Vikan - 17.05.1999, Page 52
Hverju svarar lœknirinn ?
Sinadráttur
Kœri Þorsteinn,
Eg les alltaf pistlana þína og
nú vona ég að þú getir hjálpað
mér eins og svo mörgum öðr-
um sem leita til þín. Ég er 47
ára kona, í mjög góðu formi
og heilbrigð, svona að öllu
jöfnu, en ég á við svolítið sér-
kennilegt vandamál að stríða,
- en það er sífelldur sinadrátt-
ur. Petta er alveg að fara með
mig, þetta er ofboðslega sárt.
Ég hef oft vaknað upp við
þetta öskrandi af sársauka,
það er eins og sé verið að rífa
mig í sundur. Stundum sef ég
ekki af kvíða við að vakna við
sársaukann og mér líður yfir-
leitt alltaf illa í vöðvunum
þegar ég vakna á morgnana.
Verst er þetta í fótleggjunum,
en það getur líka komið í
handleggi, iljar, hendur og axl-
ir. Eg geng mikið og hjóla líka
svolítið og ég man alltaf eftir
að teygja eftir göngur svo
vandamál mitt stafar ekki af
því og það virðist vera sem
þetta hafi reyndar ekkert með
hreyfingu að gera því það
versnar hvorki né batnar
hvort sem ég hreyfi mig mikið
eða lítið.
Hvað á ég að gera? Ég er
Þorsteinn Njálsson hciniilislæknir
búin að fara í allsherjar-
blóðprufur en mér var
sagt að það væri ekkert
að mér. Á endanum gaf
læknir mér kíníntöflur
sem ég tek á kvöldin
fyrir svefn og þær verka
ágætlega, ég finn ekki
fyrir verkjunum en sina-
drátturinn heldur áfram
því ég finn fyrir hreyf-
ingunum í vöðvunum
samt. Ég er farin að
hallast að því að þetta
sé eitthvað efnafræði-
legt, hvað heldur þú?
Með innilegri von um svör,
HGH
SœlHGH
Sinadráttur á nóttunni er al-
gengur og illviðráðanlegur,
reyndar eykst vandinn með
aldrinum en þó er ekki óal-
gengt að ungar konur eins og
þú eigi við þetta vandamál að
stríða og karlar reyndar líka.
Yfirleitt er fólki ráðlögð hæfi-
leg hreyfing við þessum
vanda, en þú segir að hreyfing
breyti engu. Ýmis lyf geta
valdið þessu og hef ég rekist
þar á vatnslosandi lyf, s.k.
bjúglyf, en líka blóðþrýstings-
lyf, getnaðarvarnarpilluna og
kvenhormónalyf, sem notuð
eru gegn vanlíðan á breyting-
araldrinum. í sjálfu sér eru
engin lyf fullkomin og öll geta
þau valdið einum eða öðrum
aukaverkunum, þ.a. ef þú ert
á einhverju lyfi, skoðaðu þá
hvort notkun á því tengist
sinadrættinum, eða prófaðu
að hætta á lyfinu ef það er
óhætt til að komast að því
hvort það valdi sinadrættin-
um. Pað er algengt að ráð-
leggja kalk (lg) eða magnesi-
um (0,5g) fyrir svefn við sina-
drætti, einnig er algengt á ís-
landi að nota kínín sem er
malarfulyf. Hefur þú farið og
látið skoða á þér fæturna, það
gæti verið að einhver fót-
skekkja sé til staðar. Stoð-
tækjasmiðir meta fætur þína
og ráðleggja þér ef þeir finna
eitthvað athugavert. Pú verð-
ur samt að meta sjálf árangur-
inn og treysta eigin dóm-
greind. Þú nefnir ekkert hvort
þú reykir, en þeir sem eru
með þetta vandamál ættu að
gera ráðstafanir til að hætta
reykingum hið allra fyrsta því
reykingar valda blóðrásar-
truflunum jafnvel hjá ungu
fólki. Af samhliða lækningar-
aðferðum er aðallega um ráð-
leggingar að ræða frá smá-
skammtalæknum, nál-
arstungulæknum, ayurveda-
læknum og náttúrulæknum, en
ég ræð þér að leita til þeirra ef
þú vilt prófa þær meðferðir.
Gangi þér vel,
Þorsteinn
Bólgin á morgnana
Kœri lœknir,
Eru til einhver ráð við
bólgnum augum á morgnana?
Ég er rosalega bólgin á morg-
ana þegar ég vakna og með
poka undir augunum og
ógeðslega ljót. Venjulega lag-
ast þetta þegar líður á daginn
en stundum tekur það langan
tíma og ég er farin að vakna
miklu fyrr en ég þarf bara til
að líta almennilega út þegar
ég fer í vinnuna.
Ein „desperat".
Sœl „desperat"
Það er ekki gott í efni þegar
ástandið er svona, þ.e.a.s.
þetta með útlitið. Ein af
ástæðunum fyrir þessu gæti
verið ofnæmi, ekki fyrir svefni
heldur fyrir sænginni, þ.e.a.s.
fiðri/rykinu í sænginni eða
koddanum. Þú gætir prófað að
skipta út fiðurkoddanum og
fiðursænginni í nokkra daga
og sjá hvað gerist. Þegar þú
hvílir fiður/dúnsængina og
koddann verður þú að skipta
alveg á rúminu, helst viðra og
ryksuga dýnuna til að losa ryk
úr henni. Til að þurfa ekki að
fjárfesta í gerviefnissæng eða -
kodda til að byrja með er best
að þvo teppi og setja síðan inn
í sængurver og hugsanlega
hrein handklæði inn í kodda-
verið, þetta er bara ein hug-
mynd en aðalatriðið er að sofa
við alveg hreint og nýþvegið.
Ef þú vaknar nú án bjúgs eða
bólgu, þá eru líkur á því að þú
sért með s.k. rykofnæmi. Of-
næmi þetta stafar af maurum
sem þrífast í öllu ryki og er ill-
mögulegt að losna alveg við,
en fiður og dúnsængur fyllast
fljótt af ryki. Þú verður þá að
gera ráðstafanir til að fá þér
sæng og kodda sem má þvo,
nota þykk, sérhönnuð
dýnulök undir lakið þitt, og
ryksuga dýnuna þína öðru
hvoru. Teppi á gólfum og ryk í
koddum og húsgögnum geta
valdið sömu einkennum.
Hafðu samband aftur ef
þetta dugar ekki.
Gangi þér vel,
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirinn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
52 Vi kíin
Netfang: vikan@frodi.is