Vikan - 17.12.1998, Page 4
f/uv/v
/c'fS'Uftí/f ...
„í livað á ég að fara?" Það er sama hvað
fataskápurinn er troðfullur, hvað konan er
gömul og hvort hún hefur yfirhöfuð áhuga
á fötum, allar konur lenda í því þegar fara
skal í veislu, að vita ekkert í hvað þær eiga
að fara. Fram undan er tími nýársfagnaða,
árshátíða og fleiri skemmtana og þá er gott
að hafa tímann fyrir sér þegar velja á
sparikjól. Vikan fékk því fjórar fallegar
stúlkur, sem starfa hjá Eskimo módels, til
að sýna brot af því sem verslanir í
Reykjavík hafa upp á að bjóða fyrir konur
sem vilja vera virkilega flottar. Og það er
ánægjulegt að hægt skuli vera að fá
sparikjóla í öllum verðflokkum. Þeir þurfa ekki að vera svo dýrir, málið er bara að leita
vel. Síðir kjólar og annar fallegur sparifatnaður eru enginn hégómi, það er hluti af því
að vera siðmenntuð manneskja að spá í útlit sitt og klæðnað. Ósjálfrátt laðast maður að
fólki sem er snyrtilegt og hugsar vel um útlit sitt. Og þó að börnum finnist langbest að
vera í léttum leik- eða íþróttafötum þá er ég harðákveðin í því að þeim sé nauðsynlegt
að klæðast sparifötum við viðeigandi tækifæri. Það er hluti af því að læra að kunna sig.
Lífið er leikhús og börn og fullorðnir þurfa viðeigandi búninga fyrir hin ólíkustu
hlutverk. Vonandi hafið þið gaman af því að skoða kjólana sem við völdum og sjást á
bls. 6-11. En bitastætt lesefni er auðvitað líka að finna á síðum Vikunnar.
Lífsreynslusagan á bls. 22 minnir okkur á að slaka á þrátt fyrir annríki í jólamánuðinum
og Margrét K. Sverrisdóttir kemur á óvart í viðtali á bls. 14. Þar greinir hún frá því að
þrátt fyrir að hafa oft verið á öndverðum meiði við föður sinn, hinn umdeilda
stjórnmálamann Sverri Hermannsson, í pólitík þá hafi hún ákveðið að ganga til liðs við
hans nýja flokk og bjóða sig fram í næstu kosningum. Ástæðurnar fyrir því af hverju
hún kúvendir og hellir sér nú út í pólitík rekur hún í viðtali við Þórunni Stefánsdóttur.
Sigríður Hannesdóttir,leikkona og skemmtikraftur, segir frá starfi sínu sem
skemmtanastjóri á Kanaríeyjum. Hún fær virðulegustu forstjóra til að bregða á leik og
taka þátt í allskyns sprelli, eins og sjá má á bls. 50. Dagur í lífi konu sem haldin er
sjúkdómnum lystarstoli er lesning sem kemur okkur við, bls. 44, enda er hér um
útbreiddan og alvarlegan, jafnvel lífshættulegan, sjúkdóm að ræða. Og hér er aðeins
fátt eitt upp talið af efni þessa tölublaðs.
Útgefandi
Fróði
Seljavegur 2,
Sírni: 515 5500
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Sími: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjóraf ulltrúi
Jóhanna Harðardóttir
Sími: 515 5637
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gísli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Grafískir hönnuðir
Ivan Burkni Ivansson
Njóttu Vikunnar
Ómar Örn Sigurðsson
Verð í lausasölu
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Kr. 399,-.
Verð í áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Jóhanna Haröardóttir Þórunn Stefansdóttir Björg Þorðardottir Ómar Örn ivan burkni
ritstjórafulltrúi biaðamaöur auglýsingastjóri Útlitsteiknari grafiskur hönnuður
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Áskriftarsími:
515 5555