Vikan


Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 22

Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 22
klúru orðavali. Enn aðrir munu nota þessar myndir sér til örvunar og kynferðis- legrar útrásar. Mörg okkar hafa einhvern tíma séð í bíó- myndum ógeðsleg atriði þar sem einhver óþokki fróar sér yfir mynd af ungri konu í blaði. Undantekningarlítið fer illa fyrir vondum mönn- um í bíómyndum en tæplega er svo í öllum tilvikum í raunveruleikanum. Það er rétt hjá þessum ungu konum að nekt er ekki ljót og ungur og fallegur líkami ekkert til að skammast sín fyrir. Spurningin er hins vegar þessi: „Er rétt að selja að- gang að honum og eru stór- ar peningaupphæðir næg smyrsl á sárin þegar ímynd þín er notuð til fróunar mis- aðlaðandi karlmanna sem þú getur ekki á nokkurn hátt valið eða stjórnað hverjir eru?“ istaríkjum. Þær hafa marg- föld árslaun sín í heima- landinu upp úr krafsinu eftir nokkurra vikna vinnu hér og margar fjármagna nám sitt með listdansi sín- um. Islenskar stúlkur eru alls ekki lausar við eða sak- lausar af því að þekkja sölugildi eigin líkama. Skemmst er að minnast mynda sem birtust af nokkrum íslenskum stúlk- um í Playboy. í viðtölum við þessar playboystúlkur kom fram að engri þeirra þótti skömm að því að birtast á síðum svo „virts“ tímarits. Þær bentu allar á að þær væru hreyknar af líkama sínum og skömm- uðust sín ekkert fyrir nekt sína. Nokkrar höfðu orð á að gaman yrði að sýna barnabörnunum seinna að amma hefði eitt sinn verið Fallegur, ungur kven- líkami selur hvað sem er að mati auglýsenda. ung og fallega vaxin. Margar ömmur hafa getað sýnt glæsilegan, ungan líkama þótt hann væri hulinn kjól. Fróa sér yfir myndir af ungum stúlkum Engin kvennanna ræddi það að með því að leyfa myndatöku og birtingu af þessu tagi eru þær að selja kaupendum blaðsins aðgang að líkama sín- um. Sumir munu bara skoða, aðrir grann- skoða og leyfa öðrum að njóta þess sem fyr- ir augu þeirra bar með mismunandi Feimnin þarf skjöld gegn auga hins óhreina Kolbrún Aðalsteinsdóttir hjá Icelandic Models hefur verið umboðsmaður margra ungra stúlkna sem vinna sem fyrirsætur. Hún segir að í samningum Icelandic Models sé skýrt ákvæði um að fyrirsætan megi ekki undir neinum kringumstæðum fækka fötum nema að fengnu samþykki Icelandic Models og foreldra stúlkunnar sem um ræðir. Stúlkunum er einnig bannað að hegða sér ósiðsamlega og neyta áfengis eða annarra fíkniefna. Verði stúlkurnar uppvísar að fíkniefnanotkun er fyrirsætusamn- ingi þeirra umsvifalaust rift. Þessi ákvæði eru hins vegar einsdæmi í auglýsingaheiminum og hafa vakið mikla athygli erlendis þar sem stúlkurnar hennar Kolbrúnar hafa verið við störf. Kolbrún bendir á fallegar línur í Spámanninum eftir Kahlil Gibran um nektina og sálina. Þar standa þessi meitluðu orð: „Feimnin þarf skjöld gegn auga hins óhreina.“ „Ég er þannig manneskja að ég vil helst ekki sjá eða heyra neitt ljótt,“ segir Kolbrún. „Ég vel mjög vandlega all- ar bíómyndir sem bæði ég og börnin mín sjá. Persónulega er ég á móti allri nekt í auglýsingum því ég tel hana óþarfa. En einstaklingurinn verður að ráða hvað hann gerir þegar hann hefur náð sjálfræðisaldri. Hingað koma ungar stúlkur og dansa naktar til að kosta háskólanám sitt og sumar selja ef til vill líkama sinn. Úti á götu ganga um menn og selja börn- unum okkar fíkniefni. Það má vel spyrja sjálfan sig hvor glæpurinn er stærri. Ég er mjög fegin því að sjálfræðisaldurinn var hækkaður upp í átján ár. Öll nekt á myndum undir þeim aldri er ólög- leg án samþykkis foreldra. Það má alveg spyrja sig hvað þeir foreldrar eru að hugsa sem leyfa nektarmyndatökur á barni sínu undir sjálfræðisaldri. Þegar nekt þín hefur einu sinni verið fest á filmu verður það ekki aftur tekið. Eftir tuttugu ár er þessi einstaklingur ef til vill í allt annarri stöðu. Hann hefur ef til vill hug á að bjóða sig fram til for- seta eða giftast einhverjum sem gengir viðkvæmri stöðu í samfélaginu. Þá er ólíklegt annað en að blöðin verði fljót að draga upp þessar gömlu myndir. Sá sem nektarmyndin er af er ekki sá eini sem gengur sár frá þeim hildarleik. Makinn skaðast líka og börnin ef þau eru til staðar. Þessa hluti verð- ur að hugsa til enda áður en álkvörðun er tekin. Gott uppeldi er meginþáttur í lífi hvers og eins og að því ber að hlúa. Sjálf naut ég góðs uppeldis og berst í dag gegn fíkniefnanotkun ungmenna og kynferðislegu ofbeldi gegn börnum.“ 22 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.