Vikan


Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 6

Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 6
Texti: Róbert Róbertsson Myndir: Baldur Bragason Hópur karlmanna, sem komnir eru af léttasta skeiði, hefur hist í 10 ár í líkamsrækt HALDA SÉR í FÍNU FORMI í 10 ár hefur hópur karlmanna, sem komnir eru af léttasta skeiði, komið saman tvisvar í viku til að stunda líkams- rækt. Margir þessara hressu karla hafa verið með frá upphafi en aðrir bæst i hópinn á undanförnum árum og í dag telur hópurinn um 50 manns. Kapparnir púla saman i líkamsræktarstöðinni Þokkabót undir handleiðslu þjálf- arans Gauta Grétarssonar. Blaðamaður og Ijósmyndari Vikunnar brugðu sér í tima hjá þessum hressu körlum. ÞJÁLFARINN Gauti þjátlari er ánægður meft hópinn. Hann segir að kapparnir séu í góóu forini miðað við aldur. Við byrjuðum að æfa saman í Veggsporti fyrir 10 árum síðan. Hópnum er skipt í tvennt en menn koma alltaf saman í Þokkabót tvisvar í viku. Síðan eru frjálsar æfingar einu sinni í viku og menn æfa líka sam- an golf á laugardögum. Síðan hafa þeir einnig verið að fara í sund, göngutúra eða út að hlaupa," segir Gauti þjálfari, FA UTRAS Kapparnir tóku alniennilega á í æfingunum undir hand- leiðslu Gauta Grétarssonar þjálfara. Þarna fá þeir útrás fyrir streituna. TOKU LOÐIN „I NEFIÐ' Agnar Erlingsson verkfraeð' ingur, til vinstri, og Sverrir Ingólfsson endurskoðandi fóru létt með lóðin. en hann hefur verið með hóp- inn frá upphafi. Gauti segir að hópurinn fari á hverju ári í æfingabúðir út á land. "Við höfum farið austur á Flúðir, að Hlöðum á Snæ- fellsnesi, í Reykholt og nú í ár förum við í Vík í Mýrdal. Þetta eru tveggja daga ferðir og síðan er haldin árshátíð seinna kvöldið. Þannig að þetta eru bæði æfinga- og skemmtiferðir. í góðu formi miðað við aldur Það er óvenju döpur mæting í þessum tíma, aðeins 12 kempur mætt- ar til leiks. Gauti segir að menn missi stundum úr vegna vinnu eða ferðalaga. Það er þó Ijóst að hópurinn sem er mættur, tekur á af full- um krafti. Þarna eru menn misjafnir að stærð og þyngd en þeir virðast allir vera í góðu formi. Gauti lætur þá byrja á upphituninni en síðan taka þeir mismunandi æfing- ar, teygjur, hopp, sipp og lyft- ingar undir takfastri tónlist. Gauti tekur tímann og síðan skipta þeir jafnt og þétt um æfingar. Svitinn dropar af köppunum en þeir púla áfram og gefa ekkert eftir. "Þessir kappar eru í góðu formi miðað við aldur. Mark- miðið hjá okkur er ekki bara að hugsa um fitulagið heldur snýst þetta aðallega um að menn hittist, liðki sig og haldi sér í formi. Hér fá þeir útrás fyrir streitu hversdagsins og vinnunnar. Við gerum ýmsar æfingar en við erum lausir við þessar tískuæfingar eins og palla og spinning. Við leggj- um áherslu á góða upphitun, miklar liðkunaræfingar, þolæf- ingar og eins styrkjandi æf- ingar. Við endum síðan á teygjuæfingum. Með þessu náum við inn þessari heild- rænu þjálfun sem skiptir mestu máli," segir Gauti. Hann þekkir vel til varðandi þjálfun líkamans því hann er bæði sjúkraþjálfari og fþrótta- þjálfari. Hann hefur m.a. þjálf- að meistara- flokkslið Gróttu í handknattleik og sér nú um þjálf- un yngri flokka félagsins. Ekki lengur feitastur "Þetta er hörkupúl en þetta er líka mjög gaman og ekki síður gott fyrir mann. Ég er búinn að færa mig um um þrjú göt á beltinu farin síðan í janúar og það segir manni mikið. Það er ekkert að marka vigtina heldur er það beltið sem telur. Ég var feit- astur í hópnum í janúar, þeg- ar ég byrjaði í ræktinni, en nú er ég ekki lengur feitastur," segir Þröstur Jónsson bók- bindari og brosir út í annað þótt hann sé á fullu í erfiðum teygjuæfingum. Agnar Erlingsson verkfræðingur tekur vel á lóðunum um leið og hann tjáir blaðamanni að þetta sé allt annað líf eftir að hann byrjaði í ræktinni. "Það er geysilega gott að halda sér í formi. Ég er mjög ánægður með þetta," segir hann um leið og hann hífir lóðin yfir höfuð sér. Sigurður Harðarson arkitekt er einn þeirra sem hefur verið þarna í áratug. "Þetta er al- ger lífsnauðsyn. Ég er alveg ómögulegur ef ég sleppi úr tíma og reyni því að mæta alltaf ef ég get. Ég gef mig í þetta af lífi og sál. Ég kem 6 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.