Vikan


Vikan - 13.07.1999, Side 34

Vikan - 13.07.1999, Side 34
Sumarið er tími léttrar fæðu. Grænmetisfæði er mjög vin- sælt því það er ekki einungis létt í maga, ferskt og gott heldur er það líka hollt. Vitanlega er hægt að matreiða grænmeti þannig að það hafi ósköp lítið með hollustu að gera, en nútíma- fólk gerir kröfur um hollustu og ferskleika. Hægt er að fá græn- metisrétti á mörgum veitingastöð- um í bænum, en þeir eru mun færri sem vinna eingöngu með hollt hráefni, notast við lífrænt ræktað grænmeti, bjóða jafnvel upp á „lífrænt ræktað“ léttvín með matnum, og bjóða upp á rétti fyrir fólk með ýmis konar óþol. Einn þeirra, og ef til vill sá elsti, er veitinga húsið Á næstu grösum sem staðsett er á Lauga- vegi 20 b. Matreiðslumeistarinn Sæmundur Kristjánsson rekur veitingahúsið og fékk ég hann í lið með mér að þessu sinni. Hann gefur lesendum Vikunnar upp- skriftir að réttum sem hann býður upp á á veitingahúsinu Á næstu grösum. Tómatsósa fyrir kartöflulasagna 5 meðalstórir laukar, saxaðir 2 bollar maukaðir tómatar 8 hvítlauksrif 4 msk. ólífuolía 1/4 bolli Tamarin soyasósa salt og pipar Aðferð: Hitið olíu í potti og setjið laukinn í. Látið laukinn malla þar til hann er orðinn mjúkur (ekki brúnn). Bætið við hvítlauk og látið malla. Bæt- ið tómötum, Tamarin soyasósu, salti og pipar út í. Sjóðið þangað til sósan verður þykk. Takið hana þá til hliðar. Kartöflur fyrir lasagna 10 stórar kartöflur (bökunar) eru flysjaðar og þær skornar í mjög þunnar sneiðar, helst í vél eða í þar til gerðu áhaldi. Þær eru síðan settar í vatn til að þær verði ekki brúnar ef þær eru ekki notaðar jafn óðum. Ostasósa fyrir kartöflulasagna 250 ml mjólk 25 g smjör 30 g spelt mjöl (fœst í Yggdrasil) 25 g gráðostur eða annar ostur salt cayenne pipar Aðferð: Hitið mjólkina í potti. Bræð- ið smjörið í öðrum potti og bætið hveitinu út í það. Hrærið því vel sam- an og hitið vel í nokkrar mínútur án þess að brúna. Bætið því næst rnjólk- inni út í í smá áföngum og hrærið stöðugt í þar til þetta er flauels mjúkt. Leyfið þessu þá að sjóða rólega í um það bil tíu mínútur. Bætið þá ostinum saman við og takið pottinn af hitanum. Hrærið vel og kryddið með salti og cayenne pipar. Þegar lasagna er raðað upp þá er eldfast mót penslað með olíu og kart- öfluskífum síðan raðað í botninn, þar á eftir er tómatsósunni dreift létt yfir. Þá er kartöflum raðað aftur yfir. Þetta er gert til skiptis og að lokum er ostasós- unni hellt yfir. Lasagnað er bakað við 150°C til 170°C í um það bil 30 til 45 mínútur. 34 Vikan Umsjón: Marentza Poulsen. Myndir: Gísli Egill Hrafnsson

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.