Vikan - 24.05.1999, Side 2
Norðlensk fegurð frá
Húsavík, Asa María
Guðmundsdóttir.
Forsíðustúlka Vikunnar er
Asa María Guðmundsdóttir
Asa María prýðir
að bessu sinni
forsíðu Vikunnar
sem fulltrúi
Norðurlands
enda Vikan
full af
norðlensku
efni.
Asa María er 18 ára Húsavíkurmær sem bar
titilinn Ungfrú Norðurland árið 1998.
Heimabærinn fær þó ekki að njóta návistar
hennar í bili, að minnsta kosti, því Ása María er
við nám í Menntaskólanum á Akureyri, og for-
eldrar hennar nýlega fluttir í Mosfellsbæinn þar
sem fjöldkyldan er öll búsett á suðvestur horni
landsins.
Sló tvær flugur
í einu höggi
Ása María er á þriðja ári í MA og verður því ein
fyrir norðan næsta árið. Hún ætlar þó að eyða
sumrinu í Mosfellsbænum hjá foreldrum sínum
og verður að vinna á Reykjalundi. Sumarið á ís-
landi verður þó frekar stutt hjá Ásu þar sem hún
stendur í próflestri fram undir mánaðamótin
maí-júní og fer síðan með bekkjarfélögum sinum
í MA í útskriftarferð til Slóveníu í ágúst.
Þegar Ása María er spurð út i fegurðardrottn-
ingartitillinn kemur í Ijós að tilviljun réð því að
hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni í fyrra og
það var fyrirsætukeppni sem kom henni af stað.
"Síðastliðið vor var ég á leiðinni til New York til
að taka þátt í fyrirsætukeppni á vegum John
Casablancas. Að sjálfsögðu þurfti ég þar að vera
í góðu líkamlegu formi, vera brún og sæt, sem
þýddi að ég varð að stunda líkamsrækt af kappi.
Þegar ég var beðin um að vera með í fegurðar-
samkeppninni var ég ekkert mjög spennt en
ákvað að segja já að lokum því mér fannst tilval-
ið að slá tvær flugur í einu höggi og æfa fyrir
þessar tvær keppnir í einu. Það var mjög þægi-
legt. Fyrir utan það hugsaði ég með mér að
seinna meir gæti ég séð eftir því að hafa neitað
þátttöku."
Að grípa tækifærið
Ása viðurkennir að hún hafi verið treg að segja já
við keppninni því henni fannst slík keppni ekki
vera fyrir sig. Hún hafi aldrei fylgst neitt sérstak-
lega með fegurðarsamkeppnum. "En það er um
að gera að nýta öll skemmtileg tækifæri og ég
gerði það," segir hún og sér ekki eftir að hafa
verið með enda bar hún sigur úr býtum. "Ég held
samt að fyrirsætustörf eigi betur við mig en feg-
urðarsamkeppnir. Mérfinnst ég alls ekki hafa
þetta fegurðarsamkeppnisútlit, svona rauðhærð,
freknótt og með Ijósa húð. Ég get þó ekkert full-
yrt um það því ég hef ekki reynsluna af fyrir-
sætustörfunum."
Hún er þó svolítið spennt fyrir þeim í dag og
segir að sjálfsögðu að ferðalögin heilli hvað mest
við starfið, síður fötin og myndirnar. En hún fékk
samt nóg eftir annasamt keppnistímabil í fyrra
og langaði ekki að halda áfram á þessum vett-
vangi. "Eftir að hafa verið í keppninni í New York,
Fegurðarsamkeppni Norðurlands og íslands-
keppninni varð ég svolítið þreytt á þessu öllu.
Þetta hitti ekki skemmtilega á þar sem ég var í
prófum í skólanum og ég naut þess ekki eins að
vera með. Þetta var því eiginlega meira vesen en
hitt og ég fann að fegurðarsamkeppnir eru ekk-
ertfyrir mig."
Ása María hefur því ekki látið enn reyna á fyr-
irsætustörf, en er ákveðin í því að klára skólann
áður en eitthvað gerist. "Ég verð miklu frekar til-
búin þá en ég var nokkru sinni í fyrra. Þá hef ég
líka frjálsari tíma. Ég er ákveðin í að fara út eftir
stúdentspróf og gera eitthvað skemmtilegt. Hvað
gerist kemur í Ijós."
2 Vikan
Texti: Halla Bára Gestsdóttir Mynd: Gunnar Sverrisson