Vikan - 17.12.1998, Síða 16
Þóra Gunnarsdóttir, eigandi Jóla-
hússins í Kópavogi stendur hér
með Bellsnickle, hinn þýsk- rúss-
neska. Hann er hér í séríslenskri
útgáfu og með snæuglu sem
ferðafélaga.
✓
trúleg stemmning og
alveg ekta. Eigand-
inn, Þóra Gunnars-
dóttir segist alltaf hafa verið
mikið jólabarn. Það er eflaust
skýringin á því að hún er búin
að opna Jólahúsið við Smiðju-
veginn í Kópavogi. Nú getur
hún lifað í sínum jólaheimi
allt árið og kippt okkur í jóla-
skap þegar okkur langar til.
„Jólin eiga að vera góð, já-
kvæð og full af brosi. Þau eru
alþjóðleg og koma ekki frá
neinum einum stað. Það er
líka alveg sama hvaðan þau
koma, þau eru bara jólin, há-
tíð allra".
Þetta er lífsskoðun Þóru og
hún lifir eftir henni. Alveg frá
því hún man fyrst eftir sér hef-
ur hún hugsað um jólin nánast
allt árið. Þau eru svona aftan
til í höfðinu á henni. Hún er
einkabarn og þar sem mamma
hennar var ekkert sérstaklega
gefin fyrir skreytingar þá fékk
16
Þóra að hafa frjálsar hendur
með jólaskreytingarnar á
heimilinu frá blautu barns-
beini. Meðan mamman bak-
aði skreytti Þóra húsið og
gerði það rausnarlega.
„Ég hef alltaf verið fremur
stórtæk í skreytingunum. Ég
er meira gefin fyrir skreyting-
ar en hreingerningar fyrir jól-
in. Ég lít þannig á að ef ein-
hver sér ryk hjá mér þá sé það
vegna þess að ég hef ekki
skreytt nóg," segir Þóra og
hlær hátt að jólasveinasið.
Jól alltárið
Hún byrjar að skreyta heima
hjá sér viku fyrir byrjun að-
ventu. Fyrst setur hún upp ljós
og kerti, síðan smá bætist við
og með hverju árinu bætist
jólaskraut í safnið. Þóra notar
enn sitthvað af jólaskrauti
sem hún bjó til sem barn og
hún blandar saman litum og
stíl og er alveg ófeimin við
það.
„Ég er samt ekki í glimmer-
deildinni, ég er meira gefin
fyrir náttúrulega hluti. Ég dá-
ist að fólki sem getur haldið
sig við einhvern einn lit á öllu
jólaskrauti, ég get það ekki
sjálf." Þóra segist vera allt árið
að undirbúa jólin, hún sé
handverksmanneskja og þeg-
ar hugmyndirnar fæðist drífi
hún strax í því að koma þeim í
verk. Hún sé að því allt árið
að framleiða jólavörur og
margar þeirra séu nú til sölu í
versluninni hennar.
En hvernig datt henni í hug
að stofna Jólahúsið, verslun
sem selur jólavörur allt árið?
„Þetta hefur eflaust alltaf
blundað í mér. Ég fékk rútu-
ferð um Evrópu í fermingar-
gjöf og í þeirri ferð kom ég í
þýskan smábæ, Ober
Ammengay, þar sem verið var
að setja upp jólaleik sem allir
bæjarbúar tóku þátt í. Þar
kom ég í jólabúð sem er í eigu
jólabúðakeðju í Þýskalandi.
Ég varð alveg heilluð af
jólastemingunni þar.
Svo leið og beið þar til ég
kom til Ameríku og lenti í 35
stiga hita inni í jólabúð. Ég
féll gersamlega í stafi og fór út
klyfjuð af jólaskrauti fyrir
$300. Eftir það varð ekki snú-
ið við. Við hjónin fórum svo
að skoða Jólahúsið fyrir norð-
an í fyrra og ákváðum að hella
okkur út í þetta hér í Kópa-
voginum. Við keyptum þetta
jólalega bjálkahús frá Finn-
landi og erum nú komin hing-
að í jólaskapi."
Safnaravömr
Þóra og eiginmaður hennar,
Grétar Sölvason, hafa komið
sér upp góðum samböndum