Vikan - 13.07.1999, Blaðsíða 56
Texti: Hrund Hauksdóttir
Hvað er að góðu gæjunum?
Hann er sætur, góður og hugulsamur, en hann er einfaldlega ekki þín týpa.
Hvernlg getur þú losnað við hann án þess að særa tilfinningar hans?
Flestar konur hafa ein-
hverju sinni verið í þeim
sporum að virkilega góð-
ur og elskulegur maður
hafi verið að gera hosur
sínar grænar fyrir þeim
en þær ekki haft áhuga.
„Hann er of góður, of al-
mennilegur og of fullkom-
inn,“ segjum við í kvört-
unartón. Oft á tíðum eru
þetta menn sem við konur
lítum á fyrst og fremst
sem vini okkar, við berum
engar rómantískar tilfinn-
íngar til þeirra og hryllir
við tilhugsuninni um að
sofa hjá þeim. Hlutverk
þessara karlmanna í lífi
okkar kvenna er fólgið i
vináttu og gagnkvæmu
trausti í líkingu við sam-
bönd okkar við bræður
eða náfrændur.
En hvað tökum við til
bragðs ef góður og dygg-
ur karlkynsvinur tekur
skyndilega upp á því að
gefa okkur undir fótinn
og kynferðislegur undir-
tónn fer að einkenna
framkomu hans? Og hvað
með alia góðu, prúðu
gæjana í kringum okkur
sem væru svo tilvalið eig-
inmannsefni en við fáum
gæsahúð við tiihugsunina
um náin samskipti við
þá?
Síminn hringir látlaust hjá
þér á föstudagskvöldi og
þú veist að það er hann.
Guði sé lof fyrir númerabirtinn!
Þessi „gúddí" gæi, sem þú
kynntist í matarboðinu um síð-
ustu helgi, hann er búinn að
hringja á hverju kvöldi út vik-
una. Það voru mistök að gefa
honum símanúmerið... En
hvað gerir maður ekki þegar
svona kurteislega ýtinn, full-
kominn maður suðar í þér um
að fá að hitta þig aftur af því
honum finnst þú frábærasta
kona sem hann hefur hitt? Það
getur verið erfitt að segja nei,
sérstaklega ef þú ert ein af þeim
fjölmörgu konum sem ekki vill
særa neinn. Afleiðingarnar
verða svo meðal annars þær að
þú forðast símann, ert með
bullandi samviskubit gagnvart
þessum ágæta manni og hefur
ekki hugmynd um hvernig þú
átt að losna við hann án þess að
valda honum hugarangri. Stóra
spurningin hér er: Ertu svona
mikil bleyða eða finnur þú til of
mikillar samkenndar með
fólki? Orsökina er líklegast að
finna í því að við þekkjum sjálf-
ar þann veruleika að vera hafn-
að og ömurlegheitunum sem
fylgja því og óskum ekki
nokkrum manni þess hlutskipt-
is. Ef þú ert almennileg þá sit-
urðu uppi með hann. Ef þú
kemur hreint fram og segist
engan áhuga hafa þá finnst
honum þú kvikindisleg.
Það er ekki sniðug hugmynd
að reyna að losna við hann með
því að gefa upp vitlaust síma-
númer. Maðurinn verður syngj-
andi glaður og hlakkar til að
hitta þig aftur, en kemst svo að
því að hann hefur verið hafður
að fífli. Trúlegt er að karlmenn
kjósi heldur að höfnunin sé dul-
búin sem saklaus, hvít lygi. En
eru það ekki fals og svik líka?
Nei, það þarf alls ekki að vera
svo. Hver græðir á því að þú
segir manni að þér finnist hann
óaðlaðandi? Þú vilt sjálf ekki
þurfa að segja það og hann vill
örugglega ekki heyra það.
Hvað vilja menn þá
heyra?
Þeir geta t.d. mun betur sætt
sig við að konan segist eiga
kærasta. Það er lögleg afsökun
sem lýtur markaðslögmálum til-
hugalífsins. En hvernig horfa
málin við ef hann veit með
vissu að þú ert einhleyp? Þá er
mögulegt að skýla sér á bak við
það hversu einstaklega upptek-
in þú sért þessa dagana og þú
hafir engan tíma aflögu fyrir
frekara félagslíf.
Þú ættir að hafa það fyrir
reglu að gefa aldrei upp síma-
númerið þitt og ef karlmaður
innir þig eftir því þá getur þú
Guði sé lof fyrir
númerabirtinn!
hæglega sagt honum að þú gefir
það aldrei upp. Ef hann ætlar
ekki að gefa sig stingdu þá upp
á því að þú fáir númerið hans,
sem þú ætlar auðvitað aldrei að
nota! En með því móti heldur
hann þó sjálfsvirðingunni og þú
losnar á snyrtilegan hátt við
frekari samskipti við þennan
ljúfling.
Flestir karlmenn eru sam-
mála um að þeir vilji vita það
fyrr en seinna hvort um áhuga
sé að ræða af hendi konunnar
eða ekki. Þeim finnist betri
kostur að fá sannleikann beint í
æð, þótt óþægilegt geti verið,
heldur en að hlusta á endalaus-
ar afsakanir og kurteisishjal í
kannski heila tvo mánuði eða
svo. Sumir virðast þó alls ekki
kveikja á perunni. Stundum
læðist að manni sá grunur að
þeir vilji ekki kveikja á henni
og horfast í augu við sannleik-
ann heldur halda áfram að
berja hausnum við steininn ...?
Góðvildin drýpur af
honum
Margar konur velta fyrir sér
hvers vegna þær geti aldrei fall-
ið flatar fyrir góðum gæjum og
forðist þá eins og heitan eldinn
þegar þeir verða á vegi þeirra.
Hvað gerir góða og umhyggju-
sama menn svona fráhrindandi
í augum margra kvenna? Ætli
það sé ekki sú staða sem þeir
þröngva konum í með blíðri og
tillitssamri framkomu sinni,
samúð og skilningi? Það er
nefnilega oft svo erfitt og þrúg-
andi að vera maður sjálfur í
samneyti við menn sem góð-
vildin drýpur af. Þá setur maður
sig ósjálfrátt í stellingar stilltu
og góðu stúlkunnar, svona til að
vera í takt við hann. Þér finnst
þú neyðast til að vera yfirveguð
og formföst en sleppir allri
kaldhæðni, kímni og kostuleg-
um slúðursögum. Ósjálfrátt rit-
skoðar þú sjálfa þig sem per-
sónu og þvingar þig til að aðlag-
ast prúðmannlegum háttum
góða gæjans. Þú ert ekki þú
sjálf í nærveru hans og þar ligg-
ur einmitt hundurinn grafinn;
það er þvingandi tilfinning sem
engum er holl.
56 Vlkan