Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 48
Náðu árangri í hverju
sem þú fekur þér
fyrir hendur
Að iíða vel og vera
sáttur við sjálfan sig
er kryddið í uppskrift-
inni að lífshamingju.
Hvort sem menn
sækjast eftir góðu
starfi, góðum vinum,
ástinni eða vilja bara
láta sér líða vel er að-
alatriðið að þeir séu
ánægðir með sjálfa
sig. Fyrir nokkru
heyrðum við á tal
tveggja kvenna. Önn-
ur kvartaði mikið yfir
útliti sínu og sagði
enga flík fara vel á
sínum skrokki og að
flest ráð til að líta vel
út dygðu skammt
þegar gallagripur
eins og hún væri ann-
ars vegar. Hin horfði á
hana stutta stund og
svaraði: „Það er ekk-
ert að útliti þínu ann-
að en það að þú ert
eins og hengilmæna
og biður afsökunar á
sjálfri þér með orðum
og fasi. Réttu úr þér,
brostu og sýndu að
þarna fari kona full
sjálfstrausts og öll föt
munu fara þér miklu
betur."
Sú sem síðar talaði er
greinilega skynsemd-
arkona enda tæplega
aðlaðandi að horfa á fólk
sem hangir niður í herðun-
um, niðurlútt og með fýlu-
svip. Sjálfstraust og ánægja
auka útgeislun og ekkert er
eins aðlaðandi og geislandi
hlý og glöð manneskja. I
bandarískum háskóla var
nýlega gerð könnun á ár-
angri íþróttamanna með til-
liti til viðhorfa þeirra til
sjálfs sín. Þeir sem trúðu á
sjálfan sig og getu sína sigr-
uðu oftar í keppni en hinir
sem voru í vafa. Sjálfstraust
á öðrum sviðum en þeim
sem að íþróttinni sneru voru
einnig mikilvæg því þeim
mun meira sjálfstraust sem
mennirnir höfðu því líklegri
voru þeir til að sigra.
Bandarískur sálfræðingur
Michael J. Hurd segir í bók
sinni Effective Therapy (Ár-
angursrík meðferð) að
sjálfstraust sé sérstaklega
mikilvægt því það sé undir-
staða jákvæðra tilfinninga
sem hjálpa mönnum að
njóta lífsins til fulls. Hann
segir þá sem hafi slæmt
sjálfsálit eiga efiðara með að
gera sitt besta því vantrú
þeirra á mátt sinn og megin
geri það að verkum að þeir
haldi aftur af sér. Með nægi-
legu sjálfstrausti geti ein-
staklingurinn náð nánast
hvaða markmiði sem er.
Með þetta í huga tókum
við hjá Vikunni saman
nokkur góð ráð um hvernig
þú getur unnið að því að
auka sjálfsöryggi þitt og
bjartsýni og þannig náð
betri árangri í öllu sem þú
tekur þér fyrir hendur.
1. Láttu kvíðann vinna með
þér. Flestir kannast við
að kvíða prófum, viðtöl-
: Steingerdur Steinarsdóttir
48 Vikan
Texti