Vikan


Vikan - 13.07.1999, Page 49

Vikan - 13.07.1999, Page 49
Svarið spurningunum og sendið svörin til okkar merkt: Sumarleikur Vikunnar, Seljavegi 2, 101 Reykjavík Muniö að skrifa nafn ykkar, heimilisfang og símanúmer á svarseðilinn. Frestur til að skila svörum er til 20. júli nk. 1. Hvað heitir höfuð- borgin í Portúgal? 2. Hvar er hinar hreinu baðstrendur Portúgals að finna? 3. Hvað heita tveir stærstu vatna- skemmtigarðar Portúgals? Taktu þátt í Sumarleik Vikunnar og hver veit nema þú hafir heppnina með þér! ÚRVAL'ÚTSÝN skipt er við, heitir Auto Jar- dim. Starfsfólk hennar getur veitt allar upplýsingar um for- vitnilegar akstursleiðir. Ef ekki er búið að ganga frá gistingu fyrstu nóttina í Portúgal er ráðlagt að hafa sam- band við skrifstofu mörg gistihús. Við ströndina eru lífleg kaffihús, barirog veitingastaðir. Sagres er í fimm kíló- metra fjarlægð frá Lagos en Sagres er gamall útgerðar- bær. Þetta er kyrrlátur og fal- legur staður sem er ánægju- legt að heimsækja. Silves er með merkari Paradísin Portúgal Portúgal er litlu minna en ísland en íbúafjöldinn tæpar 11 milljónir. Höfuðborgin heitir Lissabon en í henni búa rúmlega 2 milljónir manna. Syðsta hérað Portúgal heit- ir Algarve og er einmitt áfangastaður Úrvals-Útsýnar. Héraðið er 4.960 ferkílómetr- ar og íbúarnir í kringum 350 þúsund. Strandlengja Algarve er einstaklega fögur. Við hana má finna tandurhreinar bað- strendur, blátt haf og við voga og víkur má finna vinaleg fiskiþorp og strandbæi. Veðurfar í Algarve er ein- staklega þægilegt. Fjöllin í norðri veita skjól frá nöprum vindum og síðdegis má finna hressandi blæ frá hafinu. Meðalhitinn er í kringum 26° yfir sumarmánuðina. Fyrir þá leikglöðu hafa verið settir á laggirnar margir vatns- skemmtigarðar, m.a. „The Big One" og „Slide and Splash". Faro er gömul borg og tal- in vera nokkurs konar höfuð- borg Algarve. Á dögum Róm- verja hét borgin Ossonoba og var miðstöð verslunar og við- sKipta neraos- ins. Starfs- menn Úrvals- Útsýnar ráð- leggja þeim, sem taka flug og bíl, að hefja dvölina í þess- ari sögufrægu borg. Þarer jafnframt að finna skrifstofu ferðamálaráðs Algarve, sem getur veitt allar upplýsingar um héraðið. í Faro er að finna eitt skemmtilegasta kaffihúsið á Portúgal sem heitir Alianca. Kaffihúsið var opnað árið 1908 og hefur innréttingum lítið verið breytt síðan. Akandi um Algarve Sífellt fleiri kjósa að aka um Algarve í heimsókn til Portú- gal. Akstursleiðirnar þykja stuttar og þægilegar og ferða- langar fá allt aðra sýn á land- ið með því að aka um gamla sveitavegi og sjá innfædda við leik og störf. Úrval-Útsýn býður upp því upp á flug og bíl til Portú- gal. Lent er á flugvell- inum í Faro en bílaleigan, sem ferðamálaráðs Algarve héraðs, sem er m.a. með skrifstofu á flug- vellinum, og fá aðstoð við að finna hentuga gistingu. Víða má finna skemmtilega áfangastaði fyrir þá sem aka um Portúgal. Albufeira er vinsæll ferðamannastaður og þar eru nokkrar frábærar baðstrend- ur. í nágrenni Albufeira eru margir golfvellir, enda hefur golf verið leikið í Algarve í rúmlega 100 ár. Portimáo er 60 km vestur af Faro og stendur við ósa Rio Araoe árinnar. Bærinn er ósköþ venjulegur portúgalsk- ur bær þar sem auðvelt er að kynnast lífi Portúgala. Hann er einn af þremur stærstu bæjum Algarve og íbúar hans eru rúmlega 30 þúsund. Lagos er vinsæll ferðamannabær þar sem finna má bæjum í Algarve því bærinn var helsta aðsetur Araba á 8. öld. Bærinn stendur á bökk- um Rio Araoe árinnar. Feg- ursti staðurinn í Silves er torgið, Praca Do Municipo, en skammt frá því er að finna dómkirkjuna og gamlan kast- ala.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.