Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 57
iíC
rL
Lesandi segirfrá
jarðarför tengdamóður minnar
ingur um fólkið í kirkjunni
því allir kirkjugestir vissu
hvernig í pottinn var búið.
Niðurlæging mín var algjör.
Ég var þarna mætt til að
kveðja látna tengadamóður
mína. Enginn gerði athuga-
semd við þessa blessun
prestsins enda tíðkast víst
ekki í jarðarförum að standa
upp og hafa í frammi mót-
mæli. Á leiðinni út úr kirkj-
unni náði ég tali af prestin-
um afsíðis og sagði honum
að honum hefði orðið á í
messunni, í orðsins fyllstu
merkingu, því hann hefði
blessað ranga konu við at-
höfnina. Honum var mjög
brugðið, því hann hafði ekki
haft nokkra vitneskju um
hvernig málum var háttað.
Endanlegur skilnaður
fékkst fyrir tveimur árum og
giftist maðurinn viðhaldinu
um leið og það var mögu-
legt.
Ég hef reynt eftir fremsta
megni að halda mínu striki
og halda utan um börnin
mín, en þau sem eru að
eðlisfari mjög efnileg og
heilsteypt, riðuðu til falls
eftir þessa lífsreynslu. Við
erum öll enn að reyna að
fóta okkur á ný.
Ég mun þó aldrei gleyma
þessari martraðarkenndu
jarðarför og vona að enginn
upplifi neitt þessu líkt.
r lesandi segir
Hrund
Hauksdóttur
sögu sína
Víit þú deila sögu þinni
með okkur? Er eitthvað
sem hefur haft mikil áhrif
á þig, jafnvel breytt lifi
þínu? Þér er velkomið að
skrifa eða hringja til okk-
ar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
]
% SV
1 y
$ %|r-
*
lleimilisfangid er: Vikan
- „Lílsreynslusaga**, Seljavegur 2,
101 Reykjavík,
Netfang: vikan@frocli.is
Vikan 57