Vikan


Vikan - 13.07.1999, Síða 24

Vikan - 13.07.1999, Síða 24
Bitna á saklausum Skilnaðir eru alltaf erfiðir fyrir þá sem hlut eiga að máli, bæði hjónin og börn þeirra ef einhver eru. Þeir eru það þrátt fyrir að þeir fari friðsamlega fram. Skilnaðir geta bitnað á öðrum ættingjum líka, sér- staklega öfum og ömmum barnanna ef ágreiningur er um forsjá og umgengnisrétt við þau. Á hverju ári á fjöldi fólks um sárt að binda vegna skilnaða og margir þurfa að leita sér hjálpar vegna fjár- hagsvanda sem oft fylgir í kjölfarið og enn fleiri vegna sálarkreppunnar sem liggur mjög þungt á mörgum fórn- arlambanna. Flestir skilnað- ir verða á veturna, aðallega frá desember og út febrúar, einmitt á þeim tíma sem erf- iðastur er þeim sem hafa til- hneigingu til þunglyndis. Hatrammar deilur sem sífellt magnast Það sem gerir skilnaði erf- iða, er að hjón sem eru í þann veginn að gefast upp á hjónabandinu geta sjaldan komið sér saman um hvern- ig eigi að standa að málum. Samskiptaörðugleikarnir sem ollu skilnaðinum verða sífellt meiri og erfiðari að leysa. Stundum verða deil- urnar og illindin svo hatrömm að öll samninga- gerð fer út um þúfur og hjónin verða að talast við í gegnum utanaðkomandi að- ila. Stærstur hluti skilnaða endar með hatri og illindum. En þarf það að vera þannig? Lífsreglur í skilnaðarferlinu Bill Ferguson, bandarísk- ur sálfræðingur og lögmað- ur, er sannfærður um að svo sé ekki. Flann hefur skrifað margar bækur um skilnaði og rekur lögfræðistofu sem sérhæfir sig í skilnaðarmál- um. Hann fer öðru vísi að en flestir skilnaðarlögmenn því hann byrjar á að leggja hjónunum lífsreglurnar og kennir þeim umgengnisregl- ur sem fylgja ber meðan á skilnaðarferlinu stendur. Hann bendir fólki á bæk- urnar sínar ef það vilji læra meira um þessar reglur, en þær heita á frummálinu: Heal your hurt (Læknaðu sársauka þinn), How to heal a painful relationship (Hvernig bæta má erfiða sambúð) og How to divorce as friends (Hvernig skilja má sem vinir). Breytt viðhorf Tölur frá Bill Ferguson sýna að þessi aðferð skilar árangri því u.þ.b. 15% við- skiptavina hans hætta við skilnaðinn, en allir hinir (85%) skilja sem vinir! „Það geta allir skilið sem vinir, meira að segja þeir sem eru í mjög vondri sam- búð,“ sagði Bill Ferguson í viðtalsþætti hjá Oprah Win- frey í haust. Hann virðist geta staðið við þessar full- yrðingar sínar, því mjög mörg hjón hafa borið að þau hafi getað gerbreytt viðhorfi sínu eftir að hafa lesið bæk- ur Fergusons eða leitað til hans. Nokkur hjónanna hafa hætt við skilnaðinn og eru nú hamingjusöm. „Galdurinn er að skynja hvaða þátt þú sjálfur átt í ástandinu. Hvorugt hjón- anna er saklaust þegar hjónaband fer út um þúfur. Fæstir gera sér grein fyrir sínum þætti í vandanum og geta þess vegna ekki tekið á honum. Við gerum okkur fulla grein fyrir því hvernig hinn aðilinn kemur fram við okkur og bregðumst við með því að koma eins fram við hann. Þannig skapast vítahringur sem erfitt er að komast út úr og vandinn hleður utan á sig eins og snjóbolti.“ „Þegar okkur er sýnd ást og virðing gjöldum við hana í sömu mynt, en þegar við finnum fyrir fjandskap og verðum fyrir stöðugri gagn- rýni förum við að verja okk- ur og notum til þess álíka harkalegar aðferðir og stundum enn harkalegri. Vandinn er sá að hinn að- ilinn bregst eins við, hann fær harkaleg viðbrögð og bregst við þeim á enn harka- legri hátt. Ef við leyfum okkur að gjalda alltaf líku líkt er næsta víst að illa fer. Það er eins og að vera um borð í skipi þar sem enginn er við stjórnvölinn. Það hlýtur að koma að því að skipið strandar fyrr eða síðar.“ Vítahringurinn Ekkert hjónaband er svo gott að aldrei komi upp ágreiningsmál. Það er aðeins spurning um tíma hvenær annað hjón- anna verður pirrað eða reitt. Sá aðili sem verður reiður eða pirraður byggir um sig varnarmúra, dregur sig inn í skel og hættir að eiga innileg samskipti við hinn, eða ræðst á hann með einhverj- um hætti. í mörgum samböndum bregst hinn aðilinn ósjálfrátt við á sama hátt. Hann borg- ar fyrir sig með því að haga sér eins eða jafnvel verr án þess að gera sér grein fyrir því. 24 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.