BEINIÐ
Farsíminn á borðinu bíður
eftir því að einhver hringi í
Hrafnhildi - eða að hún hringi
í einhvern. Senn líður að því
að hún máti undirfötin. Finnst
þér ekkert erfitt að sýna und-
irföt? „Ekki ef ég er í góðu
formi,“ segir hún og hlær. „En
mér finnst ekkert öðruvísi að
sýna undirföt og önnur föt ef
ég er nógu ánægð með sjálfa
mig. En auðvitað er maður
heftari þegar maður er að
sýna undirföt." Þýðir nokkuð
að vera feiminn í þessu
starfi? „Nei,“ segir fegurðar-
drottning íslands ákveðin.
„Góð fyrirsæta á að geta sýnt
allt.“ Hefurðu aldrei verið
feimin? „Ég er mjög feimin
inn við beinið. En ég reyni að
fela það. Áður fyrr var ég
mjög óframfærin og var alltaf
að hugsa um hvað aðrir
héldu um mig.“
Finnst þér þú hafa breyst
eitthvað á þessu ári sem þú
hefur borið titilinn Fegurðar-
drottning íslands? „Eg hef
lært mikið á þessu ári. Ég
hef fengið tækifæri til þess
að komast í gott form og ég
hef lært að koma fram þótt
ég hafi reyndar starfað við
tískusýningar áður. Þetta
gefur manni líka mikið I sam-
bandi við að kynnast nýjum
þjóðum, menningum og sið-
um. Þetta er búið að vera al-
veg frábært og þetta er ótrú-
legt tækifæri sem stúlkum er
gefið. Og þetta er náttúrlega
góð auglýsing fyrir mann
sjálfan og ég er þakklát fyrir
að hafa fengið þetta tæki-
færi. Þetta ár er bara búið að
vera yndislegt." □
8 VIKAN 2. TBL. 1996