Vikan - 17.12.1998, Qupperneq 52
JORNUsliini.il..
Söngkonan íagra janet Jackson segist
ekki hafa áhuga á að eignast börn - þvi
hún hafi áhyggjur af því að standa sig
ekki i móðurhlutverkinu. "Ég elska börn
en ég er hrædd við að verða ekki nógu
góð mamma," segir Janet. Sambýlis-
manni hennar, Rene Elizondo, langar til
að eignast börn en hún segist hafa séð
of mörg dæmi þess hjá rika og fræga
fólkinu að börnum sé bara komið fyrir
hjá barnfóstrum. "Það eru allir rosalega
spenntir fyrir barneignum en síðan talar
þetta fólk bara um hversu erfitt það sé
að ala börnin upp." Þess má geta að
ekki er langt siðan Janet sá börn bróð-
ur síns, Mikka, í fyrsta sinn. Þau hafa
bæði verið önnum kafin og hún hefur
ekki haft tima fyrir heimsóknir. Hún
segir að Prince litli, sem er tveggja og
háfls árs, hafi fljótt orðið mjög hændur
að sér.
EKKI TIL í BARN
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
OG YFIRGEFIN
Gamanleikkonan Whoopi Goldberg er mjög ílughrædd og
ferðast því helst landleiðina þegar hún þarf að komast
milli staða. Nýlega hélt hún fyrirlestur i Harvard háskóla
en þurfti síðan að ferðast yfir þver og endilöng Banda-
ríkin til að vera viðstödd galakvöld hjá bandarísku kvik-
myndaakademíunni. Goldberg fór í rútu en þó ekki með
almenningsvagni. Hún er með sérhannaðan lúxusvagn til
að flytja sig milli borga.
Hjartaknúsarinn Tom Cruise er alltaf sama hetjan, jafnt á
hvíta tjaldinu sem í einkalífinu. Fyrr i haust kom hann vell-
auðugri nágrannakonu sinni i London til hjálpar þegar óprút-
tnir náungar gerðu tilraun til að ræna af henni skartgripum.
Rita Simmonds á heima spölkorn frá heimili leikarahjónanna
Tom Cruise og Nicole Kidman í London og hún var með dýr-
gripi sem metnir eru á 15 milljónir króna þegar árásarmenn-
irnir létu til skarar skríða. "Tom var alveg frábær. Hann
hljóp niður götuna ásamt líívörðum sínum og hrakti ræningj-
ana á flótta," segir Rita. Þjófarnir náðu hring, armbandsúri
og eyrnalokkum af fórnarlambinu. Á síðustu tveimur árum
hefur Cruise nokkrum sinnum komist í fréttirnar fyrir hetju-
dáðir. Hann bjargaði snáða sem var að kremjast í örtröð á
frumsýningu myndarinnar Mission Impossible auk þess sem
hann bjargaði fólki úr brennandi snekkju undan strönd Italíu
I sumarleyfinu sínu. I fyrra kom hann síðan til hjálpar þegar
ekið var á gangandi vegfaranda og borgaði meira að segja
sjúkrahúsreikninginn.
FLUGHR
Leikkonan síunga Cybill Shepherd er einstæð
móðir á ný eftir að sambýlismaður hennar síð-
ustu fjögur árin, tónlistarmaðurinn Robert
Martin, yfirgaf hana i síðasta mánuði. "Hún
hefur verið alveg miður sín en mun þó vera
að byrja að ná sér á strik á ný," segir tals-
maður hennar. Shepherd, sem er 48 ára, hefur
verið ófeimin við að tala um einkalífið I fjöl-
miðlum undanfarnar vikur, enda ekki langt
síðan hún gaf út ævisögu sína og hún vildi
alla þá athygli sem gafst. Hún sagði m.a. að
kynlífið væri betra eftir því sem hún yrði eldri
og Martin væri "mjög ævintýragjarn í bólinu".
Leikkonan sagði að það væri engin ástæða
fyrir þau að giftast þar sem ástin blómstraði á
heimilinu. Cybill á tvö misheppnuð hjónabönd
að baki og er þriggja barna móðir. Hún á 19
ára dóttur með fyrsta eiginmanni sínum, bíla-
salanum David Ford og 11 ára tvíburasyni með
seinni eiginmanninum, hnykkjaranum Bruce
Openheimer.