Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 21
að þessu leyti."
Kona með bíladellu; sem
auk þess starfar á bílasölu,
ekur hún ekki um á einhverj-
um glæsivagni?
„Nei, ég á venjulegan
Galant núna en ég hef svo
sem átt marga fallega bíla.
Ég er ekki bílasnobb og hef
yfirleitt ekki gert mér rellu út
af merkjum eða einhverju
slíku. Bens er þó mikið uppá-
hald og ég segi að kaupi
maður einu sinni Bens verði
það alltaf Bens, svo mikill er
munurinn á þeim og öðrum
bílum. Minn draumur er að
eiga góðan bíl til að ferðast á.
Það er nú stundum svo að
þeir sem eiga fínustu bílana
eiga líka minnst í þeim. Það
er til svolítið undarlegt snobb
af þessu tagi. Þjóðverjar taka
gjarnan öll merki af bílunum
sínum eða borga aukalega
fyrir að hafa þau ekki á. Þeir
vilja ekki sýna hversu ríkir
þeir eru. Þótt allur aukabún-
aður fylgi og bílinn sé af dýr-
ustu gerð sést það ekki því öll
merki vantar. Þetta sjáum við
oft á bílum sem fluttir eru inn
frá Þýskalandi.
Það er líka öfugsnúin tíska
hér að litlu bílarnir eru taldir
frúarbílar en karlarnir aka um
einir á stórum sjö manna
jeppum. Konurnar eru með
börnin og ótrúlega oft sjáum
við í umferðinni konu með
þrjú börn í aftursætinu á litlum
Fíat eða Golf. í Bandaríkjun-
um eru konurnar á jeppunum
eða stórum stationbílum, karl-
arnir á litlum sportbílum. ís-
lenskir karlmenn eru ótrúlega
eigingjarnir. Ég segi stundum
að það ætti að sýna þessum
mönnum hvernig litlu bílarnir
fara í árekstrum áður en þeir
setja börnin sín aftur í þá."
Kata er ekki kona sem
liggur á skoðunum sínum og
hún segist kunna afskaplega
vel við sig í því sem hingað til
hefur verið álitið karlastarf.
Hún er ekki óvön því að vera
eina konan á sínum vinnu-
stað og hefur engar áhyggjur
af því. „Karlmenn eru ekki
með neitt röfl og raus. Konur
eiga það til að kvarta frekar
við yfirmanninn en að tala
hver við aðra, það gera karl-
menn ekki. Ef þú gleymir ein-
hverju segir vinnufélaginn þér
að gera það daginn eftir.
Hann lætur óánægjuna ekki
krauma undir yfirborðinu,"
segir Kata að lokum og svo er
hún rokin út að sýna væntan-
legum kúnna bíl.
VERIÐ VEIKOMIN
A IMÝJA 5TAÐIIWI
Allt á einum
stad!
'nn**«>raM
* Smurstöá * Rafgegmaþjónusta
* Pústþjánusta Hjálbarðaþjónusta
^k Ljásastillingar ^k Bón ag bilaþvattastað
* Válastillingar *k Bremsuhlassar
Sinur- bón og dekkjaþjónustan Sæbraut
^ B0<9a,,un
Rauöarárstöö
Bo,ga<wn
Sð/’On
§mur- bón ng dekkjaþjánustan
Sætún 4 • Sími 5ES 6066 • Fax 560 6038
Sólatlir ag nýjir hjálbaráar í öllum stærðum • Deta rafgeymar • úrval af alíum frá Olis
olís
Vikan 21