Vikan


Vikan - 13.07.1999, Síða 4

Vikan - 13.07.1999, Síða 4
Kœri lesandi... Góðar frettir og vondar Hvort viltu góðtt fréttirnar eða vondu fyrst? Pú fœrð góðu fréttirnar fyrst því þœr eru í Vikunni. í þessari Viku byrjar nefnilega nýr leikur fyrir alla þá sem kaupa blaðið. Einfaldttr og aiiðveldur leikurþar sem þú safnar bara saman þrem forsíðuhornum og sendir okkur. Þá ertu komin í lukkupottinn sem dregið er úr um hver mánaðamót, ífyrsta skipti 1. ágúst og þú getur eignast nýtt heimlistœki þér að kostnaðar- laiisu. Þessi leikttr mun halda áfram á Vikunni svo þú getur haldið áfram að safna hornttm og tekið þátt í leiknum í hverjum mánuði efþað hentar þér, eða annan Itvern mánttð efþað hentar þér betur. Um leið og þú átt þrjú horn getur þú sent þau, - það sakar ekki að eiga fleiri en eitt ttmslag í hverjum útdrœtti. Viðbót við þessar góðttr fréttir er svo að blaðið er að vanda fullt af vönd- tiðu lesefni. þar má meðal annars finna verðlaunasmásögtt, viðtöl, líf- legt efni af Siiðurlandi, grein um lík- amann sem söluvöru, lífsreynslu- sögu, mataruppskriftir og fleira ogfleira. Vondtt fréttirnar fœrðu ífréttatímum sjónvarps. Eða kannski á maður heldur að segja Ijótu fréttirnar því fréttamennirnir vinna fréttirnar að öllu jöfntt ekki illa. Eg verð þó að viðttrkenna að mér ofbýður gersamlega sumt það sem okkur sjónvarpsáhorfendttm er boðið ttpp á í frétta- tímunum. Síðustu helgina fyrir mánaðarmótin horfði ég á fréttatíma RUV bœði föstudags- og sunnudagskvöld. Á föstudags- kvöldinu var frétt um ofbeldisverk í Kosovo (eins og venju- lega) og þar var sýnd viðbjóðsleg mynd afbrenndu líki í rúmi og hauskúpu sem maður fann úti á víðavangi. Égfyllt- ist reiði við að horfa á þetta klukkan rúmlega sjö á föstu- dagskvöldi ífréttatíma ríkissjónvarps. A sunnudagskvöldið horfði ég aftur á fréttirnar og það kvöld var sýnd frétt um nýfundnar fjöldagrafir í Kosovo og meðal óhugnaðarins íþeirri frétt var nœrmynd afandliti óhugnan- legs líks. Stuttu seinna í fréttatímanum var sagtfrá samningi Hitlers um útrýmingu gyðinga og með þeirri frétt var sýnd viðbjóðleg mynd afstórum haug af skinhoruðum líkum úr fangabúðum nasista í Þýskalandi. Ekki var einu sinni haftfyrir að vara áhorfendur við þessum myndum áður en þœrfóru í loftið. Til hvers?! Hvers vegna í ósköpunum þarfað sýna þennan óhugnað með fréttunum? Er hin lesnafrétt ekki tiógu áhrifarík án þess? Eru fréttamennirnir smeykir um að almenningur skynji ekki óhugnað fréttarinnar nema að þessu sé nuddað í augun á þeim? Eða ertt þeir sjálfir svo andlega sljóir og samdauna þessum viðbjóði að þeir skynji hatin ekki? Fréttamenn verða að setja sig inn í aðstœður venjulegra áhorfenda, þar sem foreldrarnir hafa áhuga á að fylgjast með fréttum og eiga ekki að þurfa að lœsa sig inni á meðan til að verja börnin sín. Það er álitamál hvort eigi yfirleitt að sýna svona myndir í fyrri fréttum sjónvarps, persónulega finnst mér það alger óþarfi. Það er hins vegar engin spurning að fólk á rétt á að varað sé við svona fréttamyndum áður en þœr fara í loftið. Ég hefþá skoðun að það bœti hvorki aðstœður í heiminum, né heldur auki það skilning almennings á hörmungum mannkynsins að birta svona myndir. Þœr eru til þess eins fallnar að eitra hugann, skjóta börnttm skelk í bringu og í verstafalli gerafólk ónœmtfyrir viðbjóði, en það er það skelfilegasta sem getur hent þennan heim. En það má auðvitað slökkva efmanni líkar ekki það sem er á skjánum og grípa til annarra fjölmiðla, því segi ég bara Njóttu Vikunnar! IRitstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal- ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 | Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 ^ 5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: jj 515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður jj I Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V. jj j! Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristin Guðmunds- ; |! dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is í Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein- j i grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef j í greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef j í; greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið í j !; Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi !; !; efni og myndir Steingerður Hrund Margrét V. Kristín Anna B. Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- Þorsteins- dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir blaðamaður auglýsinga- auglýsinga stjóri stjóri Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.