Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 24
í fullri alvöru
Töfralausnir
texti Jóhanna Harðardóttir
Eldsnemma í morgun
hellti ég úr fullum
bolla af tei yfir dag-
blaðið mitt. Það var brenn-
heitt og ég mátti þakka fyrir
að vera nógu vel vöknuð til að
geta sprottið upp úr stólnum
áður en restin helltist yfir lær-
in á mér.
Kannski var það þessvegna
sem ég sá dökku hliðina á öllu
því efni sem ég las í blöðum
og tímaritum þennan daginn.
Ég þurfti að fletta i gegnum
fullt af tímaritum og ég fór
smátt og smátt að veita athygli
auglýsingum um alls konar
efni og tæki sem eiga að
„redda" bókstaflega öllu og
það eins og skot. Svokölluð-
um töfralausnum.
Þetta var ótrúlegt samansafn
af drasli. Krem sem eyða app-
elsínuhúð á nokkrum dögum.
Krem sem fá hár til að spretta
að nýju á mettíma. Krem sem
„eyða" hrukkum á nánast
svipstundu og tæki sem slétta
húðina. Duft sem gerir neyt-
andann grannan, heilbrigðan
og spengilegan á nokkrum
vikum. Uða sem læknar alla
heimsins kröm á tuttugu mín-
útum. Tæki sem gera menn
unga án nokkurra átaka og
þar fram eftir götunum.
Hvað er að! Á hvaða tímum
lifum við?
Er endalaust hægt að ljúga
að fólki og plata það til að
kaupa lítils eða einskis nýtar
skyndilausnir á öllum sínum
ómerkilegustu vandamálum?
Langflestum þessara auglýs-
inga er beint að konum. Það
er mjög eðlilegt þar sem
standardinn sem konur eiga
eða vilja faila inn í er miklu
24
þrengri en karlanna. Konur
hafa líka sjálfar valið að láta
aðra segja sér hvernig þær eigi
að líta út.
Ég hef ekki séð neinar áræð-
anlegar tölur um hvaða árang-
ur hefur náðst með öllum
þessum kremum og tækjum,
en ég þekki mikinn fjölda
kvenna sem hafa reynt ótelj-
andi duft, krem og græjur sem
áttu að bjarga þeim frá sjálf-
um sér - en án teljandi árang-
urs þegar til lengri tíma er lit-
ið.
Hversu margar konur hafa
keypt sér rándýr „appelsínu-
húðarkrem" sem þær gáfust
upp á eftir nokkrar vikur?
Eða hrukkukremin sem eiga
að „eyða" hrukkum. Hvað
haldið þið að sé búið að selja
margar túpur af brjóstastækk-
unargeli og æðaslitseyði? Og
hversu miklu haldið þið að
búið sé að henda ónotuðu af
þessu drasli í gegnum tíðina?
Og önnur spurning: hvað
haldið þið að uppfinninga-
mennirnir séu búnir að græða
margar milljónir og milljóna-
tugi á trúgirni okkar?
Það eru til tölur um það og
þær eru ótrúlegar. Megrunar-
lyfjaiðnaðurinn í Bandaríkj-
unum einum veltir til dærnis
margfalt meiri peningum en
íslenska ríkið og þá er einung-
ið talað um duft, pillur og
drykki sem seld eru í apótek-
um og heilsuvöruverslunum.
Hverjar yrðu tölurnar ef allt
væri reiknað?
Og svo segir sagan að Islend-
ingar eigi heimsmet í öllu. Ég
neita að trúa því að íslenskar
konur eigi heimsmet í að láta
plata sig svona!
Hver veit?
1) Eftir hvaða íslensku skáldkonu eru bækurnar
Dalalíf?
2) Hvaða spendýr eru litskrúðugust allra spen-
dýra?
3) Hvaða kúreki eltist við Dalton bræður?
4) Hvað barf að taka marga slagi í brigde til að
standa tvo tígla?
5) IVIeð hvaða tónlistarmanni starfaði Tina Turn-
er í nítján ár?
6) Botnaðu: Eigi skal gráta Björn bónda....
7) Hvort er maður lengur að melta kjöt eða
jurtafæðu?
8) Hvaða land hefur lengsta strandlengju?
9) Hvaða hljómsveit gerði lagið „Roxanne"
frægt?
10) Fyrir hvað stendur skammstöfunin DOS í
tölvuheiminum?
11) Hvað hét fóstra Egils Skalla-Grímssonar?
12) Hvað heita frændur Andrésar andar í
dönsku útgáfunni?
13) Hvað eru hagalagðar?
14) Hvaða amerísk hljómsveit var kennd við
brimbrettaíbróttina?
15) Hvað býðir rússneska orðið njet?
16) í hvaða stjörnumerki eru flestir beir sem
fæddir eru í júni?
17) Hver er ritstjóri Dags?
18) Hvað hét aðstoðarmaður Derricks í sam-
nefndum sjónvarpsbáttum?
19) Hvað heitir söngkonan Ragnhildur Gísla-
dóttir fullu nafni?
20) Milli hvaða jökla er Fimmvörðuháls?
J2 ^ 15 (tí
™ -o oj
CC (D CQ
E «o
O Q H CC Z5 I—
CMCO'fihtDNCOO)
CMO«ílfilDSCOO)0