Vikan - 13.07.1999, Page 38
Texti: Jóhanna Harðardóttir
Tölvan er stórkostleg uppfinning og góður vinnufélagi. Það er samt ekkert hollt að sitja fyrir framan
skjáinn tímunum saman. Hér eru nokkrar bráðnauðsynlegar leiðbeiningar til þeirra kvenna (og karla)
sem sitja framan við skjáinn daglangt.
Staðreyndin er sú að
mjög margir sem vinna
við tölvu sitja allt of
lengi í einu framan við hana
og þreytast því óeðlilega
mikið, jafnvel án þess að
gera sér grein fyrir því. Þetta
getur komið fram í bak-
verkjum, augnþreytu og
verkjum, vöðvabólgu í öxl-
um, höfuðverk og óþægind-
um af ýmsu öðru tagi.
Þeir sem reykja standa oft
upp, en hinir ættu að gæta
sín vel og standa upp jafnoft
og vinnufélagarnir sem
skreppa „bakvið hús“ öðru
hverju til að fá sér smók.
Hnykklæknar fá oft tölvu-
fórnarlömb í meðferð og
þeir tveir sem Vikan leitaði
til voru sammála um að það
sem skipti mestu máli væri
að standa oft upp og hreyfa
sig.
Þeir mæltu með að fólk
sem vinnur við tölvur teygi
sig þegar það stendur upp
frá tölvunni, gangi nokkrar
hringi í herberginu og best
sé að fara út í dyr eða að
opnum glugga og anda að
sér hreinu lofti í leiðinni.
Það getur verið erfitt að
koma sér upp nýjum venjurn
í vinnunni og til þess að læra
að standa upp reglulega er
langbest að tengja það ein-
hverju sérstöku. Það getur
til dæmis verið skynsamlegt
að venja sig á að í hvert
skipti sem síminn hringir
skulir þú standa upp meðan
þú byrjar að tala við þann
sem er í símanum.
Það getur líka hentað sum-
um að í hvert skipti sem nýr
viðskiptavinur, sjúklingur,
vinnufélagi eða gestur kemur
inn á skrifstofuna þína stand-
ir þú upp til að bjóða hann
velkominn og gangir aðeins
um á meðan þið skiptist á
fyrstu orðunum.
Það getur líka skipt miklu
máli að sitja rétt við borðið
og að læra að nota
tölvumúsina á réttan hátt.
Allir ættu að leggja sig fram
um að nota til skiptis hægri
og vinstri hönd til að stjórna
músinni, læra að nota hana
með báðum höndum. Það er
ekki eins erfitt og maður
gæti haldið að óreyndu.
Með því móti má minnka
hættuna á að fá svokallaða
„músarsótt" sem er nokkurs
konar bólga í framhald-
leggsvöðvum og sinum.
En hér koma nokkur heil-
ræði:
Horfðu beint fram
Svona áttu að sitja framan við skjáinn.
Bein í baki, með höfuðið hátt og teygt á
hálsinum. Það er rn jög algengt að tölvu-
skjáirnir séu of neðarlega, en miðjan á
skjánum á að vera í augnhæð þess sem
vinnur við tölvuna. Slakaðu á öxlunum
og láttu stólinn styðja við mjóhrygginn.
Handleggirnir eiga að mynda 90 gráðu
horn og það sama gildir um læri og fót-
leggi. Vendu þig af að tylla í tærnar undir
borðinu; þeir sem eru lágir til hnésins
verða að hafa skammel undir fótunum.
Létt æfing 1
Sittu bein í baki og
haltu um stólset-
una. Lyftu hægra
fæti ineð hnéð
beygt. Endurtaktu
þessa ælingu a.m.k.
fimm sinnum.
Skiptu uin fót og
lyftu vinstra fæti á
sama hátt.
Létt æfing 2
Þessi æiing er góð fyrir þá sem ekki
geta staðið oft upp úr stólnum.
Sittu bein í baki og lyftu báðum fót-
um eins hátt og þú getur. Þessi æf-
ing kemur blóðinu vel á hrcytingu.
Endurtaktu a.m.k. fimin sinnuni.
Teygðu á bakinu
Sittu á stólnum og
beygðu þig fram eins
langt og þú kemst. Láttu
hendurnar lafa niður.
Andaðu frá þér ineðan
þú beygir þig fram en
dragðu vel að þér and-
ann meðan þú reisir þig
upp aftur. Endurtaktu
æfinguna tvisvar sinnum.
38 Vikan