Vikan - 17.05.1999, Page 53
Vikan
Grœnt og vœnt
-ef rétt er
Það gerist nú æ tíðara
að við viljum losa
okkur við gróður úr
görðunum okkar vegna þess
að hann, og þá ekki síst trén,
er vaxinn okkur yfir höfuð.
Oft eru trén rifin upp með
rótum og þeim síðan ekið á
haugana, en slíkt er að sjálf-
sögðu hin mesta óhæfa því
vel ætti að vera hægt að
finna þeim stað annars stað-
ar. Ekki er ólíklegt að fólk
sem er að koma sér upp
garði vildi þiggja eitt og eitt
gamalt og glæsilegt tré eða
þeir sem hafa eignast sumar-
bústaðaland sem ekki veitir
af að græða upp.
Fólk ætti sem sagt að gera
meira af því að flytja þessi
gömlu tré. Með natni er
hægt að halda í þeim lífi og
þá eru þau sannarlega góð
búbót í nýju og gróður-
snauðu umhverfi.
Besti tíminn til þess að
gróðursetja tré og færa þau
er á vorin þegar klaki er far-
inn úr jörð og tréð í þann
veginn að byrja að laufgast.
Harðgerðar tegundir má þó
einnig færa úr stað á
haustin, en hvenær svo sem
unnið er við gróðursetningu
eða flutning trjáa verður að
gera það varlega og með
hugsun.
Verja verður ræturnar
Venjulega er tíminn frá
því tréð er tekið upp og þar
til það er aftur komið í jörð-
ina því hættulegastur. Þegar
tréð er tekið upp verður að
Fríða
Björnsdóttir
tréð vel fyrst eftir flutning-
inn. Þorni það getur það
haft slæmar afleiðingar í för
með sér. Gæta verður þess
vel allt fyrsta vaxtartímabil-
ið að tréð þorni ekki upp,
síðan nægir að vökva einu
sinni í viku og þá rösklega.
Ekki er þörf á að bera áburð
að nýgróðursettu tré, en það
myndi ekki skaða að holan
sem gróðursetja á tréð í væri
tekin árið áður en tréð er
flutt og í botn hennar væri
þá settur skítur og mold tii
þess að úr yrði eins konar
forðabú fyrir tréð þegar það
kemur á sinn nýja stað að
ári.
Sé farið eftir þessum ráð-
leggingum segja þeir, sem vit
hafa á, að ekki sé nein
ástæða til þess að óttast að
tréð deyi þótt það sé flutt
milli staða.
aðfarið
gæta þess að eins mikið af
rótum þess og frekast er
kostur fylgi með. Látið jarð-
veginn einnig sitja fast að
rótunum og verið ekki að
losa hann frá. Sól má alls
ekki skína á ræturnar og
næðingur gerir þeim heldur
ekki gott, svo ekki sé meira
sagt. Best er svo að vefja
ræturnar inn í rakan striga,
eða stinga þeim niður í
plastpoka, það er að segja ef
tréð er ekki orðið stærra en
svo að það sé hægt.
Gróðursetjið síðan tréð í
létta, góða jörð. Holan, sem
tréð er sett í þarf að vera
rúmgóð, um það bil 60 sentí-
metra djúp og svo víð að
nægilegt rúm sé fyrir rætur
og þá mold sem þeim fylgir.
Gróðursetjið tréð á sömu
dýpt og það var á sínum
upprunalega stað.
Mjög nauðsynlegt er að
styðja við tré sem flutt er á
milli staða. Best er að binda
það upp á þann hátt sem
sýnt er hér á teikningunni.
Gætið þess vel að böndin
sem eru látin halda trénu
uppi, skerist ekki inn í stofn-
inn. Gott er að hafa gúmmí-
pjötlu undir böndunum.
Hún kemur í veg fyrir að
börkurinn særist. Vel getur
verið nauðsynlegt að þessi
stuðningur sé hafður við
trén í nokkur ár. Best er að
stinga staurunum niður í
jörðina áður en tréð er sett
niður í holuna því annars
geta þeir sært ræturnar.
Vökvið vel
Þegar farið er að setja
mold í holuna er rétt að
hreyfa tréð lítillega til og
lyfta því upp til þess að ræt-
urnar falli eðlilega í holuna.
Fyllið hana ekki alveg held-
ur er rétt að hafa svoh'tið
borð á henni þar sem vatn
getur safnast fyrir. Mjög
nauðsynlegt er að vökva
Teikningin sýnir hvernig best er
að bera sig að við flutninginn.
Vikan 53