Vikan - 01.05.1996, Page 76

Vikan - 01.05.1996, Page 76
Hægt er að mála sig þannig að andlitið hreinlega breytist(eða sýnist breytt). Hér er sagt hvaða tækni hægt er að beita við málninguna til að fela eða laga það sem gæti verið betra. Flest okkar hafa einhver lýti, að okkur finnst, sem við vildum gjarnan vera án. En þegar áhersla er lögð á það, sem er gott, þá ber um leið minna á göllun- um og það er hægt að gera enn betur með því að leggja áherslu á að fela eða laga annað sem okkur líkar ekki (dökka bauga, freknur, lítil augu, þunna efri vör). Þegar verið er að reyna að breyta andlitslaginu með dökkum lit þá getur það virk- að vel á mynd en sjaldnast í raunveruleikanum. Þó er hægt að leggja áherslu á enni og kjálka til að láta and- litsfallið sýnast öðruvísi en það er í rauninni. ENNI: Toppur getur hulið mjög hátt enni. Liðað hár, sem fellur meðfram vöngunum, dregur úr breiðu andlitslag- inu. Viljirðu ekki hafa hárið í andlitinu þá er hægt að forma andlitið með'ljósbrún- um kinnalit. Breitt enni virkar mjórra ef settur er brúnn litur til hliðanna. Hátt enni má lækka með því að setja dálít- iö af kinnalit meðfram hárs- rótinni. Öll skil verður að mýkja með bómullarhnoðra, þannig að aðeins votti fyrir skugga sem dregur úr breiðu og háu enninnu. ÁHERSLA Á AUGUN: Augun eru sá hluti andlits- ins sem vekja yfirleitt mesta athygli. Myndirnar hér á síð- unni af augum fyrir og eftir málningu ættu að sýna og sanna að öll augu geta verið falleg og sýnst stærri og fal- legar löguð en þau eru frá náttúrunnar hendi. Breitt bil á milli augnanna og falin augnlok: Það þykir fallegt að hafa gott bil á milli augnanna, en stundum er bil- ið of breitt. Setjið reyklitaðan skugga á augnlokin og látið FYRIR EFTIR hann koma langt inn í augn- krókinn i áttina að nefinu. Þannig virðist bilið minna. Á myndinni hér sést munurinn. 76 VIKAN 2. TBL. 1996

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.