Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 9
y • V
JS- yíÍá' W
—
" || :: 1 jj 1 mm
andi, bara skemmtilegur. Ég
held að margir karlmenn í svip-
aðri stöðu, sem eiga heima-
vinnandi konur, líti þannig á að
þessir heimar séu aðskildir. Ég
lít alls ekki þannig á það. Ég
hef reynt að fara út með hon-
um og samstarfsfólki hans.
Þannig get ég kynnst fólkinu
sem hann starfar með. Bjarni
ber mikla virðingu fyrir mínu
starfi og finnst það ekki síðra
en hans eigið. Þegar tví-
burarnir voru nýfæddir og
vöknuðu upp á nóttunni, gekk
Bjarni líka um gólf með þá.
Hann benti mér á að ég þyrfti
líka að vakna til vinnu næsta
morgun þegar ég var að segja
honum að halda áfram að sofa.
Bjarni er alltaf tilbúinn að
breyta sínum plönum fyrir
mig og hlaupa heim ef eitthvað
kemur upp á. Ég er mjög
kröfuhörð á að Bjarni komi
heim og borði kvöldmat með
okkur. Hann getur farið að
vinna aftur á eftir, en ef hann er
á landinu þá borðar hann með
okkur. Kvöldmatartíminn er
helgistundin okkar og þá get-
um við spjallað saman. Við
reynum líka að skipuleggja vel
frítímann okkar."
Stúdentapólitíkin leiddi
þau saman
Hvar og hvernig kynntust
þau?
„Við kynntumst í gegnum
stúdentapólitíkina fyrir níu
árum. Ég var formaður Félags
hjúkrunarfræðinema og
Bjami sat í háskólaráði. Eitt
kvöldið kom hann í heimsókn
til mín og bauð mér sæti á lista
Vöku. Síðan fór hann ekkert
heim! Við giftum okkur í októ-
ber 1995 áður en við fórum til
Sviss."
Hér með upplýsist að Helga
er dóttir Guðrúnar Helgadóttur,
rithöfundar og fyrrverandi al-
þingismanns. Skyldi hún hafa
erft pólitískan áhuga móður
sinnar?
„Nei. Ég er alltaf hissa þeg-
ar börn stjórnmálamanna leið-
ast út í pólitík. Ég hef mikinn
áhuga á að sinna félagsmálum
en ég er óflokksbundin og hef
engan áhuga á að starfa í
stjórnmálum. Mér finnst það
ekki aðlaðandi heimur."
Hvað um áhuga á rit-
störfum. Erfðist hann frá
mömmu?
“Sú löngun að fást við rit-
störf blundar ekki í mér. Móðir
mín var að rifja upp núna á
dögunum að ég hefði skrifað
heilmikið sem krakki en í seinni
tíð hefur það dottið upp fyrir,
Maður tekur kannski upp þráð-
inn seinna!"
Hvernig tilfinning var að
Bjarni Ármannsson var allt í
einu orðinn bankastjóri og fjöl-
miðlar kepptust um að fjalla um
manninn?
„Ég held að ég hafi ekki
fundið neitt mikið fyrir því ég er
orðin vön því að vera dóttir
hennar Guðrúnar Helgadóttur.
Mér finnst við samt ósköp
venjuleg. Ég veit fátt ömur-
legra en þegar fólk lætur vel-
Vikan 9