Vikan


Vikan - 13.07.1999, Page 14

Vikan - 13.07.1999, Page 14
Fyrstu kynni Ég sá Skógafoss fyrst fjórtán ára í skólaferðalagi. Þá snérust allar ferðir manns um stelpur, og ein- hverjar vatnsbunur eða fjöll skiptu engu máli. Landið var eiginlega til trafala þeg- ar brunað var á támjóum plastsóluðum töffaraskón- um inn að fossinum á eftir ískrandi skvísunum og ekki batnaði það þegar úðinn frá honum slengdist yfir mann svo hárið fór í klessu, jakka- fötin frá Ultímu gegnblotn- uðu, bindið vöðlaðist í hnút og þunn nælonskyrtan límd- ist við mann. Þarna hökti maður aftur út í rútu, hríð- skjálfandi, sénslaus og bölvandi fossinum fyrir að vera til. Aldrei skyldi ég aft- ur hingað koma. Landið Það er annars merkilegt, þegar maður hugsar til baka, hvað landsmenn voru almennt fjarri landinu þótt þeir gengju á því. Fegurð var ekki til yfir hugtök um landið, þetta hráslagasker og þeir sem álpuðust upp um fjöll og firnindi þóttu í meira lagi skrýtnir. Landið var hálfgerð Þyrnirós, falin fegurð og forsmáð, þar til útlendingar fara að sópast hingað að skoða grjót, torf og vatn eins og það væri eitthvað merkilegt. Sem hendi væri veifað er hulu aldanna svipt af sjónum manns og íslendingar vakn- ar upp með dýrmæta perlu í höndunum. Fossinn Skógafoss er einn af þess- um stöðum sem unun er að líta, líkt og flatarmálsmynd eftir Modigliani, aldrei eins en þó staðfastur í sínum þunga nið. Það er ekki margt sem minnir á skóga á þessum stað, samt er allt kennt við skóg og staðurinn fær ósjálfrátt stóra, huglæga merkingu, þétta og dular- fulla. Það er sem allt sé þétt- vaxið miklum, dökkum trjám, þótt skóginn vanti, og alls kyns verur séu þar á sveimi, álfar og nornir, ein- hyrningar og annað fram- andlegt. Blær þess óþekkta leikur um vanga og stundum fæ ég það á tilfinninguna að fossinn sé ekki foss heldur ímyndun ein og tilbúningur líkt og tölvugert baksvið í kvikmynd, svo flottur er hann, vel formaður og hag- anlega fyrirkomið í lands- laginu. í bókinni Rangár- vallasýsla, sem Rangæinga- félagið gaf út árið 1968, seg- ir svo: „Skógá kemur frá jökli og rennur fyrir austan Drangshlíðar- fjall til sjávar. Þetta er mjög lítið vatnsfall, venjulegast milli hnés og kviðar á hestum. Ekki er heldur mikill straumur í ánni, og ei vita menn að hún hafi breytt farvegi sínum. I þessari á er hinn nafn- frægi Skógafoss, er fallegastur er allra fossa. Hann er hér um 30 faðmar á hæð og 10 f. á breidd. Fellur hann beint niður á sandeyri í litlum gljúfurskima, og er fossinn ekki öðru líkari tilsýndar en að samanhang- andi útbreitt sauðarreyfi héngi frá fossbrún niður á sand“. Þessi lýsing áréttar leikmyndalegt útlit fossins, enda er hann vel þekktur sem sviðsmynd í kvikmynd- um og tónlistarmyndbönd- 14 Vlkan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.