Vikan - 24.05.1999, Blaðsíða 58
Texti: Kristján Frímann
(21 .maí - 20.júní)
Tvíburabræðumir Kastor
og Pollúx, synir Ledu
drottningar af Spörtu
og Seifs sem brá sér í
svanslíki er hann vitjaði
drottningar, fæddust úr sitt
hvoru egginu og eru tákn
þeirra eiginleika sem Tvíbur-
inn er kenndur við. Annar er
þar sem þeir eru fljótir að
hugsa eru þeir eldsnöggir að
meta aðstæður og svara fyrir
sig ef með þarf og þá geta
þeir orðið naprir í háði sínu.
Svo brosirTvíburinn og allt er
gleymt. Tvíburinn hefur mikla
útgeislun og hrífur fólk með
sér; fallegar línur hans og sí-
fulltrúi innri afla mannsins en
hinn þeirra ytri. Alþjóðlegt
heiti merkisins „Gemini" er
latnesk þýðing á gríska orð-
inu Didymoi sem merkir tví-
buri; sá sem ber himin og jörð
eða er með öðrum orðum
bæði andlegur og veraldlegur.
Sannur tvíburi er því raunsær
hugsjónamaður.
Eðli og eiginleikar
Tvíburinn hefur karlmann-
legt yfirbragð, hann er herða-
beinn og ber sig líkast goði
með frjálslegu fasi sínu enda
er hann loftmerki. Hann hefur
sveigjanlegt eðli og á auðvelt
með að laga sig að ólíkum
aðstæðum. Þetta gerir þá
sem fæddir eru í merkinu að
tjáningarmiklum, opnum ein-
staklingum sem vilja leggja
heiminn að fótum sér. Þeir
eru að mestu glaðlyndir þótt
þeir skipti ört skapi og lítið
þurfi til að setja þá út af lag-
inu og koma þeim í óstuð, en
ungir drættir laða, svo allir
sem kynnast Tvíburanum vilja
sem mest hafa af honum að
segja og helst búa með hon-
um.
Hugur og hjarta
Hugsun Tvíburans er mjög
virk, svo virk að hún getur yf-
irtekið tilfinningarnar og ástin
verður oft að verkefni til úr-
lausnar frekar en þörf til tján-
ingar. Hugtök eins og gifting
og skuldbinding er eitur í
beinum Tvíburans, hann vill
hafa sinn háttinn á í sam-
böndum sínum og honum
lætur vel að daðra við ást-
leitna einstaklinga án þess að
meina nokkuð sérstakt með
hegðan sinni annað en að fá
athygli. Falli hann hinsvegar í
net ástarinnar og elski ein-
hvern annan en sjálfan sig út
af lífinu, verður hann þeim
sama trúr og dyggur elskhugi
og vinur fram í rauðan dauð-
ann.
Tvíburinn hefur sveigjanlegt eðli. Hann
^8 Vikan persónuleiki seni vill leggja heiminn að
Ahugamál og störf
Þar sem Tvíburinn er hreyf-
anlegt merki tengjast áhuga-
mál hans hreyfingu og þau
tengir hann starfsframa sín-
um. Hann slær því tvær flugur
í einu höggi og gerist leið-
sögumaður til að njóta útiveru
á launum og fá ómælda at-
hygli. í frístundum fer hann á
skíði, syndir, leikur tennis eða
gælir við farsímann. Tvíburinn
er að upplagi leiðbeinandi
sem ber hag heildarinnar fyrir
brjósti, því henta honum störf
sem lúta að tilsögn, svo sem
kennarastarf, afskipti af
stjórnmálum, verkstjórn eða
stjórn af einhverju tagi, blaða-
mennska og önnur fjölmiðla-
störf. Þá sækja Tvíburar í
leiklist enda er þeim einkar
lagið að bregða sér í ólík hlut-
verk, Tvíburinn er jú tveir.
Draumadísin Marilyn Monroe
varTvíburi og heillaði fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna,
John F. Kennedy og fleiri karl-
menn.
Tíska og litir
Tvíburinn er voðalega
veikur fyrir áliti umhverf-
isins, þótt hann vilji ekki
viðurkenna það, og
sækist leynt
og Ijóst eftir
áliti ann-
arra á útliti
sínu og
klæðaburði.
Þetta óör-
yggi truflar
Tvíburann
mjög og
ruglar hann
oft í ríminu.
En Tvíburinn
hefur inn-
byggðan
smekk fyrir
ytra útliti og er
oft ótrúlega
lunkinn að
finna flott-
er opinn
fótum sér.
ustu fötin í búðinni eða smört-
ustu skartgripina. Tvíburinn
getur verið dýr í vali sínu en
hann er umfram allt smekk-
legur og laus við prjál. Litir
sem henta Tvíburafólki eru
bjartir litir sem geisla, líkt og
gulir litir, en hann á þó til að
fara út í öfgar og klæðast ým-
ist litlausum fötum eða
eldrauðum, allt eftir skapi.
Hann er þó umfram allt
smekkmaður með látlausan
og einfaldan smekk, yfirleitt
velur hann sér einhvern
ákveðinn grunnlit, svo sem
svartan, og kryddar hann
með björtu litunum þannig að
útkoman verður glæsileg.
Líkami og heilsa
Tvíburar eru viðkvæmar
sálir og þola illa mikið álag.
Þeir eru því frekar stressaðir í
daglegu lífi þótt það sjáist
ekki utan á þeim. Ef álagið er
mikið bitnar það fyrst á veikari
hliðum Tvíburans sem eru
handleggir, axlir, háls og
lungu. Þeir eru fyrstir manna
að þefa uppi kvef og aðra
sjúkdóma sem ráðast á
slímhúðina, svo sem
bronkítis.Tvíburum er
hættara en öðrum við
að handleggs-
brjóta sig eða
lenda í óhöpp-
um á ferða-
lögum, sér-
staklega ferð-
um tengdum
flugi. Þar sem Tví-
burinn hefur flökt-
andi eðli og skiptir
fljótt úr einu í annað
á hann það til að
pirra aðra og lenda í
útistöðum við fólk án
minnstu hugmyndar
um hvers vegna og
kemur af fjöllum þeg-
ar á hann er ráðist.
Þetta skapar hættu á
líkamlegum átökum