Vikan


Vikan - 17.05.1999, Side 14

Vikan - 17.05.1999, Side 14
Fegru n araðgerðir með leysigeislum: hafi ískorist. Sjúklingurinn getur fengið talsvert áfall fyrstu dagana eftir aðgerð og hann þarfnast mikils stuðn- ings og verður að eiga greið- an aðgang að lækninum hvenær sem er. Hrukkuað- gerð með leysigeislum er mikið álag og það verður sjúklingurinn að vita og geta staðið undir. Ég segi sjúk- lingum sem leita til mín frá því hvernig svona aðgerð gangi fyrir sig og við hverju þeir geti búist þannig að þeir geti sjálfir metið hvort þeir telji þetta álag þess virði. Aðgerðin sjálf felst í því að húðin á andlitinu er brennd af. Þessi aðferð nefn- ist evaporation, en þá er ysta húðin brennd niður í ákveðna dýpt við hitastig sem eyðir henni algerlega og hrúðrið hverfur. Eftir verður aðeins brunaskán og á fyrstu 2-3 dögunum eftir aðgerðina vessar úr húðinni og þessir vessar þekja andlitið. A fyrstu dögunum myndast líka bjúgur í andlitinu þannig að ásjóna sjúklingsins verður heldur óhugnanleg, auk þess sem þessu fylgja ýmis óþægindi. Himnan sem líkamsvessarnir mynda flagnar síðan af andlitinu á 7-12 dögum og undir henni er ný, rjóð húð. í flestum til- fellum er hægt að farða yfir húðina eftir u.þ.b. hálfan mánuð, en það má reikna með að sjúklingurinn sé allt frá 6 vikum og upp í 3 mán- uði að jafna sig alveg eftir aðgerðina og litaskil geta sést á húðinni í allt að hálft ár. Konur eru í yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem gang- ast undir þessar aðgerðir. Það er ekki komin löng reynsla á þær hérlendis en áhrif þeirra eru mjög misjöfn eftir einstaklingum. Húðin heldur auðvitað áfram að eldast en endingin er mjög góð hjá þeim sem eldast vel. Það má að jafnaði segja að lágmarksending sé fjögur til tíu ár. Photoderm leysigeislatæk- ið virkar öðruvísi og það á ekki að brenna húðina. Ef það gerist er það vegna mannlegra mistaka sem auð- vitað geta orðið. Mistökin geta þá verið að tækið sé vit- laust stillt eða brúnir svæðis- ins, sem verið er að vinna með, skarast. Ég þekki ekki dæmi þess héðan. Hér er það hjúkrunarfræðingur sem gerir flestar þessar aðgerðir, en hún tekur þó ekki að sér nein vafatilfelli og það eru t.d. alltaf læknar sem fjar- lægja valbrá. í flestum tilfellum þarf að koma oftar en einu sinni þegar um háreyðingu er að ræða. Tækið vinnur aðeins á þeim hársekkjum sem eru virkir á því tímabili sem að- gerðin fer fram og það eru að jafnaði ekki nema u.þ.b. 75-80% sekkjanna. Tækið vinnur betur á dökkum hár- um en sjúklingurinn getur þurft að koma 3-7 sinnum og oftast þeir sem hafa ljóst hár. Eftir að hárunum hefur verið eytt koma þau ekki aftur, þannig að ending þess- ara aðgerða er mjög varan- leg." Tæplega sextug íslensk kona sem fór í hrukkuaðgerð fyrir ári síðan: „Nei, ég er ekki nógu ánægð með útkomuna þótt læknirinn sé mjög sáttur við hana. Ég myndi aldrei fara í svona aðgerð aftur. Það eru enn miklar litabreytingar í húðinni og ég hef aldrei notað eins mikinn farða og nú. Það rýkur upp hiti í húðinni öðru hverju, það eru fitunabbar undir henni og ég fæ oft sviða í augun eftir þessa aðgerð sem ég fékk aldrei áður. Ég var búin að velta þessu lengi fyrir mér áður en ég fór í aðgerðina. Ég er ein af þeim manneskjum sem finnst sumir fylgifiskar öldrunar ljótir og gat illa sætt mig við djúpar hrukk- ur í andliti og smáar hrukkur í kring- um varir. Ég get alls ekki sagt að ég hafi fengið rangar upplýsingar og læknir- inn sem framkvæmdi aðgerðina á mér reyndist mér að mörgu leyti mjög vel. Hann fylgdist vel nieð mér og kom oft heim til að sinna mér fyrst eftir aðgerðina. En maður hlustar bara ekki eftir öllu. Mér var sagt að þessi aðgerð væri alger bylting og miðað við aldur minn ætti ég ekki að bíða með hana ef ég ætlaði á annað borð að fara út í þetta. Mér fannst þetta sniðugt og þess virði að prófa. Mér var sagt að nýja húðin, sem kæmi, yrði bleik og skilin gætu sést í allt að ár en það ætti aðvera auðvelt að leyna því með farða. En núna ári síðar sjást þau of mikið enn og þetta er allt búið að taka miklu lengri tíma en niér hafði nokkurn tíma dottið í hug. Mér var líka sagt að ég gæti farið að vinna eftir 10-14 daga en ég get ekki séð hvernig það er möguleiki! Ég fór að vinna eftir 3 vikur og ég var engan veginn tilbúin til þess, hvorki andlega né líkamlega,- það var langt í frá. Ég hef frekar viðkvæma húð og ég á enn í vandræðum með að finna farða sem hentar mér vegna ofnæmis- viðbragða. Ég hef leitað eftir ráðlegginum og aðstoð til húðsjúkdómalæknis og snyrtifræðings eftir aðgerðina og fengið góða aðstoð hjá þeim. Ég veit ekki hverju ég myndi svara ef einhver leitaði til mín og spyrði mig álits á því hvort hann ætti að leggja út í svona aðgerð. Ef til vill er mín reynsla ekki dæmi- gerð. Ég get ekki metið líðan annarra. Ég myndi segja viðkomandi frá reynslu minni og minni persónulegu vanlíðan, en það er auðvitað hans að meta það hvort þörfin sé svo brýn að þetta álag sé þess virði." 14 Vikím

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.