Vikan - 07.05.1998, Qupperneq 7
„Ég þurfti bara þetta gamla dót sem sett var í gám heima og nokkrar myndir. Og síðan hefur verið alveg indælt að vera hérna.”
snjallt herbragð.” „Já, þeir
vilja þetta karlarnir en vita
bara ekki almennilega
hvernig þeir eiga að fara að
því,” segir Vigdís og brosir
sínu bjarta brosi sem heillað
hefur heimsbyggðina.
Margaret Thatcher og
karlarnir
„Mér fannst réttast að við
konur værum ekki að vinna
einar að þessum málum.
Karlar eru búnir að vinna
svo lengi einir saman, svo ég
stakk upp á því að við hefð-
um karla með okkur sem
ráðgefandi hópa. Og við
buðum körlum, fyrrverandi
toppmönnum, að vinna með
okkur. Þar eru meðal annars
Oskar Arias, Helmut
Schmidt, Giscard D’Estaing
og margir fleiri.”
Það lagðist vel í Vigdísi að
fara til Boston þar sem kon-
urnar, fyrrverandi þjóðar-
leiðtogar, ætluðu að halda
toppfund. „Þær verða allar
þarna,” „nema,” bætti hún
við og sló á létta strengi
„Margareth Thatcher ætlar
að bíða svolítið og ekki vera
með að sinni. Hún skrifaði
mér fallegt bréf, þakkaði fyr-
ir síðast og sagðist kjósa að
bíða. „I prefer to wait.” Og
Vigdís nær raddblæ hennar
og ensku svo vel að við-
staddir veltast um af hlátri
og það fer enginn varhluta af
því að hér er leikhúsmann-
eskja á ferð. Og aðspurð seg-
ir Vigdís „Nei, nei, hún er
ekkert kuldaleg. Hún bara
hefur ekkert gaman af að
vinna með kvenfólki, hún
Margrét. En hún kemur til
liðs við okkur þegar hún sér
hvaða karla við höfum
þarna. Hún kemur.”
Nefndin kemur til með að
fjalla um mannfjölgunina í
heiminum, hungur, styrjaldir
og fleiri alheimsmál.
Eftir þennan fund fyrrum
kvenþjóðarleiðtoga í Boston
liggur leið Vigdísar til Rio de
Janeiro, þar sem henni er
boðið að vera á fundi fyrrum
karlþjóðarleiðtoga en þau
samtök nefnast „Inter-Act-
ion Council”.
Því næst liggur leiðin til
Rómar í Club de Budapest,
þar sem Vigdís á að tala um
umhverfismál og framtíðar-
sýn. Og þar eru miklir mekt-
armenn eins og Dalai Lama,
Vachlav Havel, Elia Wisel,
von Weitzecter, Peter
Ustinov og fleiri í heiðurs-
ráði með Vigdísi. Meðal
verkefna þeirra er að veita
verðlaunin „Planetary
consciousness” sem veitt eru
7