Vikan - 01.05.1996, Síða 76
Hægt er að mála sig þannig að andlitið
hreinlega breytist(eða sýnist breytt).
Hér er sagt hvaða tækni hægt er að
beita við málninguna til að fela eða laga
það sem gæti verið betra.
Flest okkar hafa einhver
lýti, að okkur finnst,
sem við vildum gjarnan
vera án. En þegar áhersla er
lögð á það, sem er gott, þá
ber um leið minna á göllun-
um og það er hægt að gera
enn betur með því að leggja
áherslu á að fela eða laga
annað sem okkur líkar ekki
(dökka bauga, freknur, lítil
augu, þunna efri vör).
Þegar verið er að reyna
að breyta andlitslaginu með
dökkum lit þá getur það virk-
að vel á mynd en sjaldnast í
raunveruleikanum. Þó er
hægt að leggja áherslu á
enni og kjálka til að láta and-
litsfallið sýnast öðruvísi en
það er í rauninni.
ENNI:
Toppur getur hulið mjög
hátt enni. Liðað hár, sem
fellur meðfram vöngunum,
dregur úr breiðu andlitslag-
inu. Viljirðu ekki hafa hárið í
andlitinu þá er hægt að
forma andlitið með'ljósbrún-
um kinnalit. Breitt enni virkar
mjórra ef settur er brúnn litur
til hliðanna. Hátt enni má
lækka með því að setja dálít-
iö af kinnalit meðfram hárs-
rótinni. Öll skil verður að
mýkja með bómullarhnoðra,
þannig að aðeins votti fyrir
skugga sem dregur úr breiðu
og háu enninnu.
ÁHERSLA Á AUGUN:
Augun eru sá hluti andlits-
ins sem vekja yfirleitt mesta
athygli. Myndirnar hér á síð-
unni af augum fyrir og eftir
málningu ættu að sýna og
sanna að öll augu geta verið
falleg og sýnst stærri og fal-
legar löguð en þau eru frá
náttúrunnar hendi.
Breitt bil á milli augnanna
og falin augnlok: Það þykir
fallegt að hafa gott bil á milli
augnanna, en stundum er bil-
ið of breitt. Setjið reyklitaðan
skugga á augnlokin og látið
FYRIR
EFTIR
hann koma langt inn í augn-
krókinn i áttina að nefinu.
Þannig virðist bilið minna. Á
myndinni hér sést munurinn.
76 VIKAN 2. TBL. 1996