Vikan - 24.05.1999, Page 56
Texti og myndir: Fríða Björnsdóttir
Uin allan garð eru blóinaker
sein eru til inikils skrauts.
15 * j
m # T 1 1 1 [# M TnJ [mj
kf tM wfm*
KL 1 {£ 1* n I iT»I* [m i n [i
Það fer býsna vel sam-
an að hafa áhuga á
blómum og garðrækt
annars vegar og ferðalögum
hins vegar. Fátt er nefnilega
skemmtilegra en að dást að
fallegum görðum og gróðri á
ferðalögum erlendis og
reyna að ímynda sér gróður-
inn kominn heim í okkar
eigin garð. Því miður lifa
ekki öll þau blóm og tré sem
við sjáum í öðrum löndum
hér á landi, en sumar plönt-
ur komast hér af á okkar
köldu sumrum. Gott dæmi
er pelargónían sem einu
sinni sást ekki nema á
gluggakistum blómakvenna
hér en hangir hins vegar
utan á húsum sumarlangt
um alla Evrópu. Landinn
hefur nú komist að raun um
að pelargónían þrífst hér
líka utan dyra og hún er
orðin eitt af vinsælustu sum-
arblómunum en hún er
reyndar fjölær þar sem veðr-
áttan hæfir henni enn betur.
Og þótt við getum ekki
flutt heim með okkur blóm,
sem við sjáum í erlendum
görðum, getum við að
minnsta kosti flutt með okk-
ur hugmyndir að skipulagi
og sömuleiðis að klippingu
trjáa og runna. Það er nefni-
lega ekkert sem segir að
ekki megi klippa tré og
runna í kúlur og keilur þótt
þau vaxi á norðlægum slóð-
um og því er rétt að gefa
hugmyndafluginu lausan
tauminn og gera tilraunir
eftir að heim kemur úr
ferðalaginu.
Glæsigarðar í Salzburg
Mirabell garðarnir í Salz-
burg eru vinsælir viðkomu-
staðir ferðamanna sem leið
eiga um borgina. Þeir eru
aldagamlir og þar eru ekki
aðeins plöntur mikið augna-
yndi heldur einnig styttur og
byggingar. Mirabell höllin,
sem garðarnir umlykja, var
upphaflega kölluð Altenau.
Bygging hallarinnar hófst
árið 1606 en höllin var reist
sem íverustaður Salome
nokkurrar Alt, hjákonu