Vikan


Vikan - 13.07.1999, Síða 11

Vikan - 13.07.1999, Síða 11
„Sjúkdómurinn er margþættur og af- brigðio sem þeir eru Anna ásamt þeim Ólafi Degi og Rúnari Geir. með er óþekkt. Þeir eru einu börnin á landinu með þessa tegund og enginn veit af hverju.“ Nú hafa foreldrar fatlaðra barna oft verið að gagnrýna „kerfið" í heild sinni; Hversu svifaseint það sé og eins að menn rekist á veggi. Hver er þín reynsla? „Fólk þarf að bera sig eft- ir öllu, það er alveg sama hvaða kerfi maður er að tala um. Þegar maður gengur á eftir hlutnum þá hefur allt gengið vel. Maður fær auð- vitað ekki neitt sent í pósti án þess að óska eftir því. Annars finnst mér ég ekki geta kvartað. Ég hef fengið úrvals þjónustu hjá Grein- ingarstöð ríksins og starfs- mennirnir þar eru allir af vilja gerðir til að hjálpa til. Vanti mig einhver gögn það- an eru málin leyst með einu símtali. Mér finnst þjónust- an á Greiningarstöðinni í einu orði sagt frábær. Allir aðilar sem koma þar að eru mjög faglegir og því einstak- lega gott að leita til þeirra.“ Synirnir eru ekki baggi á mér Eins og fram hefur komið er Anna gífurlega mikil hannyrðakona og bútasaum- ur er eitt helsta áhugamál hennar. Hún er félagi í áhugamannafélgi á Selfossi sem kallast Bútalist og sat meðal annars í stjórn þess um tíma. Konurnar hittast og eyða kvöldi eða helgum í að sauma saman og þá er tím- inn vel nýttur. Heimili Önnu er fallegt og þar má finna fagurt handverk, litla hluti og stóra, bæði eftir hana sjálfa og auðvitað börnin hennar. Hvenær kviknaði áhugi Önnu á bútasaum? „Ætli það hafi ekki verið fyrir tveimur árum sem ég byrjaði fyrir alvöru. Þá var ég lengi búin að hugsa með mér að nú skyldi ég byrja á þessu en ekkert gerðist. Loksins dreif ég mig á eitt námskeið og þar með var ég komin með bakteríuna. Ég hef farið á nokkur mismun- andi bútasaumsnámskeið í Reykjavík og finnst það mjög skemmtilegt. Ég hef nú alltaf verið dugleg að sauma fatnað t.d. á krakk- ana og svona ýmislegt ann- að, en það var alveg nýtt fyrir mér að byrja í búta- saumnum." Heimilið og handavinnan eru Önnu greinilega hug- leikin og eins hefur hún mikinn áhuga á garðrækt. Dúkkur, púðar og málaðir tréhlutir eru meðal afrakst- urs myndarskapar húsmóð- urinnar. Anna dregur fram fallegan krans sem hún hafði unnið að kvöldið áður. Hún hafði skroppið á nám- skeið í Hafnarfirði og var komin heim með stóran krans til að setja á útdyra- hurðina og þar mátti sjá fal- lega vinnu. „Við erum mjög dugleg að föndra saman hérna á dag- inn þegar það er rólegt hjá okkur. Mér finnst ég óskap- lega heppin að geta verið heima og sinnt áhugamálum mínum og verið svona mikið með strákunum mínum. Stundum hef ég fundið fyrir því að fólk heldur að þeir séu einhvers konar baggi á mér en ég hef aldrei litið á syni mína sem slíka. Þeir eru bara yndislegir. Ekki eru nú læti í þeim eins og þú heyr- ir.“ Það eru orð að sönnu því ekki hefur heyrst hljóð úr stofunni á meðan við höfum rætt saman yfir kaffibolla. Stuttu síðar koma þeir og spjalla við okkur. Rúnar Geir er mikill Manchester United aðdáandi og að sjálf- sögðu kampakátur yfir gengi sinna manna að undanförnu. Hann á gríðarlegt safn mynda af liðsmönnum og United húfan er á sínum stað. Ólafur Dagur heldur Vikan 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.