Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 61
Rós Vikunnar
Að þessu sinni hlýtur Þóra Karlsdóttir Rós Vik-
unnar. Það er tengdadóttir hennar, Eygló, sem
tilnefnir hana.
„Þóra er hjúkrunarfræðingur og hefur bjargað
mörgum mannslífum um dagana. Síðustu árin
hefur hún starfað sem hjúkrunarforstjóri Dvalar-
heimilis aldraðra á Kirkjubæjarklaustri og nýlega
var hún valin úr 43 manna hópi til að stýra nýju
dvalarheimli í Garðabæ.
Fyrir tveimur árum uppgötvaðist að Þóra væri
með æðagúlp í höfðinu, í aðgerðinni sem fylgdi
lamaðist annað augnalok hennar þannig að í
kjölfarið fylgdu fleiri aðgerðirtil að laga það. Um
sama leyti varð hún fyrir öðrum áföllum, meðal
annars missti hún móður sína, en þrátt fyrir þær
hremmingar sem hún gekk í gegnum hefur henni
tekist að vera alltaf jafn bjartsýn og elskuleg við
alla. Hún er ekki bara dugnaðarforkur heldur líka
frábær manneskja og tengdamóðir.
NAOMI UR OLLU
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell vill ekki standa stöllum sinum
að baki og hefur ákveðið að sitja fyrir hjá karlaritinu Playboy.
Naomi er alvön því að fækka fötum á smekklegum myndum en
nú er i bigerð að birta 16 síðna myndaþátt með henni. Naomi
vill fá uppáhaldsljósmyndarann sinn, David LaChapelle, til að
taka myndirnar. Ofurfyrirsæturnar koma nú fram í Playboy ein
af annarri. Elle MacPherson og Cindy Crawford hafa þegar birst
á síðum blaðsins og Rachel Hunter var i 10 daga myndatökum
á Tahiti fyrir blaðið. Einnig berast þær fréttir að Playboy hafi
boðið sveitasöngkonunni Shaniu Twain rúmlega 70 milljónir
króna fyrir að sýna sína leyndustu líkamshluta á síðum blaðs-
ins. Hún er að íhuga tilboðið.
Rós Vikunnar
Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vik-
unnar? Ef svo er, hafðu þá samband við
„Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík" og
segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn
verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan
rósavönd frá Blómamiðstöðinni.