Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 7
í sveitinni
l'Jíki sla inl ;ió ”i l;i
skm|)|)i("> ;í liiiiósíini
;i næslii kr;i.
og yfirleitt er frábær stemmning.
Samsetning gestanna á svæðinu
hefur heilmikið að segja til um
hvernig stemmningin er hérna inni.
Stundum eru starfsmenn heilu fyrir-
tækjanna á tjaldstæðunum og þeir
kíkja hingað inn, þá getur orðið mjög
fjörugt. Svo koma helgar þegar
heimamenn eru einu gestirnir og þá
geta bæði verið róleg kvöld og feiki-
lega mikið fjör.“
Inga Jóna Hjaltadóttir, systir Árna,
hefur starfað á Útlaganum allt frá því
hann var opnaður. Þegar hún er búin
að afgreiða „fastagestinn" gefsttími
fyrir smáspjall. Hvernig finnst henni
að vinna á kaffihúsinu?
„Yfirleitt er það mjög gaman. Við
höfum verið einstaklega heppin og
ekki lent í neinum vandræðum með
gestina. Yfirleitt er góð stemmning
og fólkið skemmtilegt. Við höfum
líka reynt að hafa menningarlegar
uppákomur, t.d. fengið rithöfunda til
að lesa upp úr verkum sínum. Fólk
hefur verið mjög ánægt það.“
Unga fólkið á Útlaganum er
ákveðið í að skemmta sér vel, bæði
gestir og starfsmenn.
Vikan 7
í gæsapartíi
samlegt þegar maðurinn minn var búinn að
ganga frá því að barnið yrði sótt á leikskólann!"
Ert þú dugleg að koma á Útlagann?
„Já, ég kíki alltaf öðru hvoru þegar ég er hérna
upp frá. Mér finnst alveg frábært að geta komið
hingað til að skemmta mér.“
Gæsapartíið er í fullum gangi og karlmennirnir
á staðnum fá greinilega að taka þátt í hátíðar-
höldunum.
Brjálað stuð
Við eitt borðanna situr stúlknahópur og er
greinilegt að kaffihúsadvölin er hluti af
gæsapartíi. Ein stúlknanna sker sig úr hópn-
um og hin „heppna" heitir Helga Helgadóttir, ætt-
uð úr Hrunamannahreppi. Hún er reyndar flutt til
Þorlákshafnar með sínum heittelskaða og barni
þeirra en æskuvinkonurnar mættu með hana á
„hverfisbarinn“ til að skemmta sér.
Hvernig er dagurinn búinn að ganga fyrir sig
hjá væntanlegri brúði?
„Þetta er búið að vera rosalega skemmti-
legt. Vinkonur mínar sendu ungan herramann
heim til min með föt, skartgripi og skó í poka
og hann sagði mér að klæðast þessu. Hann
fór síðan í hlutverk förðunarmeistara og mál-
aði mig svona fína.“ Helga er ,,vel“ máluö, því
er ekki hægt að neita.
„Herramaðurinn fór með mig á bensínstöð
og lét mig dæla bensíni á nokkra bíla. Síðan
fórum við heim til vinkonu minnar hérna í
hreppnum þar sem við grilluðum. Þetta er
búið að vera alveg yndislegt kvöld."
Áttir þú von á einhverju sprelli frá vinkonum
þínum?
„Já, ég bjóst við einhverju en ekki svona
löngu fyrir brúðkaupið, þannig að þetta kom á
óvart. Eftir á sé ég að það var nú svolítið grun-