Vikan - 01.05.1996, Page 82
Brynjar Örn Porleifsson, sem er fimmtán ára nem-
andi í Árbæjarskóla, sigraði nýlega í unglinga-
módelkeppninni Ung ’96. í apríl síöastliðnum
vann hann bæði gull- og bronsverðlaun í alþjóð-
legri keppni í samkvæmisdönsum í Englandi.
lann er myndarlegur,
rúmlega 1.70 m á
Ihæö og á eftir að
stækka meira. Hann er að
lesa undir samræmdu prófin
þegar blaðamaður Vikunnar
sækir hann heim. Hann ætl-
ar ekki að sleppa tveggja
tíma dansæfingu þá um dag-
inn þrátt fyrir próflesturinn.
Brynjar Örn var fimm ára
þegar hann steig fyrstu spor-
in í dansskóla. Það voru af-
drífarík spor. Sesselja Sig-
uröardóttir er búin að vera
dansfélagi hans síðan hann
var sex ára. „Við erum eins
og systkini."
„Okkur gekk best í suður-
amerísku dönsunum í
keppninni í Englandi," segir
hann en fyrir sömbuna og
djævið fengu þau gullið.
„Þegar manni gengur svona
vel í danskeppni þá er þetta
það skemmtilegasta sem
maður gerir. Þetta er
líka síðasta ár-
ið sem ég
kemst í
þessa keppnr
þannig að það er gaman að
enda þetta svona." Brynjar
Örn segir aö dansinn sé
ótrúlega dýrt dæmi.
„Eimskip hefur styrkt
okkur mikið í sam-
bandi við utan-
landsferðir og það
er aiveg meirihátt-
ar.“
Brynjar Örn
og Sesselja
hafa tekið
þátt í fleiri
dans-
keppn-
löndum
og þau
hafa farið út'
annan hvern mánuí
síðan í október á síð^
asta ári. -Þú vannsf
bæði módelkeppnina og^
vannst gullverðlaun í dans-
keppninni. Ertu svona góður
í öllu sem þú tekur þér fyrir
hendur? Hann hlær en
sleppir að svara. -Gengur
þér vel í skóla? „Já, mér
gengur ágætlega í skólan-
um.“ Hann tekur ekki þátt í
félagslífi í skólanum. Dans-
inn er ástæðan. „Þegar ég
kem heim úr skólanum fer
ég að læra. Síðan fer ég í
danstíma og svo heim að
sofa. Ég veit varla hvað það
er að slappa af og hafa það
gott.“ Dansinn tekur sinn toll.
„Ég get eiginlega aldrei hitt
vini mína. Það er svo mikiö
að gera.“
Það var móðir Brynjars
Arnars sem skráði hann f
Model 79 fyrir tveimur árum.
Síðan þá hefur hann leikið í
sjónvarpsauglýsingu þar
sem Heins tómatsósan er í
aðalhlutverki.
Keppendur [ Ung ’96 voru
þrjátíu og sex; tuttugu og
sex stelpur og tíu strákar. Út
á hvað gekk keppnin? „Þetta
var aðallega tískusýning og
við sýndum föt frá 17, Spútn-
ik og Kjallaranum." Verð-
launin sem Brynj-
ar Örn fékk voru
fataúttektir og
tveggja ára samning-
ur hjá Model 79. Það er
ekki erfitt fyrir hann að taka
þátt í tískusýningum hvaö
sviðsskrekk varðar. Hann er
nefnilega enginn. Dansinn
og danskeppnir í gegnum ár-
in sjá fyrir því.
Fylgistu mikið með tísk-
unni? „Ekkert sérstaklega,”
segir nýkrýnt unglingamód-
elið. Brynjar Örn segir þó aö
unglingar í dag reyni aö tolla
í tískunni. „Svo eru margir
sem reyna að vera sérstakir
í klæöaburði og öðruvfsi en
hinir.“
í sumar ætlar Brynjar Örn
að vinna á Edduhóteli í
Dýrafirði við ýmislegt snatt.
Næsta vetur ætlar hann f
menntaskóla. Framtíðar-
áformin eru enn á huldu
en hann segist alltaf hafa
viljað vera flugmaður.
Án efa flýgur hann í
gegnum það nám
þegar gengi hans
í öðrum greinum
er haft til hlið-
sjónar. □