Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 60
SYNIR
KLÆRNAR
Kynbomban síunga, Joan
Collins, er enn að sýna klærnar. Collins, sem fagnar 66 ára afmælinu á
næstu dögum, á í erjum við stöllu sína Diahann Carroll, sem einnig lék í
sápuóperunni Dynasty á sínum tíma. Collins er búin að skrifa bók sem fjall-
ar um tvær frægar leikkonur sem búa í sama fjölbýlishúsinu og hata hvor
aðra. Það vill svo skemmtilega til að Collins og Carroll eiga einmitt heima í
sama fjölbýlishúsinu í Beverly Hills og Carroll erfullviss um að „vinkonan“
sé að gera grín að sér í handritinu. „Ég veit að Joan telur sig geta haft mig
að fífli. Hún er að reyna að klekkja á mér fyrir allra augum," sagði Carroll
við vinkonu sína. Rætur deilnanna liggja langt aftur, alveg til þess tíma þeg-
ar þær léku saman í Dynasty og þær keþptust um flottustu kjólana og bita-
stæðustu „línurnar". Ósættið blossaði upp á ný þegar Carroll flutti í sama
háhýsi og Collins. Hún býr nokkrum hæðum ofar en Collins og hefur betra
útsýni yfir borgina. Þaö sætti „dívan" sig ekki við.
MINNINGAR UR DÓPINU
Gamla brýnið Dennis Hopper á skrautlega fortíð með dópi og dræsum í
Hollywood. Nú hefur hann í hyggju að gera kvikmynd sem byggð verður á
ævi hans en hann veit vel að það
er ekki auðvelt verk. „Þetta verð-
ur erfitt fyrir mig því ég á ýmislegt
misjafnt í pokahorninu,“ segir
leikarinn og leikstjórinn. Einkalíf
hans er efni í margar kvikmyndir.
Hopper á fjögur misheppnuð
hjónabönd að baki og dópneyslan
var svo yfirgengileg að hann end-
aði á geðsjúkrahúsi. „Ég var alveg
út úr heiminum," segir Hopper en
sú reynsla kom honum vel þegar
hann lék brjálæðinginn Frank
Booth í meistaraverkinu BlueVel-
vet árið 1986. „Ég var meira að
segja sannfærður um að síma-
snúrurnar væru að tala við mig og
útvarþið var bara að spjalla við
mig.“ Hopper er sérstaklega
minnisstætt skammlíft hjónaband
með söngkonunni Michelle
Phillips fyrir tæpum 30 árum. Þau
skildu eftir átta daga. „Við gerð-
um allt, sem hugsast gat á þess-
um átta dögum. Þetta var frábær
brúðkaupsferð en hjónabandið hefði
sennilega orðið algjör hörmung."
HÚÐFLÚRIN HVERFA
Söng- og leikkonan Cher hefur látið
fjarlægja tattúin af húð sinni eitt af
öðru undanfarna mánuði. Hún hefur
samtals gengið í gegnum 16 sárs-
aukafullar geislameðferðir til að
brenna burt húðflúrin. Heimildarmaður,
sem er nákominn stjörnunni, segir að
frægt fiðrildi á bossa hennar verði það
síðasta sem hún láti fjarlægja. „Ég fékk mitt fyrsta tattú þegar ég var 27 ára
og á þeim tíma þótti það nokkuð frökk yfirlýsing," segir Cher. „Nú eru næst-
um allir með tattú og þau eru ekkert merkileg lengur." Cher er óvænt komin
aftur á toppinn í tónlistarheiminum með laginu Believe og nú vonast hún til
að komast aftur á kortið í kvikmyndaheiminum. Hún leikur eitt aðalhlutverk-
anna íTea With Mussolini, sem verðurfrumsýnd í sumar.
BYRJAÐI UNG!
Alison Eastwood er ein efnileg-
asta leikkonan í Hollywood í dag.
Hún er dóttir hörkutólsins Clints
Eastwood og það hefur hjálpað
henni að fá hlutverk. Alison hefur
líka verið óhrædd við að sýna
fagran líkamann, bæði á hvíta
tjaldinu og í tímaritum. Hún sagði
frá því í nýlegu viðtali að hún
hefði snemma kynnst staðreynd-
um lífsins með því að horfa á
klámmyndir í kapalsjónvarpi.
"Þegar ég var sjö ára vorum við
með kapalstöð sem sýndi alltaf
Ijósbláar myndir um miðnætti.
Bróðir minn og vinir hans voru
alltaf að horfa á þær þannig að ég
stalst til að horfa líka og var fljót
að læra. Þegar ég var níu ára var
ég kominn með kærasta og við
prófuðum ýmislegt þegar mamma
hans sá ekki til," segir Alison.
60 Vikan
AFMÆLISBÖRN VIKUNNAR:
17. maí: Andrea Corr (1974), Bob Saget (1956), Bill Paxton (1955), Dennis
Hopper (1936) 18. mai: Yun-Fat Chow (1955) 19. maí: Pete Townsend (1945),
Nora Ephron (1941), Grace Jones (1952), Mike Wallace (1918) 20. maí: Busta
Rhymes (1972), Cher (1946), Danny Aiello (1933) 21. maí: Fairuza Balk
(1974), Nick Cassavetes (1959), Judge Reinhold (1956), Mr.T (1952)22. maí:
Alison Eastwood (1972), Naomi Campbell (1970) 23. maí: Drew Carey (1958),
Joan Collins (1933), Rosemary Clooney (1928).
Grace Jones verður 47 ára hinn 19. mai.