Vikan - 24.05.1999, Page 25
þau neyti hlutfallslega stærri
skammta af þessum efnum
en fullorðnir. Talið er að E-
951 hafi valdið krampaköst-
um í ungum börnum og enn
hefur ekki tekist að hrekja
þær kenningar að hin efnin
þrjú, E-950, E-952 og E-954,
geti valdið krabbameini.
Fleiri liggja undir
illum grun
Nokkur önnur efni eru illa
séð af næringarfræðingum.
Má þar til dæmis nefna efni
eins og E-621 (natríum-
glutamat), sem notað er sem
krydd en sannast hefur að
það dregur úr frjósemi dýra.
Þá eru ótalin E-220 og E-
320, sem bæði eru notuð í
kartöflustöppu, en E-220
getur valdið asmaköstum og
E-320 kallað fram ofæmis-
einkenni.
Ástæðulaus ótti og
hræðsluáróður?
Svo eru aðrir sem halda
því fram, að þessi ótti sé
ástæðulaus og í raun ekki
annað en hræðsluáróður.
t>að er staðreynd að
mataróþol hefur aukist mik-
ið á síðastliðnum áratug, en
enginn veit hver ástæðan er.
Það er því erfitt að segja til
um hvað er ástæða og hvað
afleiðingar.
Þeir sem verja notkun E-
efna í mat halda því blákalt
fram, að miðað við þau
mörk sem gefin eru, sé eng-
in hætta á að nokkur maður
geti fengið nógu stóra
skammta af þessum efnum í
líkamann með neyslu venju-
legs matar til að þau geti
valdið skaða.
Hverju á að trúa? Hvað er
til ráða fyrir þá sem vilja
ekki láta eitra fyrir sér?
Fyrst er auðvitað að
kynna sér efnin og hugsan-
leg áhrif þeirra og lesa inni-
Byggt meðal annars á bókinni
E-nummer i maten" eftir Tron
Soot-Ryen.
haldslýsingar þegar maður
kaupir í matinn.
Helsta ráðið er að gæta
þess að láta ekki meira ofan
í sig af E-efnum en þörf
krefur, en það gerir maður
helst með því að borða
meira af mat sem búinn er
til úr fersku hráefni, eða
með því að velja aðeins þá
rétti sem innihalda sem
minnst af þeim efnum sem
maður treystir ekki.
„Óvinalistinncc
Hér er listi yfir þær vörur sem venjulega innihalda mikið af E-efnum (aukefnum):
• Gos og sykurlausir drykkir • Majónes, olíusósur og remulaði
• Kartöflustappa • Pakkaís
• Sælgæti. ntargar gerðir • Margar gerðir megrunarfæðis
(að súkkulaði undanskildu) • Gervisæta, ýmiss konar
• Kex og smákökur úr pakka • Tyggigúmmí, flestar gerðir
• Sósur, súpur og pottréttir úr pakka • Ungbarnavítamín, margar gerðir
Vikan 25