Vikan - 17.12.1998, Page 21
WEMA CENTRE í KENÝA
Wema Centre, sem er endurhæfingarstöð
fyrir ungar stúlkur sem hafa stundað vændi,
hóf starfsemi sína árið 1993. Hugmyndina að
endurhæfingarstöðinni átti kona nokkur sem
átti veitingastað í miðborg Mombasa og hafði
daglega fyrir augunum börnin á götunni fyrir
utan sem oftar en ekki unnu fyrir sér með
vændi. Hún byrjaði að hjálpa einu og einu
barni og byggði svo heimili sem getur hýst 100
börn. Þar er einnig veitt starfsþjálfun og lækn-
isþjónusta fyrir þá sem búa í nágrennnu. Öll-
um tiltækum fjármunum er nú varið til þess
að stækka heimilið og stel'nt er að því að geta
hýst þar 200 börn. Ungu stúlkurnar konta
beint af götunni en á heimilinu fá þær húsa-
skjól. fæði og klæði, læknishjálp. menntun,
verkþjálfun og ráðgjöf. Einnig er reynt að
hjálpa þeim senr eldri eru að stofnsetja t.d. lít-
il handiðnaðarfyrirtæki.
Heimilið safnar peningum til starfseminnar
með ýmsum hætti og mörg barnanna hafa
stuðningsmenn sem borga fyrir þau skóla-
gjöld.
íslendingar, sem nýlega voru á ferð í
Mombasa, skoðuðu heimilið og voru sam-
mála urn að þar færi frarn mikilvæg og góð
starfsemi. Stúlkurnar senr þarna búa eru á öll-
um aldri, því fyrir utan ungu vændiskonurnar
búa þar heimilislaus börn alveg niður í þriggja
ára. Þeim, sem vilja leggja starfseminni lið, er
bent á að það væri vel þegið að fá sendan
fatnað, skó og leikföng. Einnig er hægt að
leggja peninga inn á bankareikning heimilis-
ins.
MÆÐRASTYRKSNEFNDIN
Nú eru liðin 70 ár frá því að
Mæðrastyrksnefnd hóf að
styrkja einstæðar mæður sem eiga í
erfiðleikum. Kvenréttindafélag ís-
lands hóf starfsemina með því að
safna saman konum til að aðstoða
ekkjur og börn sjómanna eftir mikil
sjóslys sem urðu hér við land árið
1928. Á þessum 70 árum hefur mikið
starf farið fram á vegum Mæðra-
styrksnefndar. Sífellt fleiri sækja um
peningastyrki og sem dæmi má nefna
að síðastliðin tvö ár hafa samtals um
1.000 heimili notið aðstoðar fyrir jól-
in.
I desember verður opið hjá Mæðra-
styrksnefnd alla virka daga kl. 14:00-
16:00 að Njálsgötu 3. Þangað geta
konur leitað í byrjun desember og sótt
um styrki.
Fataúthlutun Mæðrastyrksnefndar
er opin alla miðvikudaga kl. 16:00-
18:00 að Sólvallagötu 48. Þar eru gefin
föt og einnig er hægt að kaupa þau á
vægu verði á flóamarkaði Mæðra-
styrksnefndar.
Mæðrastyrksnefndin,
Njálsgötu 3,
101 Reykjavík,
sími: 551 4349
Fatamóttaka og fataúthlutun,
Sólvallagötu 48,
101 Reykjavík,
sími: 552 5277
HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
Heimilisfang: Bankareikningur:
Wema Cenlre, Stanbic Bank Nkrumah Rd,
PO Box 88820, Mombasa,
Mombasa, Ac Name: Wema Centre,
Kenya Ac no: 153 0315346 001
Hjálparstofnun kirkjunnar fer af
stað með árlega landssöfnun
sína fyrsta sunnudaginn í aðventu.
Söfnunin er fyrir neyðar- og þróunar-
aðstoð Hjálparstofnunarinnar, bæði
hér heima og erlendis. Sendir eru gíró-
seðlar og peningabaukar á hvert heim-
ili á landinu. Þessi landssöfnun og sala
á friðarkertum fyrir jól er aðalfjáröfl-
unarleið Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Hjálparstofnunin veitir einnig aðstoð
á erlendri grund. Á vegum hennar
styrkja íslendingar yfir 1.000 börn á
Indlandi til framfærslu og náms. Þeir,
sem vilja taka þátt í þeirri hjálp, geta
fengir allar upplýsingar á skrifstofunni
að Laugavegi 31.
Hjálparstofnunin gefur matarpakka
til fjölskyldna sem ekki hafa peninga-
ráð til að kaupa í jólamatinn. í hverj-
um matarpakka er miðað við að sé
a.m.k. ein betri máltíð fyrir hverja fjöl-
skyldu. Þeir, sem vilja sækja um slíka
aðstoð, geta haft samband við skrif-
stofuna að Laugavegi 31, dagana 7. -
11. desember.
Hjálparstofnun kirkjunnar,
Laugavegi 31,
101 Reykjavík,
sími: 562 4400
RAUÐI KR0SSINN
Rauði kross Islands er ekki með sér-
staka fjársöfnun fyrir jólin, en deildir
Rauða krossins um land allt styrkja
Hjálparstofnun kirkjunnar og Mæðra-
styrksnefnd með fjárframlögum fyrir
jól.
Bent skal á að Rauða kross húsið að
Tjarnargötu 35, neyðarathvarf fyrir
börn og unglinga, er opið yfir hátíð-
arnar eins og aðra daga ársins. Einnig
er trúnaðarsíminn, 8005151, opinn all-
an sólarhringinn.