Vikan - 13.07.1999, Blaðsíða 36
Kínahreðkusalat
240 g kínahreðka, flysjitð
50 g strengjabaunir
40 g heslihnetur, ristaðar og gróf
saxaðar
2 msk. fersk mynta, söxuð
1 msk. hunang
5 msk. eplaedik
Aðferð: Hreðkan er rifin niður.
Strengjabaunirnar skornar, þær for-
soðnar og kældar. Hunangi og ediki er
blandað saman. Þessu er síðan öllu
blandað saman ásamt hnetum og
myntu og látið helst standa í um það
bil 30 til 60 mínútur til að það nái
bragðinu í sig og mýkist.
Dressing fyrir salat
2 skalottlaukar
1 búnt fersk basilíkum
2 appelsínur, afltýddar
30 gferskt engifer, afhýtt og skorið
l/4ferskur chíle pipar
1/2 til 1 dl bragðlítil ólífuolía
Aðferð: Þetta er allt sett í mat-
vinnsluvél og maukað í eina til tvær
mínútur. Kryddið með salti og pipar
og jafnvel dijon sinnepi.
Hýðishrísgrjón
300 g brún hýðisgrjón, lífrænt ræktuð
600 ml vatn
2-3 negulnaglar
Aðterð; Hýðisgrjónin eru hreinsuð
vel upp úr köldu vatni. Pottur er hit-
aður og tveir til þrír negulnaglar settir í
og hitaðir. Þá er grjónunum bætt í og
hlutfall einn á móti tveimur og þau
soðin í 30 til 40 mínútur eða þar til þau
eru tilbúin. Saltið eftir smekk.
Grænar baunir og maís pottur
250 g ferskar, grænar baunir
250 gfersk maískorn
2 laukar, skornir ífjóra báta hvor
1 stjörnuanis
2 laukfræ
1/2 kanilstöng
1 heill, þurrkaður chílepipar
Aðferð: Pottur er hitaður og olía sett
í hann. Þá er kryddið sett út í, nema
chílepiparinn, og vel brúnað. Næst er
chílepiparinn mulinn út í. Lauknum er
bætt út í og er hann brúnaður vel. Því
næst er maís og baunum bætt saman
við. Má ekki brúna. Ef þetta verður
viðkvæmt er hægt að bæta við um það
bil einum desilítra af vatni. Hrært vel í
þar til þetta er orðið vel heitt. Krydd-
að með salti og pipar.
Þessi réttur er mjög góður því hér er
hægt að prufa fleiri útgáfur eða við-
bætur, til dæmis nreð því að setja
fenniku með lauknum eða endive
(jólasalat). Einnig er hægt að setja
hvaða kryddjurtir sem er í pottinn
og/eða hræra dressingu eða olíu sam-
anvið.
36 Vikan