Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 4
Kœri lesandi...
Bjart og
vinningslegt
sumar
fram undan
Að þessu sinni boðar Vikan hvítt sumar.
Ekki vegna þess að við kvíðum snjókomu,- síður en svo. Við erum
sannfœrðar um að þetta verði gott sumar. En hvítt verður í tísku.
Þess vegna er svona bjart yfir forsíðunni okkar núna og í mið-
opnu sýnum við lítið brot aföllum þeim fallegu, hvítu hlutum sem freista okkar í verslunum.
Það verður svo sannarlega bjart yfir Vikunni ísumar. Við ætlum okkur að gleðja sem flesta lesendur Vikunnar
á ýmsan hátt. Við œtlum að sjálfsögðu að halda áfram að birta létt og skemmtilegt lesefni, en auk þess ætlum
við að láta rigna vinningum yfir þá sem vilja bregða á leik með okkur í sumar. Þeir sem eru hugmyndaríkir og
duglegir geta unnið sér inn vegleg verðlaun með því að taka þátt í smásagnasamkeppni Vikunnar sem nú er í
fullum gangi. Enn er vel hægt að snara fram sögu fyrir 10. júní efeinhver lumar á góðum söguþrœði í hugskoti
sínu. íþessu blaði er einnig boðið upp áfyrsta hluta afþremur í sumarleik þar sem verðlaunin eru sólarlanda-
ferð fyrir tvo. Það er um að gera að vera með, það er aldeilis ekki ónýtt að fá sumarauka frá Vikunni á Kanarí-
eyjum. I næsta tölublaði hefst svo leikur þar sem tvö reiðhjól verða dregin út í hverri Viku, fimm sinnum í röð.
Þar gefst áskrifendum einnig kostur á að eignast eigulega hluti með því einu að vera með okkur í andanum.
Sem sagt, við á Vikunni erum full bjartsýni á sumarið, við höfum fengið til liðs við okkur tvær nýjar blaðakon-
ur, Hrund Hauksdóttur og Margréti V. Helgadóttur, og einnig hefur Anna B. Þorsteinsdóttir bœst við í auglýs-
ingadeildina okkar og við bjóðum þær velkomnar í hópinn. Þær munu örugglega víkka sjóndeildarhring okk-
ar allra.
Góðir lesendur, við vonum að þið njótið sumarsins með okkur, lesið Vikuna ykkur til ánœgju og takið þátt í
sumarleikjum okkar.
Jóhanna Harðardóttir.
Anna B.
Þorsteins-
dóttir
auglýsinga-
stjóri
Steingerður
Steinars-
dóttir
blaðamaður
Hrund
Hauksdóttir
blaðamaður
Margrét V.
Helgadóttir
blaðamaður
Kristín
Guðmunds-
dóttir
auglýsinga-
stjóri
Guðmundur
Ragnar
Steingrímsson
Grafískur
hönnuður
Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði Seljavegur
2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður
Magnús Flreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J.
Lúðvíksson Simi: 515 5515 Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjórafulltrúi
Jóhanna Harðardóttir Simi: 515 5582 Vikan@frodi.is
Blaðamaður Steingerður Steinarsdóttir Sími: 515 5569
Auglýsingastjóri Kristín Guðmundsdóttir Sími: 515
5628 Vikanaugl@frodi.is Grafískur hönnuður
Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð í lausasölu Kr.
459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr.
344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr.
eintak. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi
áskilin varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555