Vikan - 17.12.1998, Page 29
texti: Jóhanna Harðardóttir myndir: Gunnar Gunnarsson
móður sinni. Meðganga og
fæðing geta verið erfið og
börnin hlotið áverka sem
valda þeim erfiðleikum og
vanlíðan strax eftir fæðinguna
eða seinna á æfinni. Meðan
þau eru svona ung eru þau
mjög móttækileg og opin fyrir
þessari meðferð og hún getur
verið mjög sterkur fyrirbyggj-
andi þáttur í lífi þeirra." segir
Attlee. „Það er hægt að koma
í veg fyrir mjög erfiða og nei-
kvæða reynslu barna með því
að lækna kvilla sem hrjá þau
meðan þau eru ung. Hraust
og brosandi börn upplifa
heiminn á allt annan hátt en
hin sem líður illa. Allir dást að
hraustum, glaðlegum börnum
og hampa þeim meðan hin,
sem gráta og öskra, eru alltaf
kastandi upp eða með hor í
nös, eru sniðgengin. Þetta
markar spor í ungar sálir og
það er skylda okkar að gera
allt sem við getum til að forða
þeim frá þessari bitru reynslu.
Ef þessari reglu væri fylgt gæt-
um við verið viss um að færri
börn með hegðunarvanda
væru í skólum"
Ánangun a! meðferð banna
skilan sér fljótt
Það þarf að jafnaði að með-
höndla börn mun sjaldnar en
fullorðna til að ná árangri.
Kvillar barnanna eru nýir og
því ekki eins rótgrónir og full-
orðinna, og þau eru opin og
veita enga mótspyrnu við
meðferðinni.
„Það er mjög auðvelt að
meðhöndla ungbörn, þau eru
yfirleitt algerlega afslöppuð
og frjáls og ef höfuðbeina- og
spjaldhryggsjafnarinn kann á
annað borð að fara með börn
er það enginn vandi. Það þarf
að vísu að ná trausti barnsins,
leika eða tala við það og það
þarf vissa gætni og næmleika
til að mynda gott samband.
Að öðru leiti er sömu aðferð-
um beitt og við fullorðna, eini
munurinn er stærð líkamans
og síðan hvernig gengur að fá
börnin til að vera róleg. Þeir
sem fara í þetta starf eiga það
allir sameiginlegt að vera
næmir á fólk og það er einmitt
það sem þarf við börn. Það
verður samt oft þannig að ein-
hverjir sérstakir einbeita sér
að börnum''segir Attlee.
„Það er ekki fyrr en börnin
verða kannski tveggja til
þriggja ára sem þau fara að
vera óróleg og vilja ekki vera
kyrr. Þá þarf mikla þolinmæði
við að ná athygli þeirra og róa
þau niður til að hægt sé að
hjálpa þeim.
Þegar þau eru svo orðin
fjögurra til sex ára róast þau
aftur, þá eru þau komin á það
stig að hægt er að tala við þau
og fá þau til að vera kyrr. Þeg-
ar þau komast á ungíingsald-
urinn vilja þau miklu frekar
eiga við einhver vandamál að
stríða en að leita sér lækninga.
Unglingar eru ekki daglegir
gestir á læknastofum eða
stöðum þar sem verið er að
sinna heilsu fólks."
Parfekki mikið til
Ólíkt öðrum lækningaað-
ferðum byggir höfuðbeina- og
spjaldhryggsjöfnunum ekki á
viðtölum við sjúklinginn.
Samtal getur að vísu hjálpað,
en það skiptir ekki meginmáli
í meðferðinni því hún er al-
gerlega líffræðileg og alls ekk-
ert kukl eins og sumir virðast
halda. Attlee segir að það
þurfi ekki meira en að detta
illa, t.d. á höfuðið, til að verða
fyrir alvarlegum skaða sem
getur fylgt mönnum alla æfi.
„Jafnvel barn sem dettur
þegar það er úti að leika sér,
grætur svolitla stund og stend-
ur síðan upp og heldur áfram
að leika, getur hafa skaðast
þannig að það valdi erfiðleik-
um síðar. Það er því mjög
mikilvægt að láta skoða börn-
in reglulega og fylgjast vel
með þroska þeirra, allt sem
bendir til vanlíðunar, t.d. ein-
faldur hlutur eins og barnið sé
klaufalegt í hreyfingum, er
merki um að eitthvað þurfi að
laga” segir Attlee
Möng dæmi um géðanbata
„Það þarf ekki alltaf mikið
til að laga ástandið og í sum-
um tilfellum er hægt að gera
kraftaverk á börnum sem ekki
hefur verið hægt að lækna
með hefðbundnum lækninga-
aðferðum. Ég minnist t.d. 6
mánaða gamals flogaveiks
drengs sem ég fékk til með-
ferðar. Fæðing hans hafði ver-
ið mjög erfið og það er líklegt
að hann hafi skaddast í fæð-
ingunni. Honum höfðu verið
gefin margs konar lyf, en þrátt
fyrir það fékk hann flogaköst
að minnsta kosti þrisvar sinn-
um á dag. Eftir aðeins fimm
heimsóknir voru flogaköstin
komin niður í eitt á viku og nú
hefur þessi drengur verið ein-
kennalaus lengi. Ofl hafa litlir
sjúklingar gengið í gegnum
margar óþarfar og sársauka-
fullar aðgerir að nauðsynja-
lausu þar sem þessi meðferð
gefur miklu betri raun, til
dæmis við eyrnabólgum.
Meðan Thomas Attlee
dvaldi hér á landi og fékk
hann nokkur börn í heimsókn
til að sýna íslenskum höfuð-
beina- og spjaldhryggsjöfnur-
um hvernig hann fer að við
börnin. Hann tók það fram að
þetta væri að sjálfsögðu ekki
full meðferð heldur frekar
sýnikennsla og það væri ís-
lendinganna að halda áfram
og taka við meðferð barna hér
á landi.
Attlee átti hug og hjörtu
áheyrenda, en ekki síður
barnanna sem hann fékk í
heimsókn og það sást á litlu
krílunum að þeim leið vel
meðan hann meðhöndlaði
þau. Og síðasta spurningin til
Attlee var þessi: Er hægt að
lækna allt með Höfuðbeina-
og spjaldhryggsjöfnun?
„ Nei, það er ekki hægt að
breyta erfðafræðilegum þátt-
um sem eru orsakir margra
Yngsti gesturinn hjá Thomas
Attlee á Islandi. Óskírður Sigur-
geirsson í fangi systur sinnar
Auðar Hlínar.
sjúkdóma. Við getum heldur
ekki gert fólk ungt á ný ef ell-
in er farin að hrjá og við tök-
um ekki á okkur ábyrgð á ill-
vígum og lífshættulegum sjúk-
dómum. En alla vanlíðan sem
stafar af því að líkaminn
starfar ekki rétt er hægt að
lækna eða lina þjáningar sjúk-
linganna með þessari með-
ferð". Sagði Attlee að lokum.
E.s. þess má geta að margir
höfuðbeina- og spjaldhryggs-
jafnarar eru starfandi á Is-
landi á einkastofum, nudd-
stofum og snyrtistofum.
29