Vikan - 13.07.1999, Blaðsíða 6
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson
Á pöbbarölti
Flestir fara í sveitina með því hugarfari að slappa af og komast í nánari tengsl við nátt-
úruna. En allt er í heiminum hverfult og sveitasælan er þar engin undantekning. Lítil
kaffihús og krár spretta upp eins og gorkúlur í sveitum Suðurlands. Þyrstir borgarbúar
geta því kíkt á krána í sveitinni, rétt eins og í hinni stóru Reykjavík.
Það er stórskemmtileg upp-
lifun að fara á pöbbarölt í
sveitinni. Lengra er á milli
staða en Reykvíkingar eiga að
venjast á kráarrölti í miðbænum.
Sökum þess er um tvennt að
velja: Annaðhvort að halda sig við
eina ákveðna krá, sé ætlunin að
bragða á drykkjunum, eða fá sér
góðan bílstjóra sem nennir að
bruna á milli hreppa.
Blaðamaður og Ijósmyndari
Vikunnar skruppu austur fyrir fjall
eitt föstudagskvöldið og upplifðu
sanna kráarstemmningu í sveit-
inni. Eins og við er að búast er
ekki hægt að koma við á hverri
einustu krá í uppsveitum Árnes-
sýslu á einu kvöldi, þannig að
ekið var hingað og þangað um
sveitirnar. Kaffihúsastarfsmenn
voru líka elskulegir og hringdu á
milli staða til að kanna stemmn-
inguna á hinum kránum. Sumar
voru lokaðar en aðrar tómar.
Kaffihúsa- og kráarstemmn-
6 Vikan
ingin á íslandi er ekki gömul en
óhætt er að fullyrða að íslending-
ar séu fljótir að tileinka sér nýj-
ungar. Fyrir örfáum árum var ekki
hægt að finna kaffihús í smærri
byggðarlögum, en að undanförnu
hefur þeim fjölgað gífurlega hratt.
Fyrir nokkrum árum var Árni
Hjaltason, ungur maður úr Hruna-
mannahreppi, við vinnu í Laugar-
ási í Biskupstungum og langaði
skyndilega að bregða sér á kaffi-
hús. Það var hvergi að finna en
Árni komst að þessu sinni ein-
ungis inn í næstu sjoppu og gat
fengið sér kókflösku. Hugmyndin
að kaffihúsi var komin í kollinn
og því næsta mál að koma henni
í framkvæmd. Flúðir í Hruna-
mannhreppi urðu fyrir valinu en
íbúar í sveitinni eru í kringum
600 fyrir utan sumarhúsagesti og
ferðamenn sem flykkjast þangað
hverja helgi.
Árni hófst handa við að láta
draum sinn rætast og nokkrum
mánuðum síðar var Útlaginn, lítið
kaffihús og bar, opnaður með
pompi og prakt.
Við hittum Árna að máli er
hann stóð vaktina við barinn en
Útlaginn á þriggja ára afmæli um
þessar mundir. Húsnæðið varð
fljótt of lítið eins og oft vill verða
þegar fyrirtækjum vegnar vel.
Kafffihúsið er timburhús sem er
kringlótt eða réttara sagt átt-
hyrnt. Húsið var í kringum 50 fer-
metrar og þegar Árni sá hversu
vel sveitungarnir tóku þessari ný-
breytni bætti hann öðru húsi við
og tengdi þau saman. Þar með
hafði Útlaginn þrefaldað stærð
sína og var orðinn 150 fermetrar
með tengibyggingunni.
Þegar Árni fór upphaflega að
ræða hugmyndina um kaffihús
við vini og vandamenn heyrðust
háværar efasemdaraddir. „Fólk
trúði því ekki að hægt væri að
reka kaffihús á Flúðum. Það voru
margir sem sögðu mér að þetta
væri einfaldlega ekki hægt. Ég lét
það ekki aftra mér og síðan ég
opnaði hafa sveitungar mínir ver-
ið mjög duglegir að koma hingað.
Þeir eru ánægðir að geta farið á
einhvern stað á kvöldin til að fá
sér hressingu og
spjalla saman.
Fólkið í sumar-
bústöðunum í
kring kemur líka
mjög oft og þeg-
ar hópar eru á
Tóti í Þjóttu á tali við Ingu Jónu. Tóti er ánægður
með kaffihúsið og segist eyða drjúgum tima á
staðnum. „Útlaginn er heitasti staðurinn í hreppn-
um. Það má segja að þetta sé mitt annaö heimili,
því reikningarnir mínir eru sendir beint hingað á
Útlagann."
tjaldstæðunum er oft mikið að
gera.“
Árni tók nýlega að sér fleiri
verkefni þegar hann fór að reka
Tjaldmiðstöðina á Flúðum, beint
á móti kaffihúsinu. Ævintýra-
mennsku hans virðast engin tak-
mörk sett því í mörg ár keppti
hann í kvartmílu og varð íslands-
meistari árið 1997 og 1998.
Hann hefur nú þurft að gefa
kvartmíluna upp á bátinn vegna
fyrirtækjarekstursins.
Sjálfsagt býður enginn kaffi-
húsaeigandi á landinu upp á betri
þjónustu en Árni því hann mætir
á limósínu til að sækja gestina.
Limósínan er ein margra hug-
mynda sem Árni hefur hrint í
framkvæmd. I\lú ekur hann um
sveitina á „limmunni" og fólk
getur pantað eðalvagninn eins og
leigubíl. Gestirnir þurfa einungis
að greiða leigubílagjald fyrir
þjónustuna og mörgum finnst
spennandi að geta ekið um í eð-
alvagni þegar þeir skreppa á
kaffihúsið.
Er einhver skipulögð dagskrá á
Útlaganum á kvöldin?
„Við reynum að hafa trúbador
um hverja helgi yfir sumarið en
aðra hverja helgi yfir vetrarmán-
uðina. Það hefur gefist mjög vel