Vikan


Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 2

Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 2
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Frumleg íslensk hönnun Anna Málfríður Jóns- dóttir er nýútskrif- uð af hönnunar- braut Iðnskólans í Hafnar- firði. Hún var dúxinn meðal hönnunarnema og hlaut auk þess verðlaun fyrir hönnun sína á kommóðu sem gerð er úr viði og bárujárni. Anna Málfríður er fædd og uppalin á Isafirði og kom gagngert suður fyrir ári síð- an til að fara í þennan skóla. „Ég byrjaði í menntaskóla þegar ég var unglingur en hætti eftir tvö ár því námið átti ekki við mig. Ég vissi ekkert hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Síðar stofnaði ég fjölskyldu og var upptekin af að hugsa um börnin. Hönnun hefur alltaf höfðað til mín þannig að ég sótti um þennan skóla og flutti með fjölskylduna og allt okkar hafurtask frá ísa- firði. Ég var búin með öll bókleg fög og tók tveggja ára verklegt nám á einu ári. Þetta var hörkuvinna og mjög stíft að púsla saman fjölskyldunni og skólanum," segir Anna. Ekki verður annað sagt en að hún hafi haft erindi sem erfiði ef miðað er við árang- urinn. Iðnskólinn í Hafnar- firði veitir árlega þrenn verðlaun til nema á hönnun- arbraut. Verðlaununum er ekki raðað niður eftir fyrsta, öðru og þriðja sæti heldur hljóta þrjú verk jafna viður- kenningu. „Dómnefndin lagði mikið upp úr efnisvali og formi. Bárujárn er gamalt efni sem ég er að nota á nýjan hátt. Ég hannaði líka sófaborð í sama stíl eftir að ég var búin að vinna kommóðuna. Ég vildi sjá hvort ég gæti gert húsgagnalínu í þessum stíl. Ég veit eiginlega ekki hvað réði því að ég valdi báru- járn. Þetta bara sló mig. Ég hef alltaf verið hrifin af gömlum húsum og á gamalt, bárujárnsklætt timburhús vestur á Isafirði sem bíður þess að við gerum það upp. Maðurinn minn er húsa- smiður og við „stúderum“ saman gömul hús og veltum því fyrir okkur hvernig hent- ugast sé að gera þau upp. Bárujárn er svolítið misskil- ið efni og synd hvernig nýjar klæðningar eru að ryðja því úr vegi. Ég sá líka strax þeg- ar ég var að skoða viðinn í kommóðunni, sem er birkikrossviður, ljós og nán- ast kvistalaus viður, að báru- járn ætti vel við hann. Hlið- ar kommóðunnar eru boga- dregnar og bogarnir eru í stíl við bylgjurnar í báru- járninu. Eins notaði ég venjulega bolta, sem mikið eru notaðir á þök, til að festa járnið við viðinn. Ég vildi hafa festingarnar gróf- ar og groddalegar. „ Hönnun byggist ekki hvað síst á frumlegri hugsun og sköpunarkrafti. Anna Mál- fríður virðist hafa hvoru- tveggja og það verður gam- an að fylgjast með verkum þessa verðlaunanemanda í framtíðinni. Kommóða akklæðningu Myndir: Sigurjón Ragnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.